Erlent
101 102 103 104 105 106 107 108 109 … 334 ›
Meintur „Bítill ISIS“ gengst við hryðjuverkastarfsemi Maður sem grunaður er um að hafa verið einn af „Bítlum Íslamska ríkisins“, hefur játað aðild að hryðjuverkastarfsemi fyrir dómi í Bretlandi. Aine Leslie Davis játaði í morgun að hafa borið skotvopn í hryðjuverkatilgangi og gekkst hann einnig við tveimur ákærum um að hafa fjármagnað hryðjuverkastarfsemi. Erlent 16.10.2023 11:49
Støre hristir hressilega upp í ríkisstjórninni Anniken Huitfeldt hefur látið af embætti utanríkisráðherra Noregs. Þetta eru þeirra breytinga á norsku ríkisstjórninni sem Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, tilkynnti um í morgun. Erlent 16.10.2023 11:32
Bananaprins kjörinn forseti í Ekvador Bananaerfinginn Daniel Noboa var í gærkvöldi kjörinn forseti Ekvador og verður hann sá yngsti til að sinna embættinu í sögu landsins. Noboa hefur heitið því að taka á ofbeldisöldu sem ríður yfir landið af hörku og auka atvinnustig ungs fólks. Erlent 16.10.2023 10:09
Vaktin: Netanjahú segir Ísrael berjast við Nasista og myrkraöfl Þúsundir íbúa Gasa bíða nú við landamærin að Egyptalandi en miðlar vestanhafs greindu frá því í nótt að til stæði að opna fyrir umferð nú í morgunsárið. Erlent 16.10.2023 09:52
Martraðarástand í Súdan og níu þúsund fallnir Allt að níu þúsund manns hafa fallið á undanförnum sex mánuðum í Súdan og mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur lýst mannúðarástandinu við martröð. Aðstæður almennings í Súdan hafa versnað til muna á undanförnum mánuðum. Erlent 16.10.2023 09:10
Sextán ára drengur grunaður um þrjú morð á tveimur sólarhringum Lögregla í Svíþjóð hefur handtekið sextán ára dreng sem grunaður er um að hafa myrt þrjá á tveimur sólarhringum í síðustu viku. Málið er sagt tengjast átakanna innan Foxtrot-glæpagengisins. Erlent 16.10.2023 08:49
Martti Ahtisaari fallinn frá Martti Ahtisaari, fyrrverandi Finnlandsforseti og handhafi friðarverðlauna Nóbels, er látinn, 86 ára að aldri. Erlent 16.10.2023 07:44
Misvísandi fréttir um opnun landamæranna milli Gasa og Egyptalands Rafah-landamærin milli Gasa og Egyptalands verða opnuð aftur nú í morgunsárið til að hleypa mannúðaraðstoð inn til Gasa. Frá þessu greindi Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, eftir fund með Abdel Fattah al-Sisi, forseta Egyptalands. Erlent 16.10.2023 07:04
Eldsneyti sjúkrahúsa í Gasa að klárast og lík grafin í fjöldagröfum Eldsneytisbirgðir sjúkrahúsa í Gasa klárast á næstu dögum sem gæti haft hörmulegar afleiðingar. Talið er að 600 þúsund Palestínumenn hafi flúið norður-Gasa og tugir þúsunda leitað öruggs skjóls við spítala. Grafa þurfti hundrað manns í fjöldagröf til að rýma líkhús stærsta spítalans í Gasaborg. Erlent 16.10.2023 00:25
Stakk sex ára dreng til bana og særði móður hans vegna íslamstrúar þeirra Maður í Illinois sem stakk sex ára dreng til bana og særði móður hans alvarlega vegna íslamstrúar þeirra hefur verið ákærður fyrir morð og hatursglæp. Erlent 15.10.2023 23:03
Stjórnin í Póllandi fallin samkvæmt útgönguspám Samkvæmt fyrstu útgönguspám úr þingkosningum í Póllandi nær stjórnarflokkur landsins, Lög og réttlæti, ekki hreinum meirihluta. Líklegasta niðurstaðan er talin vera samsteypustjórn mynduð af hinum lýðræðislegu stjórnarandstöðuflokkum. Erlent 15.10.2023 21:18
Ráðleggja sýklalyf eftir óvarið kynlíf til að draga úr kynsjúkdómasmitum Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna hefur ákveðið að mæla með því að samkynhneigðir og tvíkynhneigðir karlmenn og trans konur taki sýklalyfið doxycycline eftir að hafa stundað óvarið kynlíf, til að draga úr líkum á kynsjúkdómasmiti. Erlent 15.10.2023 16:13
Þungir bílar borgi hærri bílastæðagjöld Tvær borgir í Frakklandi ráðgera að láta eigendur stærri bíla borga meira í bílastæðagjöld í framtíðinni en eigendur lítilla bíla. Þeir taki meira pláss og séu hættulegri í umferðinni. Erlent 15.10.2023 14:30
Ísland verði að taka afstöðu gegn árásum Ísraels á Gasa Formaður félagsins Ísland-Palestína segir íslensk stjórnvöld verða að taka afstöðu gegn ástandinu á Gasaströndinni, sem Ísrael hafi skapað. Boðað hefur verið til samstöðufundar á Austurvelli, á meðan innrás Ísraelshers á Gasa er yfirvofandi. Erlent 15.10.2023 13:45
Hamas liðar hafi verið orðnir örvæntingarfullir Albert Jónsson, sérfræðingur í alþjóðamálum, segir óhjákvæmilegt að Ísraelsher muni hernema Gasaströndina. Hann segir Hamas liða hafa verið farnir að fyllast áhyggjum af eigin stöðu vegna þýðu í samskiptum Ísraela við aðrar Arabaþjóðir í Miðausturlöndum. Erlent 15.10.2023 13:42
Tillögu um að tryggja rétt frumbyggja í stjórnarskrá hafnað í Ástralíu Tillögu um nýja þingnefnd sem átti að ráðleggja þingi um málefni frumbyggja var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu í Ástralíu í gær. Leiðtogar frumbyggja kalla eftir vikulangri þögn og íhugun. Frumbyggjar hafa búið í Ástralíu í 60 þúsund ár. Erlent 15.10.2023 10:36
Kosningar í Póllandi: Tvísýnt hvernig fer Kjördagur er runninn upp í Póllandi þar sem þingkosningar fara fram í dag. Kjörstaðir opnuðu klukkan sjö í morgun að staðartíma og verða þeir opnir þar til klukkan níu í kvöld. Samhliða ganga Pólverjar til þjóðaratkvæðagreiðslu um fjögur mál. Miðað við skoðanakannanir er alls óvíst hver mun geta myndað stjórn að kosningunum loknum og eru allar líkur á að mynda þurfi samsteypustjórn. Erlent 15.10.2023 08:33
Hafi þrjár klukkustundir til að flýja Gasa Þúsundir Palestínumanna halda áfram að flýja frá norðurhluta Gasastrandar í aðdraganda innrásar Ísraelshers. Herinn hefur tilkynnt að innrásin verði gerð á landi, í lofti og af sjó. Íranir hafa hótað Ísraelsmönnum að bregðast við haldi Ísraelar áfram hernaði sínum gegn Gasa. Erlent 15.10.2023 07:56
Ísraelar hæfðu flugvöllinn í Aleppo í loftárás Ísraelar eru sagðir hafa hæft Aleppo-flugvöll í Sýrlandi í loftárás. Talið er að loftárásin eigi að trufla íranskt birgðakerfi til Sýrlands. Erlent 14.10.2023 22:00
Ísraelski herinn undirbýr allsherjarárás Þúsundir Palestínumanna flúðu norðurhluta Gasastrandarinnar í dag á meðan Ísraelar undirbjuggu innrás og létu loftárásir dynja á Gasasvæðinu. Benjamín Netanjahú sagði „næsta stig yfirvofandi“ og ísraelski herinn ætlar að ráðast á svæðið úr lofti, landi og legi. Erlent 14.10.2023 19:18
Hægrisveifla á Nýja-Sjáland og nýr forsætisráðherra Nýr forsætisráðherra tekur við á Nýja-Sjálandi. Kosningar fóru fram í gær. Þjóðarflokkurinn fékk um 40 prósent atkvæða og Verkamannaflokkurinn aðeins um 25 prósent. Erlent 14.10.2023 10:55
Segjast ekki hafa endurheimt lík fallinna borgara Ísraelsher hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem því er hafnað að herinn hafi náð að endurheimta lík tugi borgara sem fallið hafi í árás Hamas liða í suðurhluta Ísrael. Erlent 14.10.2023 09:12
Hundrað ára saga landnáms og aðskilnaðar Vika er liðin síðan stríð hófst í Ísrael og Palestínu. Dagurinn hófst þegar samtökin Hamas skutu eldflaugum frá Gasaströndinni á Ísrael og brutu stuttu síðar niður múrinn sem skilur Gasaströndina frá Ísrael. Við tóku blóðugar og hryllilegar árásir á landnemabæi Ísraelsmanna í suðri og svo gagnsókn Ísraelsmanna á Palestínumenn. Átökin eru þau blóðugustu í 75 ára deilu þjóðanna tveggja um þetta helga land. Hér verður stiklað á stóru í þessari löngu og flóknu sögu þjóðanna tveggja síðustu hundrað ár. Erlent 14.10.2023 07:00
Palestínumenn flýja í massavís áður en innrás Ísraela hefst Palestínumenn hafa flúið í massavís frá norðurhluta Gasastrandar í dag eftir að Ísrael sagði rúmlega milljón íbúum svæðisins að rýma það áður en innrás ísraelska hersins hefst í fyrramálið. Erlent 14.10.2023 00:11
„Tvískinnungur“ að fordæma stríðsglæpi Rússa en ekki Ísraelsmanna Lögmaður, sem hefur sérhæft sig í mannréttindum, segir allt stefna í þjóðernishreinsanir eða jafnvel þjóðarmorð á Gasaströndinni. Vestræn stjórnvöld sýni tvískinnung með því að hlaupa upp til handa og fóta til að fordæma stríðsglæpi Rússa en ekki Ísraela. Erlent 13.10.2023 20:53
Læknar án landamæra fordæma Ísraela: „Verið er að fletja út Gasaströndina“ Læknar án landamæra segja Ísraela hafa gefið læknum einungis tvo klukkutíma til að rýma sjúkrahús í Al Awda á Gasaströndinni. Læknar samtakanna fordæma aðgerðirnar og áframhaldandi árásir á innviði heilbrigðiskerfisins á Gasaströndinni. Erlent 13.10.2023 20:45
Þykjast vera dauðar til að losna við kynlíf Kvenkyns norrænir froskar nýta sér nokkrar leiðir til að komast hjá óumbeðnu kynlífi við karldýr sömu tegundar. Þykjast þau vera karlkyns, troða sér í burtu eða þykjast vera dauð. Erlent 13.10.2023 16:49
Sextán ára handtekinn fyrir tvö morð á heimili frægs listamanns Sextán ára strákur hefur verið handtekinn vegna gruns um að hann hafi framið tvö morð í úthverfi Stokkhólms. Fundust tvær konur látnar í einbýlishúsi sem samkvæmt sænskum miðlum er í eigu frægs listamanns. Erlent 13.10.2023 16:05
Morðingi Abe fær sínu framgengt Japanska ríkið hefur krafist þess að starfsemi Sameiningarkirkjunnar þar í landi verði lögð niður. Fyrrverandi forsætisráðherra Japan var myrtur vegna þess að morðingi hans taldi hann tengjast kirkjunni. Erlent 13.10.2023 14:59
Bandaríkin geti „gengið og tuggið tyggjó á sama tíma“ „Bandaríkin geta gengið og tuggið tyggjó á sama tíma,“ sagði Lloyd Austin, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, á blaðamannafundi með Yoav Gallant, varnarmálaráðherra Ísrael, nú fyrir stundu. Erlent 13.10.2023 12:22