Eldgos og jarðhræringar „
88 89 90 91 92 93 94 95 96 … 131 ›
„Vonandi fáum við einhverja viðvörun“ BBC fjallar á vef sínum í dag um jarðskjálftahrinuna sem verið hefur viðvarandi á Reykjanesskaga síðastliðnar þrjár vikur. „Ísland skelfur vegna meira en 50 þúsund jarðskjálfta á þremur vikum“ er yfirskrift umfjöllunarinnar. Innlent 17.3.2021 09:13
„Rólegasta nóttin síðan hrinan byrjaði“ Rúmlega 400 skjálftar hafa mælst á Reykjanesskaganum frá miðnætti. Þar af hafa þrír þeirra verið yfir þremur að stærð, sá stærsti varð klukkan 02:37 og var 3,3 að stærð. Upptök hans voru 1,9 kílómetra suður af Fagradalsfjalli. Innlent 17.3.2021 06:30
Auðveldara fyrir kvikuna að ferðast lárétt heldur en lóðrétt enn sem komið er Skýr merki eru á jarðskorpunni um jarðskjálftann við Grindavík á sunnudag. Jarðeðlisfræðingur telur kviku vera á þónokkurri hreyfingu í kvikuganginum og færist nú aftur nær Keili. Innlent 16.3.2021 18:45
Líklegasta gossvæðið færst frá Nátthaga að Fagradalsfjalli Líklegasta gossvæðið á Reykjanesskaga hefur færst aftur frá Nátthaga norðaustur eftir kvikuganginum að norðausturhluta Fagradalsfjalls. Þetta er niðurstaða vísindaráðs almannavarna og byggist á greiningu á skjálftavirkni síðasta sólarhringinn, úrvinnslu úr GPS mælingum og gervihnattamyndum. Innlent 16.3.2021 18:16
Hætta á ferðum víðar en í fjalllendi Yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum hvetur göngufólk til að gæta varúðar í fjalllendi á Reykjanesskaga en grjóthrun hefur orðið í kjölfar öflugra jarðskjálfta á Reykjanesskaga undanfarna daga. Innlent 16.3.2021 15:45
Jarðhræringar á Reykjanesskaga: Skýr merki um kvikuflæði Þrátt fyrir minni og færri jarðskjálfta á Reykjanesskaga frá miðnætti eru skýr merki um kvikuflæði við Fagradalsfjall. Þetta sýna nýjar gervihnattamyndir af svæðinu. Jarðeðlisfræðingur segir stund milli stríða í jarðskjálftahrinunni. Innlent 16.3.2021 14:17
Guardian fjallar um skjálftana: „Ég er ekki hrædd, bara þreytt“ Fjallað er um jarðskjálftavirknina á Reykjanesskaga á vef breska blaðsins Guardian en á morgun eru þrjár vikur síðan skjálfti að stærð 5,7 varð í grennd við fjöllin Keili og Fagradalsfjall. Innlent 16.3.2021 08:06
Enginn skjálfti yfir þremur í nótt Frá miðnætti hafa mælst rúmlega 600 jarðskjálftar á Reykjanesskaganum en enginn þeirra hefur verið stærri en þrír. Innlent 16.3.2021 06:23
Skjálfti að stærð 4,3 á ellefta tímanum Skjálfti að stærðinni 4,3 reið yfir á Reykjanesskaga klukkan 22:32 í kvöld. Hann átti upptök sín við norðaustanvert Fagradalsfjall. Þetta er stærsti skjálftinn sem riðið hefur yfir síðan á þriðja tímanum í gær, þegar skjálfti að stærð 5,3 varð. Innlent 15.3.2021 23:08
Landsmenn hafa boðið Grindvíkingum sumarbústaði til jarðskjálftahvíldar Bæjarstjóri Grindavíkur segir að fjöldi Grindvíkinga hafi flúið bæinn til þess að hvíla sig á jarðskjálftunum. Margir hafi ekki fengið nætursvefn svo dögum skipti og biðlar hann til hóteleigenda að bjóða Grindvíkingum hagstæð tilboð svo þeir komist burt. Innlent 15.3.2021 20:01
„Verðum að gera ráð fyrir eldgosi á meðan þetta heldur áfram“ Benedikt Ófeigsson, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir að kvikugangurinn undir Fagradalsfjalli hafi nálgast yfirborð jarðar örlítið síðan á föstudag. Enn megi búast við eldgosi á meðan jarðskjálftavirkni heldur áfram. Innlent 15.3.2021 18:51
Staða fatlaðs fólks í hamförum Margir Íslendingar hafa eflaust síðustu vikur og mánuði leitt hugann að hamförum og neyðarástandi, eftir langan tíma með COVID-19 heimsfaraldrinum og nú nýverið vegna jarðskjálfta og yfirvofandi eldgoss. Skoðun 15.3.2021 17:01
Fimmtíu þúsund skjálftar á Reykjanesi á tuttugu dögum Hátt í fimmtíu þúsund jarðskjáftar hafa riðið yfir á Reykjanesskaga frá upphafi hrinunnar 24. febrúar. Þar af hafa sex þeirra verið fimm að stærð eða stærri, sá stærsti 5,7 fyrsta dag hrinunnar. Innlent 15.3.2021 16:03
Upptökur úr Nettó sýna þegar stóri skjálftinn reið yfir Allt lék á reiðiskjálfi í verslun Nettó í Grindavík í gær þegar stór jarðskjálfti, 5,4 að stærð, reið yfir. Líkt og sést á upptökum úr öryggismyndavélum, sem horfa má á hér fyrir neðan, hrundu vörur úr hillum og viðskiptavinum var brugðið. Innlent 15.3.2021 13:40
Þúsund skjálftar frá miðnætti Um eitt þúsund skjálftar hafa mælst á Reykjanesskaganum frá miðnætti í nótt. Bjarki Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að mesta skjálftavirknin sé í sunnanverðu Fagradalsfjalli eins og verið hefur undanfarna daga þótt hún hafi fært sig aðeins nær Nátthaga um helgina. Innlent 15.3.2021 11:02
Tiltölulega róleg nótt á Reykjanesskaga Nóttin var tiltölulega róleg á Reykjanesskaga miðað við hvernig verið hefur undanfarið sé litið til fjölda skjálfta frá miðnætti og þess hversu margir þeirra voru stærri en þrír. Innlent 15.3.2021 06:27
Mikið grjóthrun í hlíðum vegna skjálftans Mikið grjóthrun varð í hlíðum á Reykjanesskaga þegar skjálfti að stærð 5,4 reið yfir á þriðja tímanum í dag. Skjálftinn var nokkuð snarpur og fannst hann vel víða um land, þar á meðal norður á Sauðárkróki og í Vestmannaeyjum. Innlent 14.3.2021 22:04
Íbúar orðnir langþreyttir á skjálftunum: „Maður vaknar bara á hverri einustu nóttu“ Jarðskjálftinn sem reið yfir suðvesturhorn landsins í dag er sá næst öflugasti í skjálftahrinunni sem staðið hefur yfir í rúmar tvær vikur. Hann fannst vel á öllum Reykjanesskaganum og alla leið á Sauðárkrók en einnig í Vestmannaeyjum. Hann mældist 5,4 að stærð og var um 2,5 kílómetra vestur af Nátthaga. Innlent 14.3.2021 19:35
Bílasalur Björgunarsveitarinnar Þorbjörns lék á reiðiskjálfi Það lék allt á reiðiskjálfi í bílasal Björgunarsveitarinnar Þorbjörns á þriðja tímanum í dag þegar jarðskjálfti af stærðinni 5,4 reið yfir suðvesturhorn landsins. Innlent 14.3.2021 18:05
Vörur hrundu úr hillum þegar jarðskjálftinn reið yfir Vörur hrundu úr hillum verslunar Nettó í Grindavík þegar heldur kröftugur skjálfti, sem var 5,4 að stærð, reið yfir klukkan 14:15 í dag. Skjálftinn átti upptök sín um fimm kílómetra suðvestur af Fagradalsfjalli. Innlent 14.3.2021 16:11
Kýs eldgos fram yfir þessa stöðugu skjálfta „Þetta var nú bara töluverður hávaði og högg eins og það væri keyrt á húsið,“ segir Bergur Brynjar Álfþórsson, formaður bæjarráðs Voga á Vatnsleysuströnd. Vogamenn hafa ekki farið varhluta af skjálftahrinunni síðustu vikur en Bergur segir skjálftann í dag þann öflugasta sem hann hefur fundið hingað til. Skjálftinn mældist 5,4 að stærð. Innlent 14.3.2021 16:03
„Það venst ekkert að upplifa þessa stóru skjálfta“ Fannar Jónasson, bæjastjóri í Grindavíkurbæ, segir skjálftann sem reið yfir Reykjanesskaga klukkan 14:15 í dag og var 5,4 að stærð hafa fundist einkar vel í bænum. Mikil skjálftavirkni hefur verið á Reykjanesskaga í yfir tvær vikur. Mannlífið gangi þó svo til sinn vanagang, þó mörgum íbúum verði ekki um sel þegar stærri skjálftarnir ríða yfir. Innlent 14.3.2021 15:32
„Auknar líkur á eldgosi“ Líkur á eldgosi halda áfram að aukast, að sögn Kristínar Jónsdóttur, náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Skjálftavirknin hefur verið að færast til suður en skjálftinn fannst meðal annars á Sauðárkróki. Innlent 14.3.2021 15:05
„Með því sterkara sem hefur fundist“ „Þetta var svona með því sterkara sem hefur fundist. Hann var langur og það hristist vel hérna,“ segir Bogi Adolfsson, formaður björgunarsveitarinnar Þorbjörns í Grindavík. Innlent 14.3.2021 14:36
Suðvesturhornið nötraði þegar skjálfti 5,4 að stærð reið yfir Afar kröftugur skjálfti varð klukkan 14:15 á Reykjanesskaga, þar sem mikil skjálftavirkni hefur verið síðustu daga og vikur. Innlent 14.3.2021 14:16
Skjálfti fimm að stærð sunnan við Fagradalsfjall Snarpur jarðskjálfti varð klukkan 12:34. Samkvæmt Veðurstofu Íslands var skjálftinn fimm að stærð og átti upptök sín í Sunnanverðu Fagradalsfjalli. Innlent 14.3.2021 12:36
Stærsti skjálftinn í nótt 4,2 að stærð Jarðhræringar á Reykjanesskaga héldu áfram í nótt og var stærsti jarðskjálftinn 4,2 að stærð þegar klukkuna vantaði tuttugu mínútur í fimm í morgun. Alls mældust sjö skjálftar þrír eða stærri eftir miðnætti í nótt. Innlent 14.3.2021 07:24
Rúmlega 1900 skjálftar hafa mælst frá miðnætti Frá því á miðnætti í dag hafa rúmlega 1900 jarðskjálftar mælst á Reykjanesskaga. Virknin var mest við Fagradalsfjall eins og undanfarna daga en nokkrir skjálftanna áttu upptök sín suður af Keili. Innlent 13.3.2021 19:32
Ekki hægt að opna gamla Suðurstrandarveg að fullu vegna grjóthrunshættu Bæjaryfirvöldum í Grindavík hafa borist ábendingar um að gamli Suðurstrandarvegurinn sé lokaður. Það geti skapað hættu ef það gjósi vestan við Grindavík og komi til rýmingar um Suðurstrandarveg. Atli Geir Júlusson, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs hjá bænum segir ekki hægt að opna allan veginn að svo stöddu vegna hættu á grjóthruni. Innlent 13.3.2021 13:09
Átta jarðskjálftar yfir þrír að stærð frá miðnætti Af þeim rúmlega þrjú hundruð jarðskjálftum sem hafa mælst á Reykjanes frá miðnætti hafa átta verið yfir 3,0 að stærð. Stærsti skjálftinn var 4,6 að stærð klukkan 1:34. Innlent 13.3.2021 07:18