Fréttir
320 321 322 323 324 325 326 327 328 … 334 ›
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ríkislögreglustjóri hefur fyrirskipað brottflutning allra úr Grindavík á grundvelli nýs áhættumats á svæðinu. Bannað verður að dvelja og starfa í bænum í þrjár vikur frá og með mánudeginum. Við förum yfir vendingar dagsins í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30 og ræðum við Víði Reynisson í beinni útsendingu. Innlent 13.1.2024 18:10
Nafn mannsins sem saknað er eftir vinnuslysið Maðurinn sem saknað er eftir vinnuslys sem varð í Grindavík þann 10. janúar heitir Lúðvík Pétursson. Innlent 13.1.2024 18:08
Svona ákvarðanir ekki teknar í tómarúmi Bygging varnargarða mun halda áfram þrátt fyrir brottflutning úr Grindavík að því er kemur fram í ræðu dómsmálaráðherra á upplýsingafundi Almannavarna fyrr í dag. Það verkefni auk rannsóknar á sprungum eru að hennar sögn stærstu skrefin í átt að öruggri búsetu í Grindavík. Innlent 13.1.2024 17:55
Fyrirskipa brottflutning allra úr Grindavík Á upplýsingafundi almannavarna rétt í þessu var tilkynnt að sú ákvörðun hefði verið tekin að fyrirskipa brottflutning allra þeirra sem dvelja í Grindavík og banna alla starfsemi í bænum. Innlent 13.1.2024 16:57
Lai Ching-te kjörinn forseti í Taívan Laí Chingte bar sigur úr býtum í forsetakosningum í Taívan sem efnt var til á dögunum. Niðurstöðurnar komu í ljós í dag. Þetta eru þriðju kosningarnar í röð sem Lýðræðislegi framfaraflokkurinn hlýtur sigur í forsetakosningum í óþökk stjórnvalda í Peking en hann hefur verið horn í síðu ráðamanna þar síðan hann tók við stjórn embættisins. Erlent 13.1.2024 16:22
Ekkert barnabann í Háskóla Íslands Ekki hafa komið upp nein vandamál hvað varðar viðveru barna í tímum við Háskóla Íslands eða brjóstagjöf. Það segir Kristinn Andersen sviðsstjóri kennslumála hjá Háskóla Íslands í samtali við fréttastofu. Innlent 13.1.2024 16:00
Tollar í landbúnaði og geðheilbrigði bænda Fulltrúar ungra bænda eru nú staddir í Mýrdalnum þar sem þeir halda aðalfund sinn og fara yfir brýnustu málefni landbúnaðarins og það sem fram undan er. Á fundinum er meðal annars rætt um tolla á búvörum og geðheilbrigði bænda. Innlent 13.1.2024 16:00
Hætt við lendingu vegna þokunnar Þétt þoka liggur yfir Reykjavík og á hún að hanga fram í nótt að sögn Þorsteins V. Jónssonar veðurfræðings hjá Veðurstofunni. Hún hefur orðið til þess að ekki var hægt að lenda flugvél á Reykjavíkurflugvelli í dag. Innlent 13.1.2024 15:07
Flugeldar forsetaframbjóðanda vöktu barn Sigríður Hrund Pétursdóttir tilkynnti framboð sitt til forseta í gær með pompi, prakt og flugeldum, eflaust til mikillar gleði viðstaddra. Minni gleði vakti það þó hjá íbúum nágrennisins en þeir kunnu ekki að meta uppátæki Sigríðar. Innlent 13.1.2024 14:40
Myndir sýna gríðarlegt tjón á Hringbraut Af ljósmyndum af vettvangi að dæma varð mikið eignatjón þegar ungur maður ók á fjölda bíla á Hringbraut í morgun. Ljóst er að einhverjir bílanna eru ónýtir. Innlent 13.1.2024 13:51
Almannavarnir boða til upplýsingafundar Upplýsingafundur almannavarna verður haldinn klukkan 16:30 í dag. Farið verður yfir áhættumat sem almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra hefur unnið að undanförnu. Innlent 13.1.2024 13:34
Gætum séð aukningu í svipuðum aðgerðum og á Akureyri Handtaka manns á Akureyri sem er tengdur ISIS-hryðjuverkasamtökunum er einsdæmi hér á landi. Afbrotafræðingur segir aðgerðum sem þessari geta fjölgað hér á landi á næstu árum með fjölgun flóttamanna. Innlent 13.1.2024 13:01
Tekur fyrir að hafa sagt að Marta María sé ekki blaðamaður Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, segir ekki rétt að hún hafi sagt að Marta María Winkel væri ekki blaðamaður. Marta María hafði greint frá því að hún hafi skipt um félag eftir að hafa heyrt af ummælum sem Sigríður átti að hafa látið frá sér að samningafundi. Innlent 13.1.2024 12:53
Almannavarnir funda með ráðamönnum um áhættu í Grindavík Almannavarnir funda í dag með ráðamönnum og hagaðilum um framhaldið í Grindavík. Áhættur sem fylgja því að vera í bænum verða metnar. Innlent 13.1.2024 12:33
Ekki hægt að réttlæta áframhaldandi leit Ekki var hægt að réttlæta áframhaldandi leit að manni sem féll niður um sprungu í Grindavík í gær vegna lífshættulegra aðstæðna við björgun, að sögn lögreglustjóra. Svipað hættulegar sprungur finnist víða í Grindavík. Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur gert hlé á tjónamati í bænum. Innlent 13.1.2024 12:10
Kallar eftir tekjutengdum sektum eftir að ekið var á átta bíla Snemma í morgun ók ungur maður, sem grunaður er um akstur undir áhrifum fíkniefna, utan í átta kyrrstæðar bifreiðar á Hringbraut í vesturbæ Reykjavíkur. Íbúi við Hringbraut lýsir ófremdarástandi í götunni. Innlent 13.1.2024 12:08
Hádegisfréttir Bylgjunnar Ekki var hægt að réttlæta frekari leit að manni sem féll í sprungu í Grindavík vegna lífshættulegra aðstæðna. Tjónamati hefur verið hætt í bili. Rætt verður við lögreglustjórann í Grindavík í hádegisfréttum. Innlent 13.1.2024 11:58
Börn voru í hinum bílnum Lögregla á Suðurlandi rannsakar enn tildrög banaslyss sem varð á þjóðveginum við Skaftafell í gærmorgun. Börn eru á meðal þeirra sex sem flutt voru með þyrlu á Landspítalann í Fossvogi eftir slysið. Innlent 13.1.2024 11:28
Neita að framselja prest sakaðan um morð og pyntingar Dómsmálaráðherra Ítalíu hefur synjað beiðni Argentínu um að framselja prest sem er sakaður um hræðilega glæpi sem hann á að hafa framið á valdatíð Juans Peróns og herforingjastjórn landsins á þeim tíma. Erlent 13.1.2024 11:24
Stórvarasöm hálka í dag Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur varar við stórvarasamri hálku víða á vegum og gangstígum í dag. Hann segir það einkum eiga við um vestan- og sunnanvert landið, þar með talið á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. Veður 13.1.2024 11:11
Hætta að meta tjón í Grindavík í bili Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur gert hlé á tjónamati í Grindavík í ljósi atburða vikunnar. Stofnunin hefur unnið að mati á tjóni á fasteignum og innviðum í bænum frá því náttúruhamfarirnar hófust í nóvember síðastliðnum. Innlent 13.1.2024 10:31
Enn á lífi því kærastan kom snemma heim Að kvöldi 7. desember árið 2022 tók Arnar Freyr Jónsson þá skyndiákvörðun að taka inn ópíóðalyfið OxyContin. Afleiðingarnar voru þær að hann var einungis hársbreidd frá dauðanum. Innlent 13.1.2024 09:00
Hringbraut lokað vegna áreksturs Hringbraut í vesturbæ Reykjavíkur var lokað til vesturs í morgun vegna áreksturs bifreiða. Innlent 13.1.2024 08:48
Færeyskir nemendur sagðir beita kennara ofbeldi Meðlimur í kennarasambandi Færeyja hefur kvatt kollega sína til þess að vera duglegri að tilkynna ofbeldi sem þeir verða fyrir af hendi nemenda sinna. Hann segir hafa borið á því að nemendur beiti kennara sína ofbeldi í auknum mæli. Þeir kasti bókum og pennum í kennara, sem segi tímaspursmál hvenær þeir verða barðir og þaðan af verra. Erlent 13.1.2024 08:23
Fékk að gista í fangaklefa eftir að hafa ógnað húsráðanda með hnífi Í gærkvöldi var tilkynnt um hávaða í fjölbýli í Reykjavík. Þegar lögreglu bar að garði tilkynnti gestur í íbúð í húsinu að maður hefði ráðist á húsráðanda og ógnað með hnífi. Maðurinn var að endingu handtekinn og vistaður í fangageymslu. Innlent 13.1.2024 07:51
Hútar hóta hefndum Hútar hóta hefndaraðgerðum vegna sprengjuárásum sem gerðar voru af Bretlandi og Bandaríkjunum í gærnótt. Tugþúsundir komu saman í Sana höfuðborg landsins til að mótmæla og krefjast aðgerða. Erlent 13.1.2024 00:10
Ísraelar verja sig fyrir alþjóðadómstólnum Sendinefnd Ísraelsmanna fór í dag með mál sér til varnar í máli sem skotið var til alþjóðadómstólsins í Haag af Suður-Afríku á dögunum. Í umleitaninni sem Suður-Afríka lagði fram saka þeir Ísraela um þjóðarmorð í innrás sinni á Gasa og biðla til dómstólsins að skipa Ísraelum að láta af öllum árásum. Erlent 12.1.2024 22:23
Banamanninum áttræða sleppt úr gæsluvarðhaldi Hinn 81 árs gamla Ebbe Preisler sem hefur verið handtekinn fyrir að drepa eiginkonu sína og reyna að fyrirfara sér í Kaupmannahöfn í síðasta mánuði hefur verið látinn laus úr gæsluvarðhaldi. Erlent 12.1.2024 21:13
Vilhjálmur segist óánægður með Samtök atvinnulífsins Formaður Starfsgreinasambandsins segir nokkur ljón í veginum í kjaraviðræðum við SA en fólk sé sammála um að ryðja þeim úr vegi. Hann telur að aðildarfélög SA hafi ekki sýnt nógu skýrt að þau ætli að halda aftur af hækkunum. Framkvæmdastjóri SA fagnar yfirlýsingu Haga um að félagið ætli að halda aftur af sér. Innlent 12.1.2024 20:18
Hætta leitinni að manninum Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum segir að leitin að manninum sem féll ofan í sprungu í Grindavík sé hætt vegna hve erfiðar aðstæður eru. Innlent 12.1.2024 19:14