Innlent
292 293 294 295 296 297 298 299 300 … 334 ›
Ökumaður að öllum líkindum sofandi þegar slysið varð Ökumaður Kia bifreiðar sem lést í bílslysi á Suðurlandsvegi í júní í fyrra var að öllum líkindum sofandi þegar slysið átti sér stað. Slitlag á vegi var einnig ekki samkvæmt nýjustu viðmiðum Vegagerðar. Einn slasaðist alvarlega í slysinu sem átti sér stað seinni part dags 16. júní. Innlent 24.11.2023 12:02
Húsnæðisstuðningur við Grindvíkinga fyrir 240 milljónir á mánuði Ríkisstjórnin samþykkti á ríkisstjórnarfundi í dag stuðningsaðgerðir til að mæta húsnæðisþörfum Grindvíkinga vegna jarðhræringa á svæðinu. Aðgerðirnar fela meðal annars í sér tímabundinn fjárhagslegan stuðning vegna aukins húsnæðiskostnaðar Grindvíkinga. Innlent 24.11.2023 11:59
Evrópumeistarar í raftækjaúrgangi Freyr Eyjólfsson umhverfisverndarsinni hefur skorið upp herör gegn Svörtum fössara. Hann segir Íslendinga umhverfissóða og kaupæðið sem verið er að efna til í dag sé enn eitt sprekið á bál neysluhyggjunnar. Innlent 24.11.2023 11:52
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um blaðamannafund ríkisstjórnarinnar sem nú stendur yfir þar sem aðgerðir til handa Grindvíkingum í húsnæðismálum verða kynntar. Innlent 24.11.2023 11:36
Fjórir handteknir í tengslum við hnífaárás Fjórir hafa verið handteknir í tengslum við hnífaárás í Reykjavík í nótt. Til skoðunar er hvort árásin tengist annarri árás á Litla hrauni í gær. Sú árás átti sér stað á alræmdu torgi innan fangelsisins sem fangelsismálayfirvöld hafa varað við árum saman. Innlent 24.11.2023 11:32
Bein útsending: Blaðamannafundur um húsnæðisstuðning við Grindvíkinga Ríkisstjórnin hefur boðað til blaðamannafundar í Ráðherrabústaðnum klukkan 11:30 í dag. Á fundinum munu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármála- og efnahagsráðherra ræða húsnæðisstuðning við íbúa Grindavíkur. Innlent 24.11.2023 11:08
Verðbólga jókst verulega í kjölfar gossins í Heimaey „Það er erfitt að bera saman hugsanlegar efnahagsaðgerðir nú og á tíma Vestmannaeyjagossins fyrir 50 árum vegna þess hve mikið hagkerfið hefur breyst. Sérstaklega er umgjörð peningamála nú allt önnur.“ Innlent 24.11.2023 09:41
Hnífstunguárás í nótt sögð tengjast árásinni á Litla-Hrauni Hnífstunguárás sem framin var í nótt tengist annarri árás á Litla-Hrauni í gær. Þetta herma heimildir Ríkisútvarpsins. Eggvopni var sömuleiðis beitt í árásinni á Litla-Hrauni og sú árás er sögð tengjast skotárásinni í Úlfarsárdal í byrjun mánaðar. Innlent 24.11.2023 09:21
Boða til blaðamannafundar um húsnæðisstuðning við Grindvíkinga Ríkisstjórnin hefur boðað til blaðamannafundar þar sem fjallað verður um húsnæðisstuðning við íbúa Grindavíkur í kjölfar jarðhræringanna á Reykjanesskaga síðustu vikurnar. Fundurinn hefst klukkan 11:30. Innlent 24.11.2023 08:41
Sakar þingmenn um að drífa „fordómafulla og óvægna umræðu“ Arnþór Guðlaugsson, framkvæmdastjóri Ísteka ehf., hefur ítrekað afstöðu fyrirtækisins gegn frumvarpi um bann við blóðmerahaldi og segist vona að það verði ekki að „árlegri hefð“ að endurflytja það. Innlent 24.11.2023 07:55
Fossvogsbrúin „fyrst og fremst samgöngumannvirki, ekki útivistarsvæði“ Vegagerðin og Landssamtök hjólreiðamanna segja núverandi hönnun Fossvogsbrúarinnar tryggja öryggi og skjól hjólreiðamanna. Það þurfi ekki að breyta hönnun brúarinnar eins og byggingarverkfræðingur vill gera svo gangandi geti notið sólarlags og útsýnis betur. Innlent 24.11.2023 07:00
Ölvaður nemandi átti erfitt með að stjórna tilfinningum sínum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til rétt eftir miðnætti í nótt vegna nemanda menntaskóla sem hafði orðið ölvaður á skólaballi og átti í erfiðleikum með að stjórna tilfinningum sínum. Innlent 24.11.2023 06:40
Segir Alþingi „nánast lamað“ Stjórnarandstaðan gagnrýndi ríkisstjórnina harkalega í dag fyrir aðgerðarleysi. Þingmaður segir að Alþingi sé nánast lamað vegna óeiningar ríkisstjórnarflokkanna sem geti ekki komið sér saman um mikilvæg mál. Innlent 23.11.2023 22:30
„Gott að geta leyst flókin og erfið mál í góðri sátt“ Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í dag að fjarlægja styttu af séra Friðriki Friðrikssyni af Lækjargötu og koma henni fyrir í listaverkageymslum Listasafns Reykjavíkur. Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs, segir ánægjulegt að leysa málið í góðri sátt. Innlent 23.11.2023 21:12
Snjóbyssur komnar í gang í Bláfjöllum og stefnt á að fólk komist á skíði fyrir jól Snjóframleiðsla er hafin á skíðasvæðinu í Bláfjöllum. Framleiðslan mun tryggja það að hægt verður að hafa svæðið opið mun oftar en áður svo lengi sem frystir. Rekstrarstjóri skíðasvæðisins vonast til að hægt verði að hleypa fólki á skíði fyrir jól. Innlent 23.11.2023 20:49
Sá sem er grunaður um stunguárásina fékk átta ára dóm í fyrra Maðurinn sem er grunaður um að stinga samfanga sinn á Litla-Hrauni í dag hlaut í lok síðasta árs átta ára fangelsisdóm fyrir skotárás í miðbæ Reykjavíkur. Hann heitir Ingólfur Kjartansson og er rúmlega tvítugur. Innlent 23.11.2023 19:56
Borgarstjóri segir mikilvægt að fá forseta Íslands í heimsókn Forsetahjónin fóru víða í dag í fyrstu opinberu heimsókn forseta Íslands til Reykjavíkur frá því Vigdís Finnbogadóttir heimsótti borgina á 200 ára afmæli hennar árið 1986. Borgarstjóri segir mikilvægt að fá forsetann í heimsókn. Innlent 23.11.2023 19:17
Íbúar í Grindavík fá rýmri heimildir á morgun Íbúum í Grindavík verður leyft að fara á fólksbílum inn í bæinn á morgun til að sækja verðmæti. Þá verða sendibílar og aðrir bílar allt að 3,5 tonn í heildarþyngd og kerrur auk þess leyfðar. Þá verður ekki haldinn upplýsingafundur almannavarna á morgun. Innlent 23.11.2023 19:15
Rannsaka fíkniefnasölu við leiksskóla í Hafnarfirði Lögreglan fékk í dag tilkynningu um fíkniefnasölu við leikskóla í Hafnarfirði. Innlent 23.11.2023 18:14
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Grindavíkingar fengu í fyrsta sinn frá rýmingu að fara frjálsir inn í bæinn í dag. Fjöldi fólks mætti til þess að bjarga eigum sínum, sumir til að sækja nokkra hluti en aðrir sóttu búslóðina. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 kíkjum við til Grindavíkur, skoðum skemmdir í bænum og ræðum við íbúa. Innlent 23.11.2023 18:01
Rannsaka þjófnað í Bolungarvík sem hleypur á mörgum milljónum Lögreglan á Vestfjörðum rannsakar þjófnað í Bolungarvík sem átti sér stað um helgina. Innlent 23.11.2023 17:47
Elsta steinhús bæjarins ónýtt Elsta steinhús Grindavíkur er stórskemmt eftir hamfarir síðustu daga. Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur beint því til íbúa þess að tæma það alveg. Þrjár fjölskyldur bjuggu í húsinu. Innlent 23.11.2023 16:52
Telur að formaður HSÍ eigi að segja af sér Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens bætist í hóp þeirra sem fordæma að HSÍ hafi gert styrktarsamning við sjókvíaeldisfyrirtækið Arnarlax. Hann er skorinorður og segir að formaður HSÍ, Guðmundur B. Ólafsson, eigi að segja af sér – umsvifalaust. Innlent 23.11.2023 15:16
Þungt haldinn eftir stunguárás á Litla-Hrauni Lögreglan var kölluð út í fangelsið Litla-Hrauni vegna atviks sem þar átti sér stað í dag um tvöleytið. Einn var fluttur á sjúkrahús eftir líkamsárás. Samkvæmt heimildum Vísis var eggvopni beitt og sá sem fyrir árásinni varð er þungt haldinn. Lögregla segir rannsókn á árásinni á frumstigi. Innlent 23.11.2023 14:58
Kristrún gagnrýnir aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar í stuðningi við heimilin Formaður Samfylkingarinnar gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega á Alþingi í morgun fyrir aðgerðarleysi vegna stöðu heimilanna í landinu. Ekkert væri gert varðandi vaxta-, barna- og húsnæðisbætur í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi. Innlent 23.11.2023 14:44
„Maður vill ekkert meira en að búa áfram á þessu heimili“ Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er einn fjölmargra Grindvíkinga sem fengu að fara heim til sín í dag að sækja verðmæti. Fulltrúar fréttastofu fengu að líta við hjá honum og sjá skemmdirnar. Innlent 23.11.2023 14:22
Styttan af séra Friðriki tekin niður Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt tillögu Dags B. Eggertssonar borgarstjóra um að styttan af séra Friðriki Friðrikssyni í Lækjargötu verði tekin niður og nú flutt og fundinn staður í listaverkageymslum Listasafns Reykjavíkur. Innlent 23.11.2023 13:44
„Viðmiðin hjá okkur eru víðari en á Norðurlöndunum“ Forstjóri Lyfjastofnunar segir Sjúkratryggingar Íslands ákvarða hvaða sjúklingar fá niðurgreidd lyf sem notuð eru til að meðhöndla offitu. Breytt fyrirkomulag verði ekki endurskoðað nema Sjúkratryggingar óski eftir því. Innlent 23.11.2023 12:52
Þeim fækkar sem nota rafhlaupahjól undir áhrifum Um 22,4 prósent Íslendinga hafa notað rafhlaupahjól undir áhrifum síðustu sex mánuði. Af 18 til 24 ára aldurshópi er hlutfallið hærra, eða um 27 prósent. Þeim fækkar þó á milli ára Innlent 23.11.2023 12:43
Vilja lagabreytingu svo hægt sé að banna reykingar í fjölbýli Mikið ónæði hlýst af reykingum í og við fjöleignarhús að sögn Húseigendafélagsins. Fjöldi fólks hefur leitað til þess vegna ónæðis af völdum reykjandi nágranna. Lögfræðingur félagsins vill að lögum verði breytt svo hægt sé að banna reykingar í fjölbýlishúsum. Innlent 23.11.2023 12:29