Bólusetningar

WHO: Dreifing bóluefna í Evrópu „óásættanlega hæg“
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) gagnrýnir harðlega bólusetningar í Evrópu, sem stofnunin segir ganga „óásættanlega hægt.“ Stofnunin hefur áhyggjur af þróun kórónuveirufaraldursins í álfunni.

Bólusettur Íslendingur smitaðist innanlands
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir ekki rétt að tveir bólusettir einstaklingar sem greinst hafa með breska afbrigði kórónuveirunnar hér á landi hafi borið veiruna með sér til landsins. Þá segir hann von á 120 þúsund skömmtum af bóluefni frá Pfizer í maí og júní og beðið er eftir afhendingaráætlun frá fleiri framleiðendum.

Klúður í verksmiðju tefur bóluefni Johnson & Johnson
Um fimmtán milljónir skammta af bóluefni Johnson & Johnson gegn kórónuveirunni eru sagðir hafa eyðilagst þegar starfsmenn í verksmiðju í Baltimore rugluðu saman innihaldsefnum fyrir nokkrum vikum. Klúðrið er sagt tefja afhendingu á bóluefninu.

Tveir bólusettir greinst með breska afbrigðið á Íslandi
Tvö tilvik hafa komið upp þar sem bólusettir einstaklingar hafa greinst með breska afbrigði kórónuveirunnar á Íslandi.

Bóluefni fyrir 193 þúsund fyrir júnílok
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra gerir bólusetningar, nýjar reglur á landamærum og stöðu mála í kórónuveirufaraldrinum að umræðuefni í því sem mætti kalla páskapistli sínum á Facebook. Henni telst til að í lok júní verði komið hingað til lands bóluefni fyrir 240 þúsund manns.

Orsakasamband ekki sannað en hugsanlegt
Orsakasamband milli bóluefnis AstraZeneca og blóðtappa í þeim sem þegið hafa bóluefnið hefur ekki verið sannað, en það er hugsanlegt.

Bóluefni Pfizer með fullkomna virkni hjá tólf til fimmtán ára
Forsvarsmen Pfizer segja nýjustu rannsóknir sýna að bóluefni fyrirtækisins gegn Covid-19 sé 100 prósent virkt þegar það er gefið börnum á aldrinum 12 til 15 ára og framkalli öflugt ónæmisviðbragð.

Hætta notkun bóluefnis AstraZeneca fyrir yngra fólk
Þýsk yfirvöld hafa ákveðið að gefa fólki yngra en sextugu ekki bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni vegna einstakra tilfella blóðtappa sem tilkynnt hefur verið um í fólki sem hefur fengið efnið. Lyfjastofnanir Evrópu og Bretlands hafa báðar mælt með áframhaldandi notkun bóluefnisins.

Það þarf að skima alla sem koma til landsins, líka þá sem eru bólusettir
Bólusetningar vernda gegn sýkingu af völdum SARS-COVID-19 veirunnar sem veldur COVID-19 sjúkdómi og vernd þeirra er almennt betri gegn alvarlegum sjúkdómi, sjúkrahúsinnlögn og dauða.

Von á bóluefni Janssen til Evrópu þann 19. apríl
Bóluefni Janssen gegn Covid-19 fer í dreifingu í Evrópu þann 19. apríl næstkomandi að sögn Johnson & Johnson, móðurfyrirtækis Janssen. Bóluefnið hefur þá sérstöðu að ekki þarf tvo skammta af efninu svo það gefi fulla vörn.

Virkni bóluefna Moderna og Pfizer sögð 90%
Rannsókn á framlínustarfsfólki í Bandaríkjunum bendir til þess að bóluefni Moderna og Pfizer hafi 90% virkni í að koma í veg fyrir kórónuveirusmit. Niðurstöður Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna (CDC) eru sagðar í samræmi við þær rannsóknir sem lyfjafyrirtækin gerðu með bóluefnin.

Ekki verið ákveðið hvort starfsfólk Landspítala fái seinni skammtinn
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort þeir starfsmenn Landspítalans sem hafa fengið fyrri skammt AstraZeneca bóluefnisins fái þann seinni.

Kári ræðir stöðu faraldursins og bóluefni á Sprengisandi
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, verður gestur Kristjáns Kristjánssonar á Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Farið verður yfir stöðu kórónuveirufaraldursins, bóluefni og skort á þeim sem og mismunandi afbrigði veirunnar.

Skora á Johnson að deila bóluefnum með fátækari þjóðum
Góðgerðafélög á borð við Save the Children og Wellcome Trust hafa skorað á Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, að greina frá því hversu margir skammtar af bóluefnum munu fara til fátækari þjóða í ljósi þess að Bretar munu ekki nýta alla þá skammta sem hafa verið keyptir.

Heilsugæslunni tókst að bólusetja fleiri en voru boðaðir
Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu tókst að bólusetja 4400 manns fædda árin 1946-1949 í dag. Fólk var afar ánægt með að fá loks bólusetningu og fáir sem gerðu athugasemd við að bólusett var með bóluefni Astra Zeneca.

Boða hraðari afhendingu bóluefna í Evrópu
Búist er við því að framleiðslugeta bóluefnaframleiðenda í Evrópu aukist á næstunni með opnun nýrra framleiðslustaða. Þetta muni skila sér í hraðari afhendingu bóluefna í álfunni.

Þakklátur Kári segir hvorki þurfa að óttast bóluefni AstraZeneca né Sputnik V
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, var meðal þeirra sem fengu bólusetningu við Covid-19 nú síðdegis. Um fjögur þúsund manns var boðið í Laugardalshöllina í dag þar sem notast var við bóluefni AstraZeneca.

Starfsfólk hjúkrunarheimila hálfbólusett: Herða reglur til að standa vörð um þjónustuna
Ástæða þess að reglur hafa verið hertar á hjúkrunar- og dvalarheimilum, meðal annars hvað varðar heimsóknir, er sú að starfsmenn hafa almennt ekki fengið nema einn bóluefnaskammt.

AstraZeneca verði að standa við gerða samninga um afhendingu
Ursula Von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir að lyfjaframleiðandinn AstraZeneca verði að standa við gerða samninga um afhendingu bóluefnis til Evrópuríkjanna áður en hægt verður að heimila útflutning á bóluefni þeirra sem framleitt er í Evrópu.

Tvöfaldaði bólusetningarmarkmiðið og staðfesti framboð 2024
Joe Biden Bandaríkjaforseti tilkynnti í dag að ríkisstjórn hans hygðist útdeila 200 milljón bóluefnisskömmtum á fyrstu hundrað dögum hans í embætti. Það eru tvöfalt fleiri skammtar en Biden hafði áður lofað að yrðu gefnir á sama tímabili.

Telur ekki að börn þurfi að leggjast frekar inn nú
Barnasmitsjúkdómalæknir segist ekki eiga von á að börn þurfi að leggjast frekar inná spítala en áður þó þau hafi fengið breska afbrigði veirunnar.

Um ESB, bóluefni og útflutningsbann
Byrjum á byrjuninni. Væntanlegt útflutningsbann á bóluefni frá ESB hefur vakið upp hörð viðbrögð. Og þeir íslensku ráðamenn, sem öllu jöfnu hafa verið mótfallnir inngöngu Íslands í sambandið, lýstu vandlætingu sinni samdægurs á samfélagsmiðlum: Hið stóra grimma Evrópusamband væri búið að setja litla klakann okkar á „bannlista“!

Útlit fyrir 3.500 skammta frá Janssen í apríl
Norsk stjórnvöld gera ráð fyrir að fá 52 þúsund skammta af bóluefni Janssen við Covid-19 í apríl. Sé talan yfirfærð á Ísland má áætla að um 3.500 skammtar af bóluefninu berist hingað í næsta mánuði. Ríkin fá efnið í gegnum samstarf Evrópusambandsins um bóluefnakaup og miðast dreifing við höfðatölu.

Fólki fætt 1948 og fyrr boðið í bólusetningu á morgun
Á morgun, föstudaginn 26. mars mun heilsugæslan bjóða öllum íbúum á höfuðborgarsvæðinu sem eru fæddir 1948 eða fyrr að koma í Covid-19 bólusetningu í Laugardalshöll.

Sextán ára og yngri mega ekki koma í heimsókn
Heimsóknir barna undir 16 ára aldri eru nú óheimilar á Landspítalanum, nema í sérstöku samráði við stjórnendur deilda. Þá er ekki gert ráð fyrir að konum sé fylgt í fósturgreiningu nema með samþykki stjórnenda fósturgreiningadeildar.

Ísland gæti notið góðs af útflutningshömlum ESB
Beri nýjar útflutningshömlur Evrópusambandsins á bóluefni gegn kórónuveirunni tilætlaðan árangur gæti Ísland notið ávaxta þess. Íslensk stjórnvöld eru þó ósátt við að í reglugerð hafi EFTA-ríki eins og Ísland verið sögð falla undir mögulegar takmarkanir.

„Nei, nú ætla ég að segja stopp“
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra taldi ástæðu til að lesa yfir Frosta Logasyni á öldum ljósvakans í morgun.

Ekki stendur til að byrja að bólusetja börn
Ekki stendur til að breyta forgangsröðun í bólusetningu við Covid-19 hér á landi eða hefja bólusetningar á börnum. Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis á upplýsingafundi almannavarna og landlæknis í dag.

AstraZeneca „gott, virkt og öruggt“ fyrir 70 ára og eldri
Það verður engin meiriháttar röskun á bólusetningaráætlun yfirvalda vegna AstraZeneca, segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Eina breytingin er sú að heilbrigðisstarfsmenn sem eru yngri en 65 eða 70 ára fá önnur bóluefni.

Tuttugu greinst smitaðir í tengslum við klasasmit og um 500 í sóttkví
Enn hefur ekki tekist að rekja klasasmit í fjölskyldu á höfuðborgarsvæðinu en um 500 manns hafa þurft að fara í sóttkví vegna smitsins og um 20 greinst jákvæðir, þar af voru sex utan sóttkvíar.