Fréttir
282 283 284 285 286 287 288 289 290 … 334 ›
Engin merki um gosvirkni Engin gosvirkni sást á gossvæðinu á Reykjanesi í drónaflugi á vegum sérsveitarinnar sem flaug yfir svæðið fyrir skömmu. Þetta bendir til þess að gosinu sé að ljúka. Innlent 9.2.2024 16:02
Vill morðingja fyrir blaðamann Vladimír Pútin, forseti Rússlands, segist mögulega tilbúinn í fangaskipti vegna bandarísks blaðamanns sem haldið hefur verið í rússnesku fangelsi í tæpt ár vegna ásakana um njósnir. Í staðinn vill hann fá rússneskan njósnara sem situr í fangelsi í Þýskalandi fyrir morð. Erlent 9.2.2024 16:00
Neyðarlínan komin aftur í gagnið Neyðarlínan er komin aftur í gagnið, í hið minnsta símleiðis en enn er unnið að því að koma netspjalli aftur á auk innri kerfa. Þetta segir Jón Svanberg Hjartarson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunar. Innlent 9.2.2024 15:48
Kalda vatnið flæðir aftur um Leifsstöð Búið er að koma kalda vatninu aftur á í flugstöð Keflavíkurflugvallar. Enn er heitavatnslaust á vellinum en það hefur ekki haft mikil áhrif á farþega sem fara í gegnum völlinn. Innlent 9.2.2024 15:31
Nýjar vísbendingar varðandi hvarf Jóns Þrastar Systkini Jóns Þrastar Jónssonar sem hvarf í Dublin á Írlandi fyrir fimm árum eru mætt til írsku höfuðborgarinnar í þeim tilgangi að aðstoða við rannsókn lögreglu á málinu. Írska lögreglan segir tvær nýjar vísbendingar hafa borist og leitar til almennings. Innlent 9.2.2024 15:05
Unnustan segir Ísidór orðljótan en alls ekki ofbeldisfullan Kærasta Sindra Snæs Birgissonar, segir hann hafa verið í betra andlegu ástandi mánuðina áður en hryðjuverkamálið svokallaða kom upp en nokkurn tímann fyrr. Unnusta Ísidórs Nathanssonar segir hann hafa verið með nasistafána uppi á vegg en alls ekki ofbeldisfullan. Innlent 9.2.2024 14:38
Segir Zodiac hafa hirt greiðsluna upp í eldri skuld Lúther Gestsson, fyrirsvarsmaður félagsins Knarrarvogs ehf (Sportbátar) er afar ósáttur við fjölmiðlaumfjöllun þar sem greint hefur verið frá því að Björgunarsveit Skagfirðingasveit hafi verið hlunnfarin um andvirði heils Zodiac-báts og um tæki að andvirði níu milljóna. Innlent 9.2.2024 14:35
Ingveldur kveður Hæstarétt Ingveldur Einarsdóttir hæstaréttardómari og varaforseti réttarins lætur af störfum sökum aldurs í ágúst. Staða dómara við réttinn verður auglýst. Innlent 9.2.2024 13:48
Biden brást reiður við skýrslu um leyniskjöl Sérstakur rannsakandi dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna sem rannsakað hefur opinber og leynileg skjöl sem fundust í vörslu Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, frá þeim tíma er hann var óbreyttur borgari, birti í gær skýrslu um rannsókn sína. Þar sagði hann ekki tilefni til að ákæra Biden en sagði hann hafa vísvitandi haldið eftir leynilegum gögnum og jafnvel sýnt öðrum þau. Erlent 9.2.2024 13:45
Bilun í símkerfi Neyðarlínunnar Bilun er í símkerfi Neyðarlínunnar sem stendur og netspjallið virkar ekki. Innlent 9.2.2024 13:14
Látinn eftir umferðarslys á Reykjanesbraut Karlmaður er látinn eftir alvarlegt umferðarslys sem varð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði, á móts við álverið í Straumsvík, þriðjudaginn 30. janúar. Innlent 9.2.2024 12:48
Grindavíkurfrumvarp í samráðsgátt Frumvarp um stuðning til handa Grindvíkingum verður birt í samráðsgátt stjórnvalda síðar í dag. Búist er við að það fái þinglega meðferð í næstu viku. Forsætisráðherra segir vel fylgst með stöðunni á Suðurnesjum. Innlent 9.2.2024 12:46
Fékk að prófa hálfsjálfvirkan riffil hjá föður ríkislögreglustjóra Faðir Sindra Snæs Birgissonar segir að sonur sinn hafi viljað breyta einskotariffli í hálfsjálfvirkan eftir að hafa fengið að prófa einn slíkan hjá Guðjóni Valdimarssyni, stórtækum vopnasafnara og föður ríkislögreglustjóra Innlent 9.2.2024 12:33
Reikna með heitu vatni í hús á sunnudag Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir vinnu ganga vel við að tengja Njarðvíkurlögnina, heitavatnslögnina sem skemmdist þegar hraun rann yfir hana nærri Svartsengi í gær. Reiknað er með því að vatni verði hleypt á kerfið á miðnætti. Tvo sólarhringa tekur að ná fullum þrýstingi á kerfið. Innlent 9.2.2024 12:11
Allar líkur á að gosið sé í andarslitrunum „Það virðist vera sem svo að þetta sé nú eiginlega bara dottið niður. Við höfum ekki séð neina kvikustrókavirkni síðan á milli 8 og 9 í morgun,“ segir Sigríður Magnea Óskarsdóttir, náttúruvásérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Innlent 9.2.2024 12:00
Stoltur af starfsfólki og íbúum Suðurnesja eftir strembna nótt Tugir starfsmanna HS Orku og verktaka unnu í alla nótt að því að tengja nýja hjáveitulögn til að sjá íbúum Suðurnesja fyrir heitu vatni. Forstjóri HS Veitna segir mögulegt að lögnin komist í gagnið síðdegis en lengri tíma tekur að koma þrýstingi inn á kerfið. Innlent 9.2.2024 11:51
Önnur fjölskylda komin yfir landamærin og Sema og Sigrún á leiðinni út Önnur fjölskylda sem hefur dvalarleyfi á Íslandi er komin yfir landamæri Rafah. Íslenskar konur hafa nú milligöngu um að fjölskyldan komist alla leið til Íslands með hjálp Alþjóðafólksflutningastofnunarinnar. Tvær íslenskar konur eru á leiðinni út til Egyptalands til að aðstoða dvalarleyfihafa. Innlent 9.2.2024 11:43
Blásarar halda hita í farþegum en nokkrum klósettum lokað Búið er að loka nokkrum klósettkjörnum í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli vegna bilunar sem kom upp í kaldavatnslögn. Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, segir að samkvæmt upplýsingum frá HS Veitum sé von á því að vatn komist aftur á um hádegisbil. Innlent 9.2.2024 11:37
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um heitavatnsleysið á Suðurnesjum eftir að hraunstraumurinn eyðilagði lögnina í gær. Innlent 9.2.2024 11:19
Gíslatökumaður skotinn til bana í Sviss Lögregluþjónar í Sviss skutu í gærkvöldi 32 ára mann frá Íran eftir að hann tók fimmtán manns í gíslingu í lest. Maðurinn var vopnaður hníf og öxi og hélt fólkinu í gíslingu í tæpar fjórar klukkustundir. Erlent 9.2.2024 11:18
Heilsuðust að nasistasið með lögreglu á hælunum Karl Steinar Valsson, sem stýrði aðgerðum þegar sakborningar í hryðjuverkamálinu svokallaða voru handteknir, segir að það hefði verið ábyrgðarleysi af hálfu lögregluyfirvalda að stíga ekki inn í málið. Hann lýsti því fyrir dómi að þeir Sindri Snær og Ísidór hefðu heilsast að nasistasið þegar lögregla sá Ísidór fyrst. Innlent 9.2.2024 11:11
Heita vatnið að klárast á Sauðárkróki Það er ekki bara á Suðurnesjum sem skortir heitt vatn því íbúar á Sauðárkóki og nærsveitum eru beðnir um að fara sparlega með heita vatnið sem er að klárast í bænum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skagafjarðarveitum. Innlent 9.2.2024 10:27
Efling komin að þolmörkum í viðræðum Efling segist hafa mátt mæta virðingarleysi gagnvart samningsrétti, hagsmunum og tilveru. Stéttarfélagið gerir engu að síður ráð fyrir því að hægt verði að ljúka samningsviðræðum á innan við viku en félagið komist ekki lengra. Innlent 9.2.2024 10:08
Tilnefningaferlið frestast vegna svarleysis frá forsætisnefnd Ekkert verður af því að hefja endurtekningu tilnefninga í í biskupskjöri klukkan 12 á hádegi í dag, þar sem forsætisnefnd kirkjuþings hefur ekki lagt blessun sína yfir framkvæmdina. Innlent 9.2.2024 09:42
Hafi unnið þrekvirki í nótt Starfsmenn HS Orku auk verktaka eru komnir langleiðina með að tengja nýju hjáveitulögnina við Njarðvíkurlögnina sunnanmegin við varnargarðinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HS Orku. Innlent 9.2.2024 09:08
Pútín segir Musk óstöðvandi Erfðatækni, gervigreind og Elon Musk var á meðal þess sem bar á góma í viðtali bandaríska sjónvarpsmannsins Tucker Carlson við Vladímír Pútín Rússlandsforseta sem var birt á samfélagsmiðlinum X í nótt. Erlent 9.2.2024 09:00
Opið hús hjá björgunarsveitum: „Húsið er hlýtt“ Björgunarsveitir á Reykjanesi fóru ekki í útköll í nótt vegna kulda þar og skorts á heituvatni. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir nóttina hafa verið rólega. Innlent 9.2.2024 08:44
Kalt i morgunsárið en dregur úr frosti Nú í morgunsárið er kalt og rólegt veður á landinu en heldur mun draga úr frosti í dag. Annars verður skýjað með köflum og yfirleitt þurrt, en dálítil él austanlands og við norðurströndina. Frost verður á bilinu tvö til þrettán stig síðdegis. Veður 9.2.2024 07:23
Þingmaður VG biðlar til Bjarna sem ráði alfarið ferðinni Brynhildur Björnsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, skorar á Bjarna Benediktsson utanríkisráðherra að sjá til þess að „fólkið okkar“ verði sótt á Gaza. Hún segir Katrínu Jakobsdóttur ólma vilja gera það en hún hafi ekki vald til þess að segja utanríkisráðherra fyrir verkum. Innlent 9.2.2024 07:16
Unnið að viðgerð og vegagerð í alla nótt „Þetta gekk vel. Það var tíðindalítið þegar kemur að eldgosinu en það hefur mikil vinna farið fram í nótt,“ segir Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri Almannavarna, um fregnir næturinnar. Innlent 9.2.2024 07:09