Fréttir
94 95 96 97 98 99 100 101 102 … 334 ›
Stórhættuleg falskvíðalyf, ný könnun og iðrun Ingu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar andlát karlmanns um fertugt en grunur leikur að dauða hans megi rekja til hættulegra falskvíðalyfja sem eru í umferð. Yfirlögregluþjónn segir sölu ólöglegra lyfja hafa aukist og varar fólk við að taka þau. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 28.1.2025 18:00
„Líklegt að framganga Ingu liggi þungt á mörgum samráðherrum“ Henry Alexander Henrysson siðfræðingur telur skorta nokkuð uppá að Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra, átti sig til fulls á því hvað felst í hinu nýja (ráðherra)hlutverki. Ársæll Guðmundsson skólastjóri Borgarholtsskóla fagnar afsökunarbeiðni Ingu. Innlent 28.1.2025 17:07
Flokkur fólksins leitar að upplýsingafulltrúa Flokkur fólksins hefur auglýst eftir upplýsingafulltrúa í fullt starf. Fram kemur í auglýsingunni að starfið sé spennandi og krefjandi starf í stjórnmálum sem reyni á frumkvæði, skipulag og góða samskiptahæfni. Innlent 28.1.2025 16:39
Líkur á eldgosi fara vaxandi Aflögunarmælingar sýna áframhaldandi landris og kvikusöfnun undir Svartsengi. Atburðarrásin heldur því áfram á svipaðan hátt og fyrir síðustu gos. Líkanreikningar sýna að magn kviku sem safnast hefur undir Svartsengi nálgast það magn sem kom upp í síðasta eldgosi. Innlent 28.1.2025 16:21
Pawel stýrir utanríkismálanefnd Pawel Bartoszek verður tilnefndur til formennsku í utanríkismálanefnd Alþingis þegar þing kemur saman. Skipan í fastanefndir þingsins er langt komin en þing kemur saman þriðjudaginn 4. febrúar næstkomandi. Innlent 28.1.2025 16:12
Fjórtán metra hvalur í Guðlaugsvík Fjórtán metra hvalur fannst í Guðlaugsvík á Ströndum í upphafi þessarar viku. Í tilkynningu Lögreglunnar á Norðvesturlandi segir að um sé að ræða búrhval og að til samanburðar megi áætla að hvalurinn sé jafnlangur og þrjár Tesla Y bifreiðar eða sjö Cleveland þriggja sæta sófar lagðir samsíða hvalnum. Innlent 28.1.2025 14:08
Viðvörunarljós hefðu átt að blikka í ráðuneytinu Fjármálaráðherra segir ljóst að eitthvað hafi farið úrskeiðis þegar stjórnmálaflokkar fengu greitt úr ríkissjóði, án þess að uppfylla skilyrði fyrir slíkum greiðslum. Viðvörunarljós hefðu átt að blikka inni í fjármálaráðuneytinu löngu áður en málið komst í hámæli í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar. Innlent 28.1.2025 13:59
Gagnrýna „glæfralegar ályktanir“ um „meintan veldisvöxt“ ADHD „ADHD samtökin gera skýlausa kröfu um að ritun ADHD grænbókar um stöðu ADHD greininga og möguleika til meðferðarúrræða verði endurskoðuð og endurunninn á faglegri forsendum.“ Innlent 28.1.2025 13:23
Hvatvísin hafi verið við völd þegar hún tók upp tólið Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra segir hvatvísina hafa verið við völd þegar hún tók upp tólið og hringdi, sem amma, í skólameistara Borgarholtsskóla vegna týnds skópars barnabarns síns. Hún segist ætla að gera betur og biðst afsökunar á því að hafa hringt þetta símtal. Ábyrgð hennar sé mikil í dag sem ráðherra. Innlent 28.1.2025 13:16
Telur umræðu um styrki flokkanna háværa umfram tilefni Umræðan um mögulega ofgreidd framlög til stjórnmálaflokka er hávær umfram tilefni og tekur ekki nægt mið af kjarna málsins og markmiði laga um gagnsæi. Þetta segir fyrrverandi framkvæmdastjóri Vinstri grænna sem var formaður nefndar sem undirbjó breytingar að lögum um styrki til stjórnmálaflokka. Sjálfstæðisflokkurinn telur sig ekki þurfa að greiða styrki til baka. Innlent 28.1.2025 13:01
Hótanir Trumps eigi ekki að líðast í lýðræðissamfélagi Íslenskur þingmaður í Vestnorræna ráðinu, sem er samstarfsráð Íslands, Færeyja og Grænlands, segir að taka þurfi hótanir Donalds Trump Bandaríkjaforseta gagnvart Grænlandi alvarlega. Ráðið hefur sent frá sér ályktun þar sem lýst er yfir fullum stuðningi við Grænland. Innlent 28.1.2025 12:24
Kári nýr formaður Sameykis Kári Sigurðsson, sem verið hefur varaformaður Sameykis, hefur tekið við formennsku hjá félaginu frá og með deginum í dag. Innlent 28.1.2025 12:09
Styrkjamál flokkanna og ásælni Trumps í Grænland Í hádegisfréttum fjöllum við áfram um mögulega ofgreidd framlög til stjórnmálaflokkanna sem komin eru í ljós. Innlent 28.1.2025 11:38
Örfáir læknar sinni hundruðum Hundruð sækja Læknavaktina daglega og framkvæmdastjóri segir læknaskort plaga starfsemina. Mikil veikindi herji nú á landsmenn. Innlent 28.1.2025 11:36
Forsætisráðherra Serbíu segir af sér í kjölfar mótmæla Miloš Vučević, forsætisráðherra Serbíu, hefur sagt af sér í kjölfar mótmæla stúdenta og bænda sem stöðvuðu umferð við Autokomanda-gatnamót í Belgrad í gær. Erlent 28.1.2025 11:00
„Líta svo á“ að Sjálfstæðisflokkurinn hafi uppfyllt lögin Sjálfstæðisflokkurinn lítur svo á að hann hafi uppfyllt skilyrði laga til þess að fá fjárstyrk frá ríkinu þrátt fyrir að hann hafi ekki verið skráður sem stjórnmálasamtök þegar styrkur var greiddur út árið 2022. Flokkurinn þáði þá 167 milljónir króna úr ríkissjóði. Innlent 28.1.2025 10:17
Fjörutíu og fjórir einstaklingar 100 ára eða eldri Í dag eru 44 einstaklingar 100 ára eða eldri á íslandi. Þrír þeirra eiga maka á lífi. Elsti núlifandi einstaklingurinn búsettur á Íslandi er kona fædd árið 1917 og er því 107 ára. Hún er búsett á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í nýrri samantekt frá Þjóðskrá Íslands. Innlent 28.1.2025 09:13
Kallar eftir rannsókn og endurgreiðslu á styrkjum til stjórnmálaflokka Formaður Framsóknarflokksins kallar eftir því að ríkisstyrkir til stjórnmálaflokka verði rannsakaðir í kjölfar umfjöllunar um að nokkrir flokkar hafi fengið slíka styrki án þess að uppfylla skilyrði laga. Hann vill að flokkar sem hafa fengið þannig greitt verði látnir endurgreiða styrkina. Innlent 28.1.2025 08:42
Snjómokstur hófst um klukkan fjögur í nótt Eiður Fannar Erlendsson yfirmaður vetrarþjónustu Reykjavíkur segir snjómokstur hafa gengið vel í nótt og í morgun. Snjómokstur hófst um klukkan fjögur í nótt og hefur verið kallaður út aukamannskapur til að ryðja snjónum burt. Veður 28.1.2025 08:41
Sökuð um að hafa pyntað dóttur sína fyrir fylgjendur og peninga Þrjátíu og fjögurra ára gömul kona í Queensland í Ástralíu hefur verið ákærð fyrir að pynta eins árs gamla dóttur sína í þeim tilgangi að auka við sig fylgjendum á samfélagsmiðlum og falast eftir fjármunum. Erlent 28.1.2025 08:20
Google breytir nafninu á Mexíkóflóa Bandaríski tæknirisinn Google hyggst breyta nafninu á Mexíkóflóa í Ameríkuflóa hjá bandarískum notendum. Þannig mun nýja nafnið, Ameríkuflói (e. Gulf of America), birtast bandarískum notendum á Google Maps. Erlent 28.1.2025 07:43
Segja átta látna af þeim 26 gíslum sem láta á lausa Stjórnvöld í Ísrael segja átta af þeim 26 gíslum sem Hamas hefur skuldbundið sig til að láta lausa í fyrsta fasa vopnahlésis á Gasa séu látnir. Yfirvöld eru sögð hafa fengið lista frá samtökunum í nótt sem staðfesti að átta hafi verið drepnir. Erlent 28.1.2025 07:07
Víða mikil snjókoma og órólegar umhleypingar í kortunum Miðja kaldrar smálægðar er nú skammt suður af Reykjanesi og fer lægðin austur og síðar norðaustur í dag og snýr umhverfis sig bökkum með snjókomu eða éljum sem gera víða vart við sig á landinu. Veður 28.1.2025 07:07
Uppákoma eftir sérsveitaraðgerð á Bakkafirði „kornið sem fyllti mælinn“ Sveitarstjóri Langanesbyggðar segir að uppákoma í kjölfar sérsveitaraðgerðar á Bakkafirði í haust hafi verið kornið sem fyllti mælinn sem leiddi til þess að nú sé lagt til að leigusamningi við ferðaþjónustufyrirtæki þar verði sagt upp. Eigandi þess gagnrýndi neikvæðni og afskiptasemi íbúa eftir aðgerðina. Innlent 28.1.2025 07:02
Trump enn iðinn við kolann: Beinir sjónum að hernum og alþjóðasamvinnu Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur verið iðinn við kolann frá því að hann sór embættiseiðinn fyrir rúmri viku síðan en í gær undirritaði hann nokkrar forsetatilskipanir til viðbótar þeim tugum sem hann gaf út í síðustu viku. Erlent 28.1.2025 06:42
Svíar leggja hald á skip vegna skemmda á sæstreng Herskip á vegum Atlantshafsbandalagsins komu í gær að þremur skipum sem fluttu farm frá Rússlandi nálægt stað þar sem enn einn sæstrengurinn fór í sundur á Eystrasalti. Sænskir saksóknarar segja að eitt skipanna hafi verið kyrrsett en öll þrjú skipin eru til rannsóknar. Erlent 27.1.2025 23:24
Senda Trump skilaboð og auka viðbúnað við Grænland Ríkisstjórn Danmerkur opinberaði í dag nýja áætlun um að auka hernaðarviðbúnað ríkisins við Grænland og á norðurslóðum til muna. Smíða á ný herskip, auka eftirlit með gervihnöttum og kaupa tvo langdræga dróna en áætlað er að verkefnið muni kosta um 14,6 milljarða danskra króna. Erlent 27.1.2025 21:58
Segir Grænland mikilvægt fyrir íslenska flugrekendur Verkefni á Grænlandi hafa mikla þýðingu fyrir íslenska flugrekendur, segir flugstjóri hjá Mýflugi. Hann segir magnað að fljúga um stórbrotið landslag Grænlands, jafnt að vetri sem sumri. Innlent 27.1.2025 21:54
Telur efasemdir íbúa vegna áforma Carbfix eðlilegar Stjórnendur Carbfix vilja reisa kolefnisförgunarstöð í Ölfusi svipaða þeirri sem til stendur að byggja í Straumsvík. Íbúafundur vegna málsins fór fram í Ölfusi í kvöld. Bæjarfulltrúi segir efasemdir íbúa eiga við rök að styðjast. Innlent 27.1.2025 21:53
Vegum lokað vegna snjóflóðahættu Veginum um Raknadalshlíð í Patreksfirði og Kleifaheiði var lokað í kvöld vegna snjóflóðahættu. Snjóflóð hafa fallið á svæðinu og er talin hætta á fleiri flóðum næstu klukkustundir. Innlent 27.1.2025 20:32