Fréttir
291 292 293 294 295 296 297 298 299 … 334 ›
Lögreglan kom dyravörðum til aðstoðar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk í nótt beiðni um aðstoð frá dyravörðum á skemmtistað í Reykjavík. Einn dyravörður hafði verið sleginn og var gerandinn handtekinn og vistaður í fangageymslu. Innlent 3.2.2024 07:26
Hjálmar segist ekki hafa verið handtekinn Hjálmar Hallgrímsson, formaður bæjarráðs Grindavíkur og lögreglumaður, segir það vera haugalygi og rógburð að hann hafi verið handtekinn eftir að hafa neitað að yfirgefa heimili sitt í Grindavík í janúar. Innlent 3.2.2024 07:14
Mannsaldrar gætu liðið áður en næsta eldstöðvarkerfi vaknar Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur telur að langur aðdragandi gæti orðið að því að næsta eldstöðvarkerfi vakni á Reykjanesskaga. Hann segir ótímabært að byggja upp varnargarða við Hafnarfjörð en nauðsynlegt sé að styrkja skipulagslög gagnvart eldgosavá. Innlent 3.2.2024 06:36
Fá að fara heim á sunnudag og mánudag vegna breytts hætttumats Vegna aukinna líkna á eldgosi við Grindavík og styttri fyrirvara samkvæmt hættumatskorti Veðurstofu Íslands þá hafa almannavarnir ákveðið að Grindvíkingar fái aðgang að íbúðarhúsnæðum sínum fyrr, eða í sex klukkustundir á sunnudag og mánudag. Innlent 3.2.2024 00:29
Tveir táningar dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir morð á trans stúlku Tveir táningar hafa verið dæmdir í lífstíðarfangelsi í Bretlandi fyrir morðið á trans stúlkunni Briönnu Ghey. Saksóknarar hafa lýst morðinu sem því óhugnanlegasta sem þau hafa unnið við og dómari segir trans hatur hafi drifið þau til glæpsins. Erlent 3.2.2024 00:15
Yfirvöld á Norðurlöndunum hafi aðstoðað aðra en eigin ríkisborgara Yfirvöld á hinum Norðurlöndunum hafa aðstoðað aðra en ríkisborgara sína við að komast burt frá Palestínu. Rúv greindi frá þessu fyrr í kvöld. Innlent 2.2.2024 23:18
Bandaríkin svara fyrir sig með loftárásum í Írak og Sýrlandi Bandaríski herinn hefur hafið loftárásir á herstöðvar tengdar írönskum vígasamtökum í Írak og Sýrlandi. Loftárásirnar eru svar Bandaríkjamanna við drónaárás sem varð þremur bandarískum hermönnum að bana fyrir viku síðan. Erlent 2.2.2024 21:57
Farangurskerra fauk á flugvél Icelandair í hríðinni Flugvél Icelandair var á leið út á flugbraut þegar farangurskerra fauk utan í hreyfil hennar. Farþegar hafa verið í flugvélinni í rúma fimm tíma og komast ekki út vegna brjálaðs roks. Þá hefur öllum flugferðum Icelandair frá vellinum verið aflýst í kvöld vegna veðurs. Innlent 2.2.2024 21:05
Vindur og él nái hámarki fyrri part kvölds Veðurfræðingur segir að éljagangur verði langt fram á kvöld. Veðrið nái hámarki snemma í kvöld hvað varðar vind og ákafa éljagangsins. Veðrið róist á morgun og verði orðið gott á sunnudag. Talverðum kulda er síðan spáð í næstu viku. Veður 2.2.2024 19:08
Gætu þurft að grípa til skömmtunar á heitu vatni í öðrum sveitarfélögum Grindavík er án kalds neysluvatns vegna ónýtrar stofnlagnar og er dreifikerfið talið verulega laskað. Stofnlögn heitavatns frá Svartsengi er sömuleiðis ónýt og er notast við leka lögn í staðinn. Hugsanlega þurfi að grípa til skömmtunar í öðrum sveitarfélögum vegna þessa. Innlent 2.2.2024 18:49
Verðmætabjörgun í líflínu Jörð heldur áfram að gliðna í Grindavík og frekari skemmdir að verða á húsum í bænum. Fimmtíu starfsmönnum fyrirtækis í Grindavík var sagt upp vegna hamfaranna. Eldgos gæti hafist á næstu vikum eða jafnvel dögum. Innlent 2.2.2024 18:02
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Konan sem er í haldi í tengslum við andlát sex ára drengs í Kópavogi er móðir hans og grunuð um að hafa orðið barni sínu að bana. Eldra barn konunnar var á leið í skólann þegar lögreglu bar að garði og er nú í úrræði á vegum barnaverndar. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við Grím Grímsson yfirlögregluþjón um rannsókn málsins. Innlent 2.2.2024 18:01
Fundi breiðfylkingarinnar og SA frestað til morguns Breiðfylking stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins og fulltrúar Samtaka atvinnulífsins funduðu í Karphúsinu í allan dag en fundi var hætt síðdegis og frestað til klukkan ellefu í fyrramálið. Innlent 2.2.2024 17:58
Tugmilljóna mál skrifstofustjóra fer fyrir Hæstarétt Hæstiréttur hefur samþykkt beiðni íslenska ríkisins um áfrýjunarleyfi í máli Jóhanns Guðmundssonar, fyrrverandi skrifstofustjóra í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Jóhanni voru dæmdar 23,6 milljónir króna í skaða- og miskbætur vegna niðurlagningar ráðherra á embætti hans. Innlent 2.2.2024 16:27
Móðurinni haldið sofandi Móðurinni sem varð fyrir því að sýru var skvett framan í hana í London á miðvikudagskvöld er haldið sofandi. Hún er alvarlega slösuð. Dætur hennar tvær sem einnig urðu fyrir árásinni eru ekki eins hætt komnar. Erlent 2.2.2024 16:02
Móðir barnsins í haldi og málið rannsakað sem manndráp Andlát sex ára drengs í Kópavogi er rannsakað sem manndráp. Konan sem er í haldi lögreglu er móðir barnsins. Annað barn bjó á heimilinu og er það nú í viðeigandi úrræði barnaverndaryfirvalda. Innlent 2.2.2024 15:17
Rafmagn tekið af Grindavík vegna eldingaveðurs Veðurspáin í dag gerir ráð fyrir eldingaveðri á Reykjanesi. Til að koma í veg fyrir tjón ef til eldingarveðurs kemur, var ákveðið að taka spennu af strengnum sem liggur yfir hraunið við Grindavík. Innlent 2.2.2024 14:17
Að óbreyttu þurfi nýbyggingar ekki að þola jarðskjálfta Framkvæmdastjóri Staðlaráðs segir mikilvæga þjóðarviðauka við byggingarreglugerð EES ekki enn hafa verið samda vegna skorts á fjárveitingum frá ríkinu. Nýendurskoðaðir evrópskir staðlar, sem þegar eru byrjaðir að taka gildi ytra, taki ekki gildi hérlendis þar sem vantar að aðlaga þá íslenskum aðstæðum. Innlent 2.2.2024 13:41
Hellisheiði og Þrengslin opin á ný Veginum um Sandskeið, Hellisheiði og Þrengslum hefur verið lokað vegna hálku. Innlent 2.2.2024 12:40
Nokkrir látnir eftir að flugvél brotlenti í byggð fyrir eldri borgara Nokkrir eru látnir eftir að lítil flugvél brotlenti í byggð fyrir eldri borgara í Clearwater í Flórída í nótt. Mikill eldsvoði braust út í kjölfar flugslyssins og fjöldi látinna er óljós. Erlent 2.2.2024 12:22
Farið yfir forgangsröðun vegna mögulegs goss Forsætisráðherra mun funda með almannavörnum um stöðuna í og við Grindavík síðar í dag. Hún segist vona að línur skýrist fyrir Grindvíkinga í næstu viku þegar von sé á að frumvarp um stuðning þeim til handa verður kynnt. Innlent 2.2.2024 12:15
Telja sig vera með skýra mynd af atburðum á Nýbýlavegi Yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að rannsókn á andláti sex ára drengs í Kópavogi miði vel. Lögreglan telji sig vera komna með skýra mynd af atburðum. Innlent 2.2.2024 11:59
Veðurstofufólk með augun límd á mælitækjum Dregið gæti til tíðinda á Reykjanesi á næstu dögum og starfsmenn Veðurstofunnar eru á sólarhringsvakt með augun límd á mælitækjum. Fyrirvarinn gæti orðið styttri en áður þar sem jarðskorpan er heit og minna brotgjörn. Innlent 2.2.2024 11:52
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um ástandið á Reykjanesskaganum en náttúruvársérfræðingur býst við enn einu gosinu á næstu dögum. Innlent 2.2.2024 11:36
Einn styður Ísrael og hinn Palestínu; báðum var sagt upp en aðeins annar endurráðinn Upp er komið áhugavert mál í Bandaríkjunum þar sem tveimur læknum var sagt upp eftir að þeir deildu færslum á samfélagsmiðlum, annar til stuðnings Ísrael og hinn til stuðnings Palestínu. Erlent 2.2.2024 10:52
Björgvin Páll eyðir óvissunni Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkmaður í handbolta, hefur tilkynnt að hann muni ekki gefa kost á sér í forsetakosningunum í sumar. Hann dreymir þó um að verða forseti, en ekki núna. Innlent 2.2.2024 10:23
Samfylkingin yfir þrjátíu prósenta múrinn Samfylkingin er enn í sókn í nýjum þjóðarpúlsi Gallup og bætir flokkurinn við sig 2,3 prósentum í fylgi. Hann mælist nú með tæplega 31 prósent fylgi. Innlent 2.2.2024 10:09
Saurmengað vatn á Seyðisfirði Íbúar á Seyðisfirði þurfa að sjóða neysluvatn tímabundið. Ástæðan er sú að upp kom bilun í gegnumlýsingu og leiddi sýnataka í ljós að saurkólí og e.coli-gerla mengun er í vatninu. Innlent 2.2.2024 09:53
Ný mislæg gatnamót í hrauninu fyrir framtíðar byggingarsvæði Gerð nýrra mislægra gatnamóta í hrauninu milli Straumsvíkur og Hvassahrauns fylgir breikkun Reykjanesbrautar, sem hófst fyrr í vetur. Gatnamótunum er ætlað að greiða leið að nýjum framtíðar byggingarsvæðum Hafnarfjarðar, að því er fram kom í fréttatilkynningu Vegagerðarinnar. Innlent 2.2.2024 09:11
Vafasamt að dómari meti hvenær barn gefi samþykki fyrir kynmökum Umboðsmaður barna hefur sent Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra bréf varðandi kynferðisbrot gegn börnum. Þar er því haldið fram að vafasamt sé að dómari leggi mat á það hvenær barn veiti samþykki fyrir kynmökum. Innlent 2.2.2024 09:10