
Ferðaþjónusta

Skálavörður í Þórsmörk hrökk upp við óboðinn gest
"Þó þetta hafi verið óþægilegt í fyrstu þá er þetta eitthvað sem maður hlær að núna og síðar meir,“ segir Eyrún Ósk Stefánsdóttir.

Sælkerahöll í Holtagörðum á næsta ári
Margir áhugasamir hafa haft samband við Reiti fasteignafélag vegna þátttöku í uppbyggingu og rekstri á nýjum veitinga- og matarmarkaði í Holtagörðum. Þetta segir Friðjón Sigurðarson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs. Friðjón segir að hægt verði að opna markaðinn í fyrsta lagi á næsta ári.

Býður upp á gistingu í mongólsku tjaldi á einkaeyju í Þjórsá
Hákon Kjalar Hjördísarson einbúi stundar sjálfsþurftarbúskap á Traustholtshólma og hefur tekið á móti ferðamönnum í allt sumar.

Erlendir ferðamenn skoða hrefnurnar og borða þær
Sú sérkennilega staða er uppi að það eru bæði hagsmunir ferðaþjónustunnar að halda hvalveiðum áfram og hætta þeim. Það eru aðallega erlendir ferðamenn sem skoða hvalina í hvalaskoðun og neyta þeirra á veitingastöðum.

Dunkin Donuts opnar í Leifsstöð: „Fyrst og fremst sorglegt“
Forstjóri Kaffitárs harmar komu kleinuhringjarisans í flugstöðina.

Bjóða upp á tjaldgistingu fyrir sautján þúsund krónur nóttina
Fjallaútsýni og grillaðstaða innifalin í verðinu.

Metfjöldi bifreiða í einum mánuði um Víkurskarð
Metfjöldi bifreiða fór yfir Víkurskarð í júlímánuði þegar ríflega hundrað þúsund ferðir voru farnar um skarðið. Valgeir Bergmann, framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga, segir þessi tíðindi ánægjuleg og geta styrkt tekjugrundvöll ganganna.

Ferðaþjónustan: Meira þarf til
Ólöf Ýrr Atladóttir ferðmálastjóri varar við að álag á samfélagið komi niður á gestrisni vorri (Fbl. 26.07.). Hún bendir á að megingagnrýni á þróun ferðaþjónustunnar varði sein viðbrögð opinberra aðila og einkageirans við álaginu. Í framhaldi af þessum orðum er vert að minnast á hugtakið þolmörk.

Óskar ráðinn framkvæmdastjóri Stjórnstöðvar ferðamála
Óskar Jósefsson var valinn úr hópi 42 umsækjenda.

Vona að ekki þurfi katastrófu til
Bandarískur maður, Fred Pinto, biðlar til íslenskra stjórnvalda að merkja betur leiðir og vegi þar sem ferðamenn fara um. Hann lenti í bílveltu á leið sinni að Reynisfjöru. Vegslóðanum þar sem slysið varð hefur nú verið lokað.

Birna á Breiðavík kom til bjargar: Tók ekki í mál að niðurbrotin hollensk ferðakona sæi enga lunda
Hollenski ferðalangurinn hafði komið stjarfur inn á Hótel Breiðavík eftir erfiðan akstur á vestfirskum fjallvegum og treysti sér ekki lengra.

Í spreng á Mývatnshringnum
Aðila sem græða á tá og fingri á ferðamönnum munar ekkert um að splæsa í nokkra kamra og halda þeim við.

Ferðasumarið á Ströndum: Þjófarnir frá Sviss létu okkur líta illa út
Í Árneshreppi á Ströndum er að finna veitingastaðinn Kaffi Norðurfjörð. Staðarhaldarar hafa lent í ýmsu á þeim tíma sem þær hafa rekið kaffihúsið.

Nýr veruleiki vegna ferðaþjónustunnar
Nú þegar ferðaþjónustan er tryggilega búin að festa sig í sessi sem ein allra mikilvægasta atvinnugrein þjóðarinnar sýnir það sig að ef vel á að vera þarf þessi atvinnugrein skýra, faglega og framsýna umgjörð ekki síður en aðrar.

Áhafnir kallaðar úr fríi til að sinna útköllum
Þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa farið í 25% fleiri útköll það sem af er ári miðað við sama tíma í fyrra.

350 verkefni á borði lögreglunnar á Suðurlandi í síðustu viku
Lögregla segir eftirlit hafa verið mjög öflugt þar sem sérstaklega var gert út á hálendið, uppsveitir Árnessýslu og á milli Kirkjubæjarklausturs og Hafnar í Hornafirði.

Ruslið eykst í takt við aukna heimagistingu
Tíu prósenta aukning er á blönduðum úrgangi í Reykjavík og tuttugu á framkvæmdaúrgangi frá því í fyrra. Fleiri ferðamenn í heimagistingu gæti verið skýring. Þó nokkrar kvartanir berast Sorphirðunni vegna yfirfullra ruslatunna.

Tjölduðu í garði læknishjónanna í Vík að þeim forspurðum
Tveir vörpulegir ferðamenn voru í fasta svefni þegar hjónin komu heim.

Welcome to Iceland: Allt á ensku í miðbænum
Flestar auglýsingar og skilti á Laugaveginum eru á ensku en margfalt fleiri enskumælandi ganga um miðbæinn en íslenskumælandi.

Erlendir túristar bókhneigðir
Fjórar af söluhæstu bókum Eymundsson síðustu viku eru á ensku og hugsaðar fyrir ferðamenn. Þessi þróun hefur verið ríkjandi í sumar.

Hafa milljarða í tekjur af ferðum um hálendið
Tekjur ferðaþjónustufyrirtækja af útivistarferðum hér á landi hafa margfaldast síðustu ár.

Fjárfestar leigja Raufarhólshelli og rukka inn
Hópur fjárfesta hefur leigt Raufarhólshelli í Þrengslum og hyggst byggja upp aðstöðu og selja ferðamönnum aðgang. Landeigendur segja verkefnið mikilvægt til að vernda umhverfi náttúruperlunnar vegna aukinnar ásóknar ferðamanna.

Heimskautsgerðið hálfbyggt er orðið glæsilegt mannvirki
Heimskautsgerðið við Raufarhöfn er orðið eitt helsta aðdráttarafl ferðamanna þótt enn vanti mikið til að ljúka gerð þessa einstaka mannvirkis.

Túristar á Íslandi straujuðu kortin fyrir 26 milljarða króna á þrjátíu dögum
Í júní komu um 187 þúsund ferðamenn til landsins um Leifsstöð.

Húsbílafólk fær athvarf á eigin stað í Gufunesi
Á föstudag var opnað tjaldstæði í Skemmtigarðinum í Grafarvogi sem er eingöngu fyrir ferðamenn á húsbílum, felli- og hjólhýsum. Framkvæmdastjóri Happy Campers fagnar nýjungunni. Þörf sé á slíkum tjaldstæðum um allt land.

Sex ára drengur steig í holu í Hveragerði og brenndist
Holan var með heitu vatni og hlaut drengurinn annars stigs bruna.

Féll að öllum líkindum 30-40 metra við Sólheimajökul
Ekki er vitað hversu alvarlega maðurinn er slasaður en hann var með meðvitund þegar björgunarlið kom á vettvang.

Þrjú útköll hjá björgunarsveitunum nánast á sama tíma
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á frá Hellu að Vík ásamt undanförum af höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út rétt fyrir klukkan tvö í dag vegna einstaklings sem lenti í slysi á Sólheimajökli.

Ferðamenn með minna á milli handanna nú
Aukning taxfree-veltu er ekki í takt við fjölgun ferðamanna hér á landi. Sterkara gengi og hækkun fasts kostnaðar, eins og ferðakostnaðar innanlands og gistingar, kemur niður á verslun. Einsleitni markaðarins er farin að segja til sín.