Haraldur Guðmundsson

Allt þetta á einum degi?
Það var í nógu að snúast hjá starfsmönnum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins síðasta miðvikudag. Þeir þurftu þá að bregðast við tveimur fréttatilkynningum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) og birta úrskurð um umdeilda ákvörðun sem Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hafði tekið átta mánuðum áður.

Höfum við efni á afsláttunum?
Fjárfestingarsamningar stjórnvalda um ívilnanir til nýfjárfestinga hafa verið talsvert til umræðu að undanförnu. Á fyrstu sex mánuðum ársins voru þrír slíkir samningar undirritaðir. Þeir fela í sér afslætti af opinberum gjöldum og sköttum, opinbera aðstoð upp á fleiri milljarða króna, til tveggja fyrirtækja sem stefna að útflutningi á kísilmálmi og líftæknifyrirtækis sem vill vinna og flytja út efni úr örþörungum.

Takk fyrir stuðninginn
Um miðjan desember á síðasta ári stefndi í dræma sölu á fatnaði fyrir jólin. Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ), benti þá á að fataverslun hafði dregist töluvert saman. Hann sagði mikilvægt að stjórnvöld sköpuðu hér samkeppnishæf skilyrði og næðu viðskiptunum heim. Í viðtali í fréttum RÚV nefndi hann þrjár ástæður fyrir samdrættinum; háa tolla, verslunarferðir Íslendinga til útlanda og aukna netverslun við útlönd.

Stöðvum landflótta vits og strits
Fjölmiðlar hafa sagt fjölmargar fréttir af íslenskum fyrirtækjum sem hafa hrakist úr landi vegna gjaldeyrishaftanna. Stjórnendur fyrirtækjanna hafa þá lýst því hversu erfitt það er að lokka erlenda fjárfesta hingað til lands. Þeir vilji ekki festast með peningana sína á eyju sem er umlukin girðingu gjaldeyrishafta. Í sumum tilvikum eru höfuðstöðvarnar fluttar úr landi. Í öðrum er öll starfsemin flutt eða seld erlendum aðilum.

Ekkert nema froða
Fyrir sirka níu árum síðan urðum við félagarnir í vinahópnum okkur úti um bjórkút og gamla bjórdælu. Úr varð ágætis partí. Þegar húsið var farið að fyllast kom í ljós að dælan virkaði ekki sem skyldi. Við áttum nóg af bjór en komum honum ekki á leiðarenda í glær plastglös gestanna. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fengu þeir nánast ekkert annað en hnausþykka og hvíta froðu.


Hvenær fáum við hreindýrabjór?
Laugardaginn 1. mars næstkomandi verða liðin tuttugu og fimm ár síðan sala á bjór var heimiluð í verslunum ÁTVR og á veitingastöðum. Margt hefur breyst á þeim tíma. Rótgróin fyrirtæki keppa nú við nýja kynslóð örbruggara sem sumir hverjir hafa náð góðum árangri á tiltölulega stuttum tíma.