Málefni Stuðla
Greinilega um misskilning að ræða sem ber að leiðrétta
Forstjóri gæða- og eftirlitsstofnunar velferðamála (GEV) segir það alkosta rangt hjá Barna- og fjölskyldustofu að mál sem kom upp í júní sé þess eðlis að ekki beri að tilkynna það. Það hljóti að vera misskilningur hjá stofnuninni.
Ósáttur með viðbrögð Barna- og fjölskyldustofu
Eftirlit með vistunarúrræðum fyrir börn er nánast í skötulíki að sögn framkvæmdastjóra Geðhjálpar. Svör Barna- og fjölskyldustofu vegna rannsóknar lögreglu á ofbeldismáli starfsmanns gegn barni á Stuðlum veki áhyggjur.
Sakborningur enn að störfum og atvikið ekki tilkynnt
Starfsmaðurinn sem hefur stöðu sakbornings vegna meintrar árásar á Stuðlum starfar enn hjá Barna- og fjölskyldustofu. Málið var ekki tilkynnt til eftirlitsstofnunar eins og lög gera ráð fyrir.
Hafi kallað drenginn „grenjuskjóðu“
Umboðsmaður barna segir stöðuna í meðferðarkerfinu vera grafalvarlega og ítrekar að gæta skuli varúðar þegar valdi er beitt. Starfsmaður Stuðla er með stöðu sakbornings vegna meintrar árásar innan meðferðarheimilisins.
„Meiddist og varð mjög hræddur um líf sitt“
Starfsmaður Stuðla er grunaður um að hafa ráðist á fjórtán ára dreng sem var skjólstæðingur á meðferðarheimilinu. Lögmaður drengsins segir hann hafa óttast um líf sitt.
Starfsmaður Stuðla grunaður um að ráðast á barn
Starfsmaður á meðferðarheimilinu Stuðlum er grunaður um að hafa í lok júní ráðist á fjórtán ára barn sem var skjólstæðingur á heimilinu. Lögregla hefur málið til rannsóknar.
Starfsmenn meðferðarheimilis: Fíkniefni, öryggisbrestir og óvirkt eftirlit
Fyrrverandi starfsmenn meðferðarheimilisins Bjargeyjar fyrir börn með fjölþættan vanda lýsa reiðuleysi í starfseminni, öryggisbrestum og faglegu vanhæfi. Fíkniefni séu látin óátalin, lyfjagjöf hafi brugðist og innra eftirlit sé til málamynda. Eftirlitsstofnun leggur til verulegar umbætur á heimilinu eftir íkveikju vistmanns.
„Barnið mitt dó á ykkar vakt“
„Það er löngu komin tími til að þú, Guðmundur Ingi og þitt ráðuneyti, hysjið upp um ykkur, takið ábyrgð og sýnið það í verki, áður en að fleiri börn deyja á ykkar vakt. Því barnið mitt dó á ykkar vakt og það er blákaldur sannleikurinn,“ skrifar móðir sautján ára drengs sem lést í eldsvoðanum á Stuðlum fyrir ári síðan.
Dæmi um að aðstandendur beri fíkniefni í börn á Stuðlum
Forstjóri Barna- og fjölskyldustofu segir dæmi um að aðstandendur beri fíkniefni í börn í langtímameðferðarúrræði á Stuðlum. Heimildir starfsmanna til að stöðva flæði fíknefna inni í meðferðarúrræðum og leita á börnum séu verulega takmarkaðar, sérstaklega í ljósi skorts á langtímaúrræðum fyrir drengi á landsbyggðinni.
Á leið til Suður-Afríku með syni sína í meðferð vegna úrræðaleysis
Mæður tveggja fjórtán ára drengja undirbúa nú að fara með þá til Suður-Afríku í meðferð vegna alvarlegs vímuefnavanda. Þær segja úrræðaleysið algjört á Íslandi og úrræðin sem séu í boði „skrípaleik og leikrit“. Börnin gangi inn og út úr meðferðarúrræðum til að ná sér í vímuefni. Þegar hafa fjögur önnur börn farið í sama meðferðarúrræði í Suður-Afríku.
Þúsundir barna bíða og listarnir lengjast
Um 2500 börn bíða eftir þjónustu Geðheilsumiðstöðvar og hefur orðið mikil fjölgun á biðlista undanfarin fjögur ár. Bið barna eftir ADHD-greiningu getur verið á fimmta ár. Umboðsmaður barna kallar eftir aðgerðum stjórnvalda og segir áhyggjufullt hve mörg börn séu með stöðu sakbornings í ofbeldismálum.
Þegar sannleikurinn verður fórnarlamb
Það er auðvelt að láta plata sig þegar aðeins ein hlið málsins er kynnt, sérstaklega sú sem hentar valdhöfunum. Þegar einhliða sýn ræður ríkjum og aðrar raddir, jafnvel þeirra sem best þekkja veruleikann, eru þaggaðar niður verður sannleikurinn fórnarlamb.
„Ég horfði á son minn brotna meira og meira, ár eftir ár“
Faðir manns sem glímdi við fíknivanda frá tólf ára aldri og svipti sig lífi tuttugu ára gamall segir kerfið hafa brugðist algjörlega. Neyðarvistun var eina úrræðið fyrir barn með fíknivanda og þar hafi strákurinn dvalið með langt gengnum eldri fíklum. Stofnanir sem eigi að grípa börn séu í raun völundarhús og drekkingarhylir.
Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt
Guðlaugur Skúlason, formaður byggðarráðs Skagafjarðar, vildi ekki svara því í morgun hver hefði gert tilboð í Háholt, þar sem starfrækt var meðferðarheimili til ársins 2017.
Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði
Greint var frá því á fundi byggðarráðs Skagafjarðar í gær að tilboð hefði borist í fasteignina Háholt og samþykkti ráðið samhljóða að svara tilboðinu með gagntilboði.
Þrír grunaðir í tengslum við brunann á Stuðlum
Þrír eru með stöðu sakbornings í rannsókn lögreglu á mannskæðum bruna sem varð á meðferðarheimilinu Stuðlum í Reykjavík þann 19. október í fyrra.
Skrítið ef ríkið hefur ekki áhuga á Háholti
Þingmaður Viðreisnar vill að nýr barnamálaráðherra skoði það að alvöru að reka aftur meðferðarheimili fyrir börn að Háholti í Skagafirði. Skrítið sé að nýta húsnæðið ekki á meðan málaflokkurinn er á jafnslæmum stað og hann er núna.
Gamall ráðherra vildi nýtt hús, en nýr ráðherra gæti fengið gamalt hús
Meðferðarheimilið Háholt í Skagafirði er komið aftur á sölu. Sveitarstjóri telur húsið henta vel sem meðferðarheimili fyrir börn en ríkið hefur hingað til ekki haft áhuga á því. Hann vonar að nýr ráðherra endurskoði þá afstöðu.
Svört skýrsla komi ekki á óvart
Umboðsmaður Alþingis telur neyðarvistun barna í fangaklefa í Hafnarfirði brjóta gróflega gegn réttindum barna. Barnamálaráðherra segir niðurstöðuna ekki koma á óvart.
Segir fangageymslur ekki viðeigandi vistunarstað fyrir börn
Fangageymsla á lögreglustöðinni á Flatahrauni í Hafnarfirði er ekki viðeigandi vistunarstaður fyrir börn. Umboðsmaður Alþingis beinir því til Barna- og fjölskyldustofu og mennta- og barnamálaráðherra að endurskoða þá tilhögun að nýta fangaklefa fyrir neyðarvistun barna á Stuðlum. Í fangageymslunni sofa börn á plastklæddum dýnum á steyptum bekkjum. Vistun hefur varað í allt að sex daga.
Ekkert annað húsnæði komi til greina
Barna- og menntamálaráðherra segir algjört neyðarástand ríkja í málum meðferðarrýma ungmenna. Neyðarvistun barna sé óásættanleg og algjört neyðarúrræði þar sem ekkert annað húsnæði komi til greina.
Hafa þegar brugðist við mörgum ábendingum umboðsmanns um Stuðla
Úlfur Einarsson forstöðumaður Stuðla segir þegar hafa verið brugðist við mörgum ábendingum í skýrslu umboðsmanns Alþingis um neyðarvistun Stuðla. Hann segir ljóst að margar þeirra athugasemda sem koma fram í skýrslu umboðsmanns Alþingis um neyðarvistunin séu afleiðing þeirra aðstæðna sem starfseminni hefur verið búin og breytinga sem ráðist hefur verið í til að mæta viðameira hlutverki deildarinnar. Þetta segir Úlfur í skriflegu svari til fréttastofu.
Setur út á aðbúnað og umgjörð starfseminnar á neyðarvistun Stuðla
Umboðsmaður Alþingis gerir fjölmargar athugasasemdir við neyðarvistunina á Stuðlum og mælist til þess að ýmislegt verði fært til betri vegar.
Andlátið á Stuðlum hafði mikil áhrif
Forstöðumaður meðferðarheimilisins Stuðla hefur snúið aftur til starfa eftir að hann var sendur í ótímabundið leyfi. Hann segir eldsvoða þar sem sautján ára skjólstæðingur lést hafa tekið mikið á starfsfólk.
Opnunin á Blönduhlíð var engin opnun
Ólöf Ásta Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu, hafnar því að „opnun“ á nýju meðferðarheimili hafi verið skrautsýning sett upp sérstaklega fyrir Ásmund Einar Daðason barnamálaráðherra.
Sendi dóttur sína til Suður-Afríku því biðin hefði kostað hana lífið
Móðir sextán ára stúlku með einhverfu og fíknivanda fann sig knúna til að senda hana til Suður-Afríku á meðferðarstofnun því hún hafði ítrekað komið að lokuðum dyrum á Íslandi. Hún mat ástand dóttur sinnar sem svo að hún væri í bráðri lífshættu og að bið myndi kosta hana lífið.
Meðferðarheimili fyrsta skrefið að þjónustuþorpi fyrir börn
Nýtt meðferðarheimili fyrir ungmenni var í dag opnað í Mosfellsbæ en heimilinu er ætlað að vera viðbót við greiningar- og meðferðardeild Stuðla. Meðferðarheimilið heitir Blönduhlíð og stendur við Farsældartún þar sem sérstakt þjónustuþorp fyrir börn á að rísa.
Opið bréf til Bjarna Benediktssonar: Bruninn á Stuðlum: Hver ber ábyrgð?
Bruninn á Stuðlum, þar sem barn lést, hefur skilið þjóðina eftir í áfalli. Þetta er harmleikur sem hefði aldrei átt að eiga sér stað. Kerfi sem á að vernda okkar viðkvæmustu börn hefur brugðist – og það með líf þeirra að veði.
Stuðlar: neyðarástand í meðferðarkerfinu
Þegar Barnaverndarstofa var stofnuð árið 1996 voru mörg meðferðarheimili í boði fyrir ungmenni í vanda. Á árunum 1996 til 2010 voru um tíu meðferðarheimili starfandi en Barnaverndarstofa lokaði flestum þeirra og árið 2010 voru aðeins þrjú heimili eftir: Laugaland í Eyjafjarðarsveit fyrir stúlkur, Háholt í Skagafirði fyrir erfiða stráka með fjölþættan vanda og Lækjarbakki á Suðurlandi fyrir bæði kynin.
„Dagurinn sem átti að vera fullur af gleði hlaðinn nístandi sorg“
Katrín Ingvadóttir, móðir Geirs Arnar Jacobsen sem lést þann 19. október í eldsvoða á Stuðlum, segir andlát hans á ábyrgð ráðamanna landsins. Geir hefði orðið átján ára og þar með lögráða.