Lífið

Salka Sól og Elísabet Jökuls mættu á frumsýningu
Það var líf og fjör í Borgarleikhúsinu síðastliðið föstudagskvöld þegar einleikurinn Ífigenía í Ásbrú var frumsýndur á Litla sviði Borgarleikhússins fyrir fullum sal áhorfenda. Sýningin var sýnd í Tjarnarbíói allan síðasta vetur.

„Komst ekki á Emmy-hátíðina en komst á bráðamóttökuna“
Hollywood-stjörnur flykktust á Emmy-verðlaunahátíðina í nótt en ein þeirra sem komst ekki var kólumbíska stjaran Sofia Vergara. Ástæðan var svæsin augnsýking.

Staða inn á fótboltavelli sem heitir það sama og bleyjutegund
Sextán liða úrslitin í Kviss héldu áfram á laugardaginn þegar Þróttur og Fram mættust í stórskemmtilegu viðureign.

Glæpasagnahöfundur nældi sér í fyrirsætu
Glæpasagnahöfundurinn Ragnar Jónasson og Tatiana Ósk Hallgrímsdóttir, fyrirsæta og fyrrverandi forstöðumaður menningarmála hjá Edition, eru nýtt par.

Stökkva út í sjó úr margra metra hæð og fréttamaður fékk að prófa
Um árabil hefur æska þjóðarinnar stundað það að stökkva út í sjó á heitum sumardögum. Nýlega tók Konni Gotta sportið á næsta stig og rekur fyrirtækið Hoppland á Akranesi þar sem gestir geta stokkið fram af pöllum í mikilli hæð.

„Áttum góða tíma og mjög ástríkt samband að mestu“
Ásdís Rán Gunnarsdóttir, fyrirsæta og áhrifavaldur, er orðin einhleyp.Nýlega slitnaði upp úr sambandi hennar og Þórðar Daníels Þórðarsonar athafnamanns eftir tveggja ára samband.

Ein sú fegursta komin á fast
Kolbrún Pálína Helgadóttir markaðssérfræðingur hjá Ósum og jógakennari, hefur fundið ástina í örmum silfurrefsins Helga Guðmundssonar. Parið virðist afar lukkulegt með hvort annað.

Drake fékk brjóstahaldarann frá Guggu í fangið
Áhrifavaldurinn og ofurskvísan Guðrún Svava Egilsdóttir, betur þekkt sem Gugga í gúmmíbát á Instagram, kastaði brjóstahaldara sínum upp á svið á tónleikum kanadíska rapparans Drake í Berlín í Þýskalandi í gær. Drake var hæstánægður með uppátækið.

Stjörnulífið: Gellurnar stóðu vaktina
Fallegt haustveður, tónleikar, brúðkaup og ljúfar samsverustundir einkenndu liðna viku hjá stjörnum landsins. Auk þess lögðu margir land undir fót og sleiktu sólina á erlendum slóðum.

Lifði með fjögurra prósenta sjón án greiningar
„Eftir að hafa rætt við margra aðra þarna úti sem eru með þessa greiningu þá finnst mér það vera ennþá skýrara hvað þessi sjónskerðing er ofboðslega mikið „tabú“, jafnvel þó hún sé fáránlega algeng,” segir Dagbjört Andrésdóttir söngkona og baráttukona. Hún fæddist með CVI - heilatengda sjónskerðingu (cerebral visual impairment) en fékk þó ekki greiningu fyrr en hún var orðin 26 ára gömul.

Adolescence, The Studio og Colbert komu, sáu og sigruðu
Dramaþáttaröðin Adolescence kom, sá og sigraði á Emmy-verðlaunahátíðinni í gærkvöldi, þar sem hún hlaut sex verðlaun.

Kettir með engar rófur til sýnis
Um helgina stóð Kattaræktarfélag Íslands fyrir sérstakri kynningardagskrá í Garðheimum í Breiðholti, þar sem gestir gátu kynnt sér fjölbreyttar kattategundir – hver annarri ólíkari, meðal annars ketti með enga rófu.

Bein útsending: Haustbingó Blökastsins
Hið árlega Haustbingó Blökastsins fer fram í beinni útsendingu á Vísi og sjónvarpsstöðinni Vísi klukkan 19:30 í kvöld. Eins og alltaf eru stórir vinningar og strákarnir lofa stuði og stemningu.

Safnaði fyrir draumaferðinni á þremur mánuðum
„Ég held að það séu ekkert allir sem átta sig á því að það þarf ekki að vera rándýrt að ferðast, þetta snýst allt um skipulag og rétta forgangsröðun,” segir Ingibjörg Halla Ólafsdóttir 24 ára grunnskólakennari en hún er með gífurlega ástríðu fyrir ferðalögum og hefur í dag heimsótt þrjátíu lönd.

Krakkatían: Vestfirðir, sundkappi og söngleikur
Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á Krakkatíunni! Í Krakkatíunni beinum við kastljósinu bæði að því sem gerðist hér heima og erlendis ásamt ýmsum spurningum úr öllum áttum - alls konar spurningar fyrir yngri kynslóðina.

Skyrið okkar ekki lengur ostur heldur jógúrt
Á sama tíma og Hallgrímur Helgason syrgir gamla íslenska skyrið og kallar breytingarnar á framleiðsluaðferð þess „næstum með verstu menningarglæpum okkar sögu“, bendir Dóra Svavarsdóttir, formaður Slow Food á Íslandi, á að þetta sé aðeins eitt dæmi um hvernig við erum að missa tengslin við uppruna og fjölbreytni matarins okkar.

Snýr aftur sem ritstjóri eftir tvo áratugi
Tveimur áratugum eftir sína fyrstu ritstjórnartíð hefur Bart Cameron snúið aftur til Reykjavík Grapevine. Hann rifjar upp árin þar sem skrifstofan minnti frekar á félagsheimili, fjöldi tónlistarmanna við kaffivélina og ritstjórn sem svaf varla. Bart snýr nú aftur með nýjar áherslur í breytt samfélag, bæði innan og utan veggja skrifstofunnar.

Fréttatía vikunnar: Þingsetning, landsleikur og klamydía
Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á Fréttatíunni til þess að komast að því. Sem fyrr er aðeins montréttur að launum fyrir góða frammistöðu.

Nýr forseti ÍSÍ kallar eftir sameiginlegu átaki í lýðheilsu
Willum Þór Þórsson, nýkjörinn forseti ÍSÍ og fyrrverandi heilbrigðisráðherra, horfir bæði til framtíðar íslenska heilbrigðiskerfisins og nýs hlutverks síns hjá ÍSÍ.

Ásdís Rán og Herbert Guðmunds glæsileg á frumsýningu
Mætingin var þrusugóð í Háskólabíói í gærkvöldi þegar tveir fyrstu þættirnir af spennu þáttaröðinni Reykjavík Fusion voru frumsýndir. Stemningin í salnum var frábær og óhætt að segja að þættirnir lofi góðu.

Sveppi kominn í Púðursykur: „Vettvangur sem ég hef ekki farið inn á áður“
Leikarinnn og grínistinn Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi, hefur bæst við uppistandshópinn Púðursykur og mun þreyta frumraun sína í uppistandi með hópnum í kvöld.

Stofnandi Omnom selur hönnunarhús í Akrahverfinu
Óskar Þórðarson, einn stofnenda súkkulaðiverskmiðjunnar Omnom, og eiginkona hans Marta Nowosad, hafa sett fallegt raðhús við Byggakur í Akralandi í Garðabæ á sölu. Húsið er 229 fermetrar að stærð á tveimur hæðum. Ásett verð er 209 milljónir.

Sló sér upp með báðum á mótinu og endaði með sigurvegaranum
Sundfatamódelið Brooks Nader er sögð hafa deitað bæði Carlos Alcaraz og Jannik Sinner meðan á Opna bandaríska meistaramótinu í tennis stóð. Þeir spiluðu til úrslita á mótinu en Alcaraz virðist hafa unnið tvöfalt, bikarinn og hjarta módelsins.

Hollendingar bætast í sniðgönguhópinn
Hollendingar hafa nú bæst í hóp þeirra sem segjast munu sniðganga Eurovision sem fram fer í Vín í Austurríki á næsta ári, verði Ísraelum heimilt að taka þátt.

Læknirinn með risa heimasmíðaðan pizzakofa í garðinum
Læknirinn Ragnar Freyr Ingvarsson er með stóran heimasmíðaðan pizza kofa í garðinum.

2222 dagar sem betri útgáfa af sjálfum sér
Tónlistarmaðurinn Gauti Þeyr Másson, jafnan þekktur sem Emmsjé Gauti, fagnaði í gær 2222 dögum án áfengis, sem samsvarar rúmlega sex árum.

„Við erum eiginlega gangandi kraftaverk“
„Minn stærsti ótti í lífinu var að fæða barn en hef nú yfirstigið það. Mér finnst konur alveg magnaðar. Við berum börnin okkar í níu mánuði, fæðum þau, og síðan tekur við brjóstagjöf. Við erum eiginlega gangandi kraftaverk,“ segir hin 33 ára Svanhildur Heiða Snorradóttir.

Síðasta vígið fallið: „Við erum búnir að ræða þetta í 22 ár“
Ölstofa Kormáks og Skjaldar hefur komið fyrir sjónvarpi þar sem áður var krítartafla með bjórverði. Eigendur létu verða af því eftir að hafa rætt málið í 22 ár. Einhvern veginn verði að halda kúnnum í húsi þegar áfengisgjald hækkar stöðugt. Ölstofan sé þó ekki að breytast í sportbar.

Óttar selur glæsiíbúð í Garðabæ
Óttar Pálsson, hæstaréttarlögmaður og einn af eigendum lögfræðistofunnar Logos, hefur sett glæsilega íbúð við Löngulínu í Garðabæ á sölu. Íbúðin er á efstu hæð með fallegu sjávarútsýni. Ásett verð er 124,9 milljónir.

Guðlaugur Þór í klandri með klukkuna
Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins pirraðist í pontu Alþingis í dag undir umræðu um fjárlagafrumvarpið þegar klukkan þingsalnum, sem gefur ræðutíma þingmanna til kynna, klikkaði á meðan hann var að tala.