EM 2016 í Frakklandi

Van Persie á krísufundi með Hiddink eftir tapið gegn Íslandi
Landsliðsþjálfari Hollands heimsótti framherjann í Manchester.

Lagerbäck tók þrjú met af Gauja Þórðar
Lars Lagerbäck á nú öll helstu metin yfir besta árangur íslenskra karlalandsliðsþjálfara í fótbolta. Hann tók þrjú af Guðjóni Þórðarsyni á dögunum.

Vorum verstir á Norðurlöndunum í júní 2012 en nú erum við bestir
Íslenska fótboltalandsliðið hækkaði sig um sex sæti á nýjum styrkleikalista FIFA og hefur farið upp um 76 sæti á listanum síðan Lars Lagerbäck tók við því fyrir 34 mánuðum. Ísland er nú í 28. sæti listans og ofar en allar hinar Norðurlandaþjóðirnar.

Ísland besta Norðurlandaþjóðin | Heimir: Þú segir mér fréttir
Landsliðsþjálfarinn Heimir Hallgrímsson hafði ekki fengið fréttir af nýjum styrkleikalista FIFA þegar Vísir hafði samband í morgun.

Íslendingar á Jótlandi að safna í rútuferð á landsleikinn í Tékklandi
Íslenska fótboltalandsliðið er að fara spila risastóran leik í næsta mánuði þegar liðið mætir Tékklandi í undankeppni EM en þetta er uppgjör tveggja liða sem hafa unnið þrjá fyrstu leiki sína í riðlinum.

Owen: Ekkert til sem heitir að brenna út í boltanum
Michael Owen hefur blandað sér aðeins inn í umræðuna um fræga þreytu Liverpool-mannsins Raheem Sterling. Enskir fjölmiðlar hafa verið mjög uppteknir af málinu síðan að Sterling byrjað á bekknum hjá enska landsliðinu fyrr í þessari viku eftir að hafa kvartað undan þreytu.

„Skítt með það - förum á pöbbinn“
Arnór Smárason og Guðlaugur Victor Pálsson lýsa stemningunni í íslenska landsliðinu áður en Lars Lagerbäck tók við.

Tvisvar rekinn úr starfinu en sagði nú sjálfur upp
Victor Piturcas er óvænt hættur með landsliðsþjálfari Rúmena en rúmenska landsliðið hefur byrjað undankeppni EM 2016 vel og er með sjö stig af níu mögulegum eftir þrjá leiki.

Miðinn á Tékkaleikinn kostar 6000 krónur hjá KSÍ
Næsti leikur íslenska karlalandsliðsins í undankeppni EM 2016 verður í Tékklandi 16. nóvember en þá mætast efstu lið riðilsins sem bæði hafa unnið þrjá fyrstu leiki sína. Það er hægt að kaupa miða á leikinn í gegnum KSÍ.

Berti Vogts hættur með landslið Aserbaídsjan
Berti Vogts, fyrrum landsliðsþjálfari Skotlands og Þýskalands, er nú einnig orðinn fyrrum landsliðsþjálfari Aserbaídsjan.

Stemningin á Laugardalsvelli verður seint toppuð
Trausti Gylfason hefur birt myndband sem sýnir stuðið í seinni hálfleik þegar stuðningsmenn í stúkunum tveimur kölluðust á.

Platini: Hvað ef að þetta hefði verið sprengja?
Michel Platini, forseti UEFA, Knattspyrnusambands Evrópu, hefur tjáð sig um aðstæðurnar sem sköpuðust á Partizan-vellinum í Belgrad á þriðjudagskvöldið þegar Martin Atkinson varð að flauta af leik Serbíu og Albaníu í undankeppni EM.

Giggs finnur til með Raheem Sterling
Ryan Giggs segist auðveldlega geta sett sig í spor Liverpool-mannsins Raheem Sterling sem hefur kvartað yfir þreytu vegna mikils álags. Sterling byrjaði á bekknum hjá enska landsliðinu á móti Eistlandi í vikunni.

Íslendingar hafa aldrei byrjað betur en Þjóðverjar aldrei verr
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta hefur fyrir löngu sett met með því að vinna þrjá fyrstu leiki sína í undankeppni EM 2016 en það gengur ekki eins vel hjá heimsmeisturum Þjóðverja.

Gekk betur hjá stranga skólakennaranum en vinalega frændanum
Hollenska landsliðinu hefur gengið illa eftir að hafa náð í bronsverðlaun á HM í sumar.

Hannes einn þriggja markvarða með tandurhreint mark
Hannes Þór Halldórsson, markvörður íslenska landsliðsins í fótbolta, er einn þriggja markvarða sem hafa náð því að halda hreinu í fyrstu þremur leikjum sinna landsliða í undankeppni EM 2016.

Íslenska liðið með sama árangur og Englendingar
Íslenska fótboltalandsliðið hefur byrjað frábærlega í undankeppni EM en liðið er eins og flestir vita með fullt hús og hreint mark eftir fyrstu þrjá leikina.

Eiður Smári: Helmingslíkur á að ég haldi áfram
Rennir hýru auga til EM 2016 ef Ísland kemst á sitt fyrsta stórmót.

„Eriksen verður að taka gagnrýni“
Landsliðsþjálfari Dana segir að Christian Eriksen hafi ekki verið upp á sitt besta að undanförnu.

Bróðir forsætisráðherra Albaníu handtekinn vegna drónans
Sagður hafa stýrt drónanum úr VIP-stúkunni á vellinum.

Olsen skammaði leikmenn á blaðamannafundi
"Þessi slæma byrjun getur kostað okkur sæti á EM.“

Del Bosque: EM 2016 verður væntanlega mitt síðasta mót
Vicente del Bosque, þjálfari spænska landsliðsins í fótbolta, segir að EM 2016 verði að öllum líkindum hans síðasta stórmót með Spánverjum.

Santos: Ekki hægt að lýsa Ronaldo með orðum
Fernando Santos var skiljanlega sáttur með sinn mann eftir sigurinn á Danmörku í gær.

Eldfjalla-Gylfi gaus | Mynd
Sigur Íslands á Hollandi í gærkvöldi vakti mikla athygli, enda um óvænt úrslit að ræða.

Gylfi átti aftur mark kvöldsins á Sky | Myndband
Skoraði bæði mörkin í 2-0 sigrinum á Hollandi í gær.

Sjúkraþjálfarinn keyrði upp stemninguna í klefanum
Friðrik Ellert Jónsson var fenginn til að stýra fögnuðinum í búningsklefa íslenska landsliðsins.

Erfiðir dagar fyrir verðlaunalið HM
Öll lið hafa tapað síðustu leikjum sínum og öll með markatölunni 2-0.

Stórbættu markamet landsliðsins
Ísland hefur aldrei nokkru sinni þurft jafn fáar mínútur til að skora átta mörk í undankeppni stórmóts.

Gylfi blómstrar sem tía | Pistill
Farið yfir velgengni Gylfa Þórs Sigurðssonar á vef Sky Sports.

Sonur Gunnleifs fékk treyjuna hans Gylfa
Gunnleifur Orri er "hamingjusamasta barn í heimi,“ að sögn mömmunnar.