Helena Sverrisdóttir og Haukur Helgi Pálsson komu bæði heim úr atvinnumennsku fyrir nýlokið tímabil og í dag voru þau kosin bestu leikmenn tímabilsins í Domino´s deildunum.
Þjálfarar Íslands- og bikarmeistaranna, Finnur Freyr Stefánsson hjá KR og Ingi Þór Steinþórsson hjá Snæfelli, voru valdir þjálfarar ársins. Ingi Þór var að fá þau verðlaun þriðja árið í röð en Finnur í annað skiptið á síðustu þremur árum.
Þetta er í fjórða sinn sem Helena Sverrisdóttir er valin leikmaður ársins en aðeins Anna María Sveinsdóttir hefur fengið þau verðlaun oftar eða sex sinnum. Helena var með 24,4 stig, 13,3 fráköst og 6,8 stoðsendingar að meðaltali í leik í Domino´s deildinni á tímabilinu.
Haukur Helgi Pálsson er að vinna þessi verðlaun í fyrsta sinn en hann átti aðeins að baki einn leik í úrvalsdeild fyrir þetta tímabil. Haukur Helgi var með 17,9 stig, 7,5 fráköst og 4,3 stoðsendingar að meðaltali í leik í Domino´s deildinni á tímabilinu.
Bestu ungu leikmenn Domino´s deildanna voru valin þau Thelma Dís Ágústsdóttir úr Keflavík og Kári Jónsson úr Haukum.
Gunnhildur Gunnarsdóttir, fyrirliði Snæfells, var valin besti varnarmaður deildarinnar annað árið í röð en KR-ingurinn Darri Hilmarsson var hinsvegar kosinn besti varnarmaður Domino´s deildar karla þriðja árið í röð og hann er sá fyrsti sem nær því.
Prúðustu leikmenn Domino´s deildanna voru valin Berglind Gunnarsdóttir hjá Snæfelli og Michael Craion hjá KR. Michael Craion var einnig valinn besti erlendi leikmaðurinn þriðja árið í röð en Haiden Palmer hjá Snæfelli hlaut sú verðlaun hjá konunum.
Þau Sigtryggur Arnar Björnsson úr Skallagrími og Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir úr KR voru valin leikmenn ársins í 1. deild karla og kvenna.
Sigmundur Már Herbertsson var valinn besti dómarinn en þetta er í tíunda skiptið á ferlinum sem hann fær þessi verðlaun.
Hér fyrir neðan má sjá öll verðlaunin sem voru afhent á lokahófi KKÍ í dag. Hófið var haldið í Ægisgarði þar sem verðlaunahafar og forráðamenn liðanna komu saman.
Verðlaun á lokahófi KKÍ fyrir keppnistímabilið 2015-2016
Domino´s deild kvenna
Úrvalslið Domino´s deild kvenna 2015-16
Gunnhildur Gunnarsdóttir Snæfell - í annað skipti í liði ársins
Guðbjörg Sverrisdóttir Valurr - í fyrsta skipti
Helena Sverrisdóttir Haukar - í fjórða skipti
Sigrún Ámundadóttir Grindavík - í fimmta skipti
Bryndís Guðmundsdóttir, Snæfelli - í sjöunda skipti
Aðrir sem fengu atkvæði eftir stafrófsröð:
Berglind Gunnarsdóttir Snæfell, Ingunn Embla Kristínardóttir Grindavík, Margrét Kara Sturludóttir Stjarnan, Pálína Gunnlaugsdóttir Haukar, Ragna Margrét Brynjarsdóttir Stjarnan, Sandra Dís Þrastardóttir Keflavík og Thelma Dís Ágústsdóttir Keflavík.
Besti leikmaður Domino´s deild kvenna 2015-16
Helena Sverrisdóttir Haukar
Aðrir sem fengu atkvæði eftir stafrófsröð:
Bryndís Guðmundsdóttir Snæfell og Sigrún Ámundadóttir Grindavík
Besti þjálfari Domino´s deild kvenna 2015-16
Ingi Þór Steinþórsson Snæfell
Aðrir sem fengu atkvæði eftir stafrófsröð:
Daníel Guðmundsson Grindavík
Besti ungi leikmaður Domino´s deild kvenna 2015-16
Thelma Dís Ágústsdóttir Keflavík
Aðrir sem fengu atkvæði eftir stafrófsröð:
Dýrfinna Arnardóttir Haukar, Emelía Gunnarsdóttir Keflavík, Hrund Skúladóttir Grindavík og Sylvía Hálfdanardóttir Haukar
Besti varnarmaður Domino´s deild kvenna 2015-16
Gunnhildur Gunnarsdóttir Snæfell
Aðrir sem fengu atkvæði eftir stafrófsröð:
Helena Sverrisdóttir Haukar, Margrét Kara Sturludóttir Stjarnan, Pálína Gunnlaugsdóttir Haukar og Sigrún Ámundadóttir Grindavík
Besti erlendi leikmaður Domino´s deild kvenna 2015-16
Haiden Palmer Snæfell
Aðrir sem fengu atkvæði eftir stafrófsröð:
Karisma Chapman Valur
Prúðasti leikmaður Domino´s deild kvenna 2015-16
Berglind Gunnarsdóttir Snæfell
Aðir sem fengu atkvæði eftir stafrófsröð:
Auður Íris Ólafsdóttir Haukar og Salbjörg Sævarsdóttir Hamar
Domino´s deild karla
Úrvalslið Domino´s deild karla 2015-16
Pavel Ermolinskij KR - í fjórða skipti í liði ársins
Kári Jónsson Haukar - í fyrsta skipti
Haukur Helgi Pálsson Njarðvík - í fyrsta skipti
Helgi Már Magnússon KR - í þriðja skipti
Ragnar Nathanaelsson Þór Þ. - í annað skipti
Aðrir sem fengu atkvæði eftir stafrófsröð:
Brynjar Þór Björnsson KR, Darrel Lewis Tindastóll, Darri Hilmarsson KR, Emil Barja Haukar, Finnur Magnússon Haukar, Helgi Rafn Viggósson Tindastóll, Jón Axel Guðmundsson Grindavík, Logi Gunnarsson Njarðvík, Ómar Sævarsson Grindavík, Pétur Rúnar Birgisson Tindastóll og Ægir Þór Steinarsson KR
Besti leikmaður Domino´s deild karla 2015-16
Haukur Helgi Pálsson Njarðvík
Aðrir sem fengu atkvæði eftir stafrófsröð:
Darri Hilmarsson KR, Helgi Már Magnússon KR, Kári Jónsson Haukar og Pavel Ermolinskij KR
Besti þjálfari Domino´s deild karla 2015-16
Finnur Freyr Stefánsson KR
Aðrir sem fengu atkvæði eftir stafrófsröð:
Einar Árni Jóhannsson Þór Þ.
Ingi Þór Steinþórsson Snæfell
Ívar Ásgrímsson Haukar
José María Costa Gómez Tindastóll
Besti ungi leikmaður Domino´s deild karla 2015-16
Kári Jónsson Haukar
Aðrir sem fengu atkvæði eftir stafrófsröð:
Jón Axel Guðmundsson Grindavík
Besti varnarmaður Domino´s deild karla 2015-16
Darri Hilmarsson KR
Aðrir sem fengu atkvæði eftir stafrófsröð
Haukur Helgi Pálsson Njarðvík
Hjálmar Stefánsson Haukar
Kristinn Marinósson Haukar
Ómar Sævarsson Grindavík
Viðar Ágústsson Tindastóll
Ægir Steinarsson KR
Bestu erlendi leikmaður Domino´s deild karla 2015-16
Michael Craion
Aðrir sem fengu atkvæði eftir stafrófsröð:
Brandon Mobley Haukar
Sherrod Wright Snægell
Prúðasti leikmaður Domino´s deild karla 2015-16
Michael Craion KR
Aðrir sem fengu atkvæði eftir stafrófsröð:
Kári Jónsson Haukar og Tómas Heiðar Tómasson Stjarnan
Besti dómarinn Domino´s deildum karla og kvenna 2015-16
Sigmundur Már Herbertsson
1. deild kvenna
Úrvalslið 1. deildar kvenna 2015-16
Perla Jóhannsdóttir KR
Kristrún Sigurjónsdóttir Skallagrímur
Sólrún Sæmundsdóttir Skallagrímur
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir KR
Fanney Lind Thomas Þór Ak.
Aðrir sem fengu atkvæði eftir stafrófsröð:
Berglind Ingvarsdóttir Breiðablik, Elín Sóley Hrafnkelsdóttir Breiðablik, Heiða Hlín Björnsdóttir Þór Ak., Isabella Ósk Sigurðardóttir Breiðablik, Kristbjörg Pálsdóttir KR, Rósa Björk Pétursdóttir Fjölnir, Soffía Rún Skúladóttir Njarðvík, Telma Lind Ásgeirsdóttir Breiðablik og Þorbjörg Friðriksdóttir KR
Besti leikmaður deildar kvenna 2015-16
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir KR
Aðrir sem fengu atkvæði eftir stafrófsröð:
Kristrún Sigurjónsdóttir Skallagrímur og Sólrún Sæmundsdóttir Skallagrímur
Besti þjálfari deildar kvenna 2015-16
Darri Atlason KR
Aðrir sem fengu atkvæði eftir stafrófsröð:
Friðrik Ingi Rúnarsson Njarðvík
Manuel Angel Rodriguez Escudero Skallagrímur
Besti ungi leikmaður deildar kvenna 2015-16
Isabella Ósk Sigurðardóttir Breiðablik
Aðrir sem fengu atkvæði eftir stafrófsröð:
Björk Gunnarsdóttir Njarðvík, Bríet Lilja Sigurðardóttir Þór Ak., Elín Sóley Hrafnkelsdóttir Breiðablik og Júlía Scheving Steindórsdóttir Njarðvík
1.deild karla Úrvalslið 1. deildar karla 2015-16
Ragnar Friðriksson Þór Ak.
Sigtryggur Arnar Björnsson Skallagrímur
Róbert Sigurðsson Fjölnir
Illugi Auðunsson Valur
Tryggvi Hlinason Þór Ak.
Aðrir sem fengu atkvæði eftir stafrófsröð:
Áskell Jónsson ÍA, Bergþór Ægir Ríkharðsson Fjölnir, Egill Egilsson Fjölnir, Fannar Freyr Helgason ÍA, Illugi Steingrímsson Valur, Jón Orri Kristjánsson ÍA, Sveinbjörn Jóhannesson Breiðablik, Þorsteinn Gunnlaugsson Hamar, Þröstur Leó Jóhannsson Þór Ak. og Örn Sigurðason Hamar
Besti leikmaður deildar karla 2015-16
Sigtryggur Arnar Björnsson Skallagrímur
Aðrir sem fengu atkvæði eftir stafrófsröð:
Jón Orri Kristjánsson ÍA, Róbert Sigurðsson Fjölnir, Tryggvi Hlinason Þór Ak. og Þorsteinn Gunnlaugsson Hamar
Besti þjálfari deildar karla 2015-16
Finnur Jónsson Skallagrímur
Aðrir sem fengu atkvæði eftir stafrófsröð:
Ágúst Björgvinsson Valur, Benedikt Guðmundsson Þór Ak., Fannar Freyr Helgason ÍA, Hjalti Vilhjálmsson Fjölnir og Tómas Hermannsson Ármann
Besti ungi leikmaður deildar karla 2015-16
Tryggvi Hlinason Þór Ak.
Aðrir sem fengu atkvæði eftir stafrófsröð:
Bergþór Ægir Ríkharðsson Fjölnir, Ragnar Helgi Friðriksson Þór Ak. og Snorri Vignisson Breiðablik
Helena og Haukur Helgi valin bestu leikmenn tímabilsins
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Mest lesið

Vilja Gylfa Þór ekki til baka: „Enginn skilaréttur“
Íslenski boltinn

Villa mótmælir fyrirhugaðri breytingu
Enski boltinn

Leeds sló eigið stigamet
Enski boltinn

„Stoltur af leikmönnum og stuðningsmönnum“
Körfubolti

„Þetta var erfitt og maður var aldrei rólegur“
Íslenski boltinn

„Stóðumst áhlaupin betur að þessu sinni“
Körfubolti



„Ekki áhyggjuefni, þetta var bara hörkuleikur“
Íslenski boltinn

Fleiri fréttir
