Fréttir
318 319 320 321 322 323 324 325 326 … 334 ›
Atkvæðagreiðsla hafin um verkfall ræstingarfólks Kjaraviðræður breiðfylkingar stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins eru að falla á tíma eftir að Efling hóf atkvæðagreiðslu um verkfall ræstingarfólks í dag. Helstu hindranir eru ósamkomulag um uppsagnavernd og óvissa um hvort sveitarfélögin sættist á gjaldfrjálsar skólamáltíðir. Innlent 4.3.2024 19:21
„Mér brá auðvitað við þegar þetta kom upp“ Birgir Ármansson, forseti Alþingis, segir tilefni til þess að skoða og endurmeta öryggismál á Alþingi í kjölfar atviks sem átti sér stað í dag þar sem lögregla og þingverðir þurftu að fjarlægja mann af þingpöllum Alþingis sem steig yfir handriði þeirra og öskraði að þingmönnum. Innlent 4.3.2024 19:01
Hefur ekki raunverulegan áhuga á Bessastöðum þrátt fyrir falleg orð Hallgríms Katrín Oddsdóttir, lögfræðingur, væri prýðilegur forsetaframbjóðandi að mati Hallgríms Helgasonar rithöfundar. Hann talar fyrir því að Katrín fari fram í færslu á Facebook-síðu sinni. Innlent 4.3.2024 18:36
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Kjaraviðræður breiðfylkingar stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins eru að falla á tíma eftir að Efling hóf atkvæðagreiðslu um verkfall ræstingarfólks í dag. Helstu hindranir eru ósamkomulag um uppsagnavernd og óvissa um hvort sveitarfélögin sættist á gjaldfrjálsar skólamáltíðir. Innlent 4.3.2024 18:00
Lítill eldur í Kató í Hafnarfirði Eldur kviknaði í húsi sem kallast Kató og er á móti St. Jósefsspítala í dag. Ekki er um mikinn eld að ræða samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Innlent 4.3.2024 16:24
Öskraði af þingpöllunum á dómsmálaráðherra Fjarlægja þurfti karlmann af þingpöllum Alþingis seint á fjórða tímanum sem var með læti og steig yfir handriðið. Þingmenn risu úr sætum og virkaði brugðið. Innlent 4.3.2024 16:00
Ríkjum ekki heimilt að útiloka Trump Hæstiréttur Bandaríkjanna segir einstök ríki ekki geta meinað Donald Trump, fyrrverandi forseta og núverandi forsetaframbjóðanda, að vera á kjörseðlum þar á grundvelli fjórtánda ákvæðis stjórnarskrár ríkisins. Ákvörðunin mun hafa áhrif í Colorado, Maine og Illinois, þar sem Trump hafði verið bannað að bjóða sig fram. Erlent 4.3.2024 15:41
Katrín loðin í svörum um forsetaframboð Í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi nú rétt í þessu var Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra spurð um það sérstaklega hvort hún ætlaði að gefa kost á sér í komandi forsetakosningaslag. Innlent 4.3.2024 15:34
„Þeir eru að slátra fólki í fangaklefunum“ Kólumbískir málaliðar, sem handteknir voru í kjölfar morðs Jovenel Moise, fyrrverandi forseta Haítí, eru meðal þeirra örfáu sem flúðu ekki úr tveimur stærstu fangelsum landsins þegar ráðist var á þau á laugardagskvöld. Þeir kölluðu þess í stað eftir aðstoð á samfélagsmiðlum. Erlent 4.3.2024 14:45
Segja meðmælabréfi Rúnars fyrir Bashar ekki lekið af Útlendingastofnun Upplýsingafulltrúi Útlendingastofnunar segir mynd af boðsbréfi, sem Rúnar Freyr Gíslason framkvæmdastjóri Söngvakeppninnar skrifaði fyrir Bashar Murad, sem birt var á mbl.is um helgina ekki frá stofnuninni komna. Innlent 4.3.2024 14:29
Lokakröfur Eflingar: Uppsagnarvernd, trúnaðarmenn og orðalag um ræstingarfólk Formaður Eflingar segir einkum þrennt standa út af í samningsviðræðum við Samtök atvinnulífsins. Náist sátt um þau atriði ætti að vera hægt að undirrita kjarasamninga á næstu einum til tveimur sólarhringum. Innlent 4.3.2024 13:34
Ævintýralega skemmtileg fýluferð til Grænlands Stefán Pálsson sagnfræðingur fór með sem viðhengi þegar vestnorræna ráðið hélt til Grænlands. Ekkert varð af fyrirhuguðum fundahöldum en Stefán hefði ekki viljað missa af ferðinni. Innlent 4.3.2024 13:28
Sundlaugin fyllist á ný og bæjarbúar fagna Byrjað er hleypa vatni ofan í sundlaugina á Þingeyri á ný þar sem framkvæmdir hafa staðið yfir síðustu mánuði. Nýr dúkur hefur verið lagður þar sem sá eldri lak og segir starfsmaður sundlaugarinnar að bæjarbúar fagni innilega. Innlent 4.3.2024 13:15
Bláa lónið opnað á ný Allar starfsstöðvar Bláa lónsins hafa verið opnaðar á ný eftir lokun og rýmingu síðdegis á laugardag þegar allt benti til þess að eldgos væri yfirvofandi. Innlent 4.3.2024 13:08
Bein útsending: Skaðlegt inniloft, loftræstingar og heilsa Ráðstefna um skaðlegt inniloft, loftræsingar og heilsu fer fram í Háskólanum í Reykjavík í dag. Innlent 4.3.2024 12:16
Dregur líklega til tíðinda í vikunni Líklegt er að það dragi til tíðinda á ný á Reykjanesi í vikunni að mati Benedikts Ófeigssonar jarðeðlisfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Kvikuhólfið undir Svartsengi heldur áfram að fyllast en á morgun verður staðan líklega orðin eins og fyrir síðast kvikuhlaup. Innlent 4.3.2024 12:16
Hraun flæðir á Galapagoseyjum Eldgos hófst á Galapagos-eyjum undan ströndum Ekvador í gærkvöldi. Hraun flæddi úr La Cumbre eldfjallinu á Fernandinaeyju en það er virkasta eldfjalla eyjaklasans fræga, og rann út í sjó. Erlent 4.3.2024 11:53
Gáfu stjórnvöldum langt nef og samþykktu að hækka ellilífeyrinn Svisslendingar samþykktu um helgina að hækka ellilífeyrinn í landinu sem nemur einum mánuði á ári og höfnuðu því að hækka eftirlaunaldurinn í 66 ár. Erlent 4.3.2024 11:47
Frír matur í skólum og lausn eftir fæðingarorlof til umræðu Leiðtogar breiðfylkingar stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins segja það ráðast af viðbrögðum sveitarfélaganna hvort hægt verði að skrifa undir nýja kjarasamninga á næstu tveimur sólarhringum. Atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun Eflingar hefst að óbreyttu klukkan fjögur í dag. Innlent 4.3.2024 11:47
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar fylgjumst við með framvindunni í kjaraviðræðunum í karphúsinu en heldur léttari tónn berst nú þaðan miðað við ástandið í síðustu viku. Innlent 4.3.2024 11:35
Boðað til fundar með börnum frá Grindavík Umboðsmaður barna býður 6-17 ára börnum frá Grindavík til fundar í Laugardalshöll á fimmtudag. Markmið fundarins er að heyra hvað börnunum liggur á hjarta og átta sig á því hvernig stjórnvöld geta með sem bestum hætti staðið vörð um réttindi þeirra við þær aðstæður sem nú eru uppi. Innlent 4.3.2024 11:23
Leggjast gegn álklæðningu á tveimur hliðum Laugalækjarskóla Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur lagst gegn umsókn byggingarfulltrúa borgarinnar þar sem sótt er um leyfi til að klæða suðausturgafl og suðvesturhlið Laugalækjarskóla með sléttri álklæðningu. Er vísað í að að setja klæðningu á hús þar sem ekki hafi verið gert ráð fyrir henni í upphafi hafi oft neikvæð áhrif á útlit húss. Þannig geti helstu stíleinkenni tapast. Innlent 4.3.2024 11:12
Úrskurða líklega Trump í vil degi fyrir „ofurþriðudag“ Dómarar hæstaréttar Bandaríkjanna gáfu til kynna í gær að von sé á úrskurði um það hvort ráðamönnum Colorado sé heimilt að meina Donald Trump að vera á kjörseðlum í ríkinu. Forval í báðum flokkum fer fram í ríkinu, og fimmtán öðrum, á morgun en dagurinn er iðurlega kallaður „ofurþriðjudagur“. Erlent 4.3.2024 10:42
Karl Gunnlaugsson er fallinn frá Karl Gunnlaugsson, akstursíþróttamaður og athafnamaður, er látinn, 57 ára að aldri. Hann lést á heimili sínu í Mosfellsbæ á laugardaginn. Innlent 4.3.2024 10:15
„Ég hefði aldrei haft hugmyndaflug í að þetta gæti gerst“ „Svona „tension“ hafði maður aldrei heyrt af áður hér á landi; að menn óttuðust um líf sitt í hefndaraðgerðum, eftir að maður var tekinn af lífi fyrir utan heimili sitt. Þetta voru ekki slagsmál fyrir utan b5, eða einhver barningur niðri í bæ. Þetta var í rauninni eitthvað sem við sjáum bara í bíómyndum.“ Innlent 4.3.2024 09:46
Hópnauðgun á ferðamanni á Indlandi vekur athygli og reiði Hópnauðgun sem átti sér stað í Dumki í Jharkhand-ríki á Indlandi hefur vakið mikla athygli og reiði en fjórir hafa verið handteknir í tengslum við árásina og þriggja er leitað. Erlent 4.3.2024 09:12
Bubbi óttast púðurtunnu rasismans Bubbi Morthens er þungt hugsi yfir þeim gífuryrðum sem fallið hafa á samfélagsmiðlum um helgina í tengslum við Söngvakeppni Ríkisútvarpsins. Hera Björk stóð uppi sem sigurvegari eftir baráttu við Bashar Murad. Lokatölur eru óbirtar og sitt sýnist hverjum um niðurstöðuna. Innlent 4.3.2024 09:07
Segir undirskrift handan við hornið Formaður Starfsgreinasambandsins á von á því að skrifað verði undir kjarasamninga á næstu einum til tveimur sólarhringum. Viðsnúningur varð í viðræðum um helgina og nú er aðkoma sveitarfélaganna það eina sem stendur út af borðinu. Innlent 4.3.2024 09:01
Tilkynningar um kynferðisbrot ekki færri síðan 2017 Tilkynnt var um 521 kynferðisbrot til lögreglunnar á síðasta ári og voru tilkynningar 15 prósent færri en að meðaltali samanborið við síðustu þrjú ár þar á undan. Fara þarf aftur til 2017 til að sjá færri tilkynningar um kynferðisbrot til lögreglu. Innlent 4.3.2024 08:57
„Ef ekki væri fyrir sjálfboðaliðana gæti ég ekki faðmað fjölskylduna mína“ Fjölskyldufaðir frá Palestínu er fullur þakklætis í garð íslenskra sjálfboðaliða sem björguðu fjölskyldu hans frá Gasa. Hann segist bæði stoltur og glaður yfir að fá að búa hér. Innlent 4.3.2024 08:00