
Umhverfismál

Umhverfismál snerta okkur öll
Almenningur hér á landi lítur ekki á Ísland sem brautryðjanda á alþjóðavettvangi á sviði loftslagsmála ef marka má nýlega könnun Gallup.

Markvissar aðgerðir nauðsynlegar til að draga úr plastmengun
Íslensk stjórnvöld þurfa að fara í markvissari aðgerðir til að draga úr plastmengun hafsins. Þetta sýna niðurstöður meistaraverkefnis í opinberri stjórnsýslu en þar er mælt með því að stjórnvöld setji reglur sem banni innflutning á vörum sem innihalda örplast.

Neysluvatnið öruggt og ekki þörf á að sjóða það
Samstarfsnefnd um sóttvarnir telur ekki þörf á að sjóða vatn eða grípa til annarra sérstakra varúðarráðstafana eftir að jarðvegsgerlar fundust í drykkjarvatni höfuðborgarsvæðisins.

Allt í lagi að drekka allt vatn á höfuðborgarsvæðinu
Ólöf Snæhólm upplýsingafulltrúi hjá Veitum ítrekar að engin hætta sé á ferðum.

Fresta máli um nýjar vindmyllur
Sveitarstjórn Rangárþings ytra hefur orðið við beiðni Steingríms Erlingssonar í Biokraft og frestað til næsta fundar að taka endanlega afstöðu til beiðni hans um uppsetningu tveggja nýrra vindmylla í Þykkvabæ.

Jarðvegsgerlar í neysluvatni á Seltjarnarnesi
Mælst hefur fjölgun jarðvegsgerla í kalda vatninu á Seltjarnarnesi eins og í sumum hverfum í Reykjavík.

Jarðvegsgerlar í kalda vatninu í Reykjavík
Í varúðarskyni mælir Heilbrigðiseftirlitið með því að neysluvatn í vissum hverfum borgarinnar sé soðið ef um neytendur er að ræða sem eru viðkvæmir t.d. með lélegt ónæmiskerfi, ungabörn, aldraðir eða fólk með undirliggjandi sjúkdóma.

Óttast spjöll og kærðu leyfi fyrir línulögn
Hraunavinir, Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands og eigendur Selskarðs hafa kært framkvæmdaleyfi vegna lagningar Lyklafellslínu. Fjögur sveitarfélög gefið Landsneti grænt ljós og stefnt að útboði.

Betri loftgæði, líka fyrir ökumenn
Samkvæmt niðurstöðum belgískrar rannsóknar, sem kynnt var árið 2017, hefur bílamengun verst áhrif á heilsu þeirra sem í bílunum sitja.

Vistvænir bílar slá í gegn hjá Íslendingum
Tengiltvinnbíllinn Mitsubishi Outlander PHEV varð næst mest seldi bíll ársins í fyrra.

Fær ekki hærri vindmyllur
BioKraft óskaði eftir því að taka vindmyllur sínar tvær niður af stöplunum og koma fyrir tveimur nýjum turnum með aflmeiri spöðum sem ná í um 100 metra hæð.

Telja flugelda hafa orsakað sinubruna við Skógafoss
Landverði Umhverfisstofnunar á Suðurlandi brá í brún þegar hann mætti aftur til starfa á nýju ári. Í eftirlitsferð við Skógafoss blasti við sviðin hlíð austan megin við fossinn.

Svifryk í Reykjavík yfir heilsuverndarmörkum
Styrkur svifryks fer hækkandi í Reykjavík og má búast við að svo verði fram eftir degi. Þau sem eru viðkvæm fyrir ryki ættu að forðast göngur í nánd við umferðargötur.

Leyfi fyrir auknu fiskeldi á Vestfjörðum
Umhverfisstofnun hefur veitt Fjarðalaxi og Arctic Sea Farm starfs- og rekstrarleyfi fyrir fiskeldi í Patreksfirði og Tálknafirði.

Astmasjúkir vilja að blási vel um áramót
Á fyrstu klukkutímum ársins 2017 mældist svifryksmengun á Grensásvegi 29-falt yfir heilsuverndarmörkum. Mengunin var rúm 1.450 míkrógrömm á rúmmetra en heilsuverndarmörk eru 50 míkrógrömm.

Djákni hefur ekki trú á vinsælli plastsuðu
Bók um eldunaraðferðina "sous vide“ er uppseld hjá útgefanda og tæki til plastsuðunnar voru vinsæl jólagjöf. Matgæðingar eru þó ekki á eitt sáttir um ágæti þessa og Guðmundur Brynjólfsson djákni telur skammlífa bólu á ferðinni.

Annatími hjá sorphirðufólki: Fólk hvatt til að flokka gjafapappír, plastumbúðir og krullubönd
Snemma í fyrramálið verður byrjað að losa sorptunnur borgarbúa eftir jólin.

Ráðast gegn losun koltvísýrings með hlutafjáraukningu upp á 1,5 milljarð
Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Carbon Recycling International hyggst auka hlutafé sitt um 1,5 milljarða árið 2018. Stefnan er að draga úr losun koltvísýrings og nýta strandað vetni eða raforku til framleiðslu á metanóli í Evrópu og Kína.

Fyrsta fiskiskip landsins sem knúið er af rafmótor sigldi til Reykjavíkur
Nýtt línu- og netaskip útgerðarinnar Stormur Seafood er fyrsta fiskiskipið á Íslandi sem drifið er af rafmótor.

Orri Páll og Sif aðstoða Guðmund
Orri Páll Jóhannsson og Sif Konráðsdóttir hafa verið ráðin aðstoðarmenn Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra.

Ráðherra hittir Mývetninga
"Þetta er áríðandi mál og á dagskránni að hitta Mývetninga,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra um fyrstu skref varðandi vanda Mývetninga í fráveitumálum.

Gætu knúið varmadælu beint fyrir framan ráðhús bæjarins
Snæfellsbær hefur, í samstarfi við Ræktunarsamband Flóa og Skeiða, borað tilraunaholu til þess að kanna jarðlög fyrir framan ráðhús bæjarins. Borunin leiðir í ljós að nægur hiti finnst í jörðinni til þess að knýja varmadælu.

Óþefur frá moltugerði að angra Hafnfirðinga
Íbúar á Völlunum í Hafnarfirði kvarta undan mikilli ólykt sem stundum leggur af moltugerð Gámaþjónustunnar. Heilbrigðiseftirlitið þrýstir á úrbætur og framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir unnið að því að finna ásættanlegar lau

Hvernig er hægt að halda umhverfisvænni jól?
Magn heimilisúrgangs er nátengt neyslu okkar og því er gott að spyrja sig hvað við getum gert til að minnka eigin úrgang. Öll neysla hefur neikvæð umhverfisáhrif og við getum gert ýmislegt til að minnka óþarfa neyslu í kringum jólin.

Sýni gát við Hverfisfljót
Umhverfis- og náttúrverndarnefnd Skaftárhrepps vísar til ákvæðis í náttúrverndarlögum um að Skaftáreldahraun skuli verndað sem hraun frá nútíma í umsögn til Skipulagsstofnunar vegna virkjunar í Hverfisfljóti.

Björt tók tillit til sjónarmiða Landsvirkjunar við friðunina
Hið nýja friðland Þjórsárvera er eilítið minna en fyrirhugað var fyrir fjórum árum. Mannvirki Landsvirkjunar í austurhluta þess eru nú fyrir utan svæðið og Landsvirkjun hefur ekkert út á friðunina að setja.

Friðland Þjórsárvera fjórfaldað að stærð
Friðlandið í Þjórsárverum verður stækkað í dag. Verður það gert með því að umhverfis- og auðlindaráðherra undirritar auglýsingu þess efnis. Hið nýja friðland verður tæpir 1.563 ferkílómetrar að stærð.

Vestfirðingar fjölmenna í íþróttahús til að ræða umdeilda virkjun, veg og sjókvíaeldi við ráðherra
Í tilkynningunni kemur fram að öll verkefnin sæta ýmist harðri gagnrýni, þar sem þess er jafnvel krafist að þau verði slegin út af borðinu, eða eru sífellt tafin um framkvæmdaleyfi þrátt fyrir eðlilegt ferli innan stjórnsýslunnar og löngu tímabær framlög á vegaáætlun.

Um fjórðungur skólps óhreinsaður
Árið 2014 bjó um fjórðungur landsmanna ekki við neina skólphreinsun þrátt fyrir að öll þéttbýlissvæði hafi átt að vera komin með fullnægjandi skólphreinsun í lok árs 2005.

Bjóða fjölnota poka fyrir plastpoka
Fyrir hverja þrjá plastpoka sem fólk skilar í verslanir Samkaupa fær viðkomandi einn fjölnota poka.