Handbolti

Tryggvi og félagar enn með fullt hús stiga
Tryggvi Þórisson og félagar hans í Sävehof hafa unnið fyrstu tvo leikina sína í sænsku bikarkeppninni í handbolta eftir öruggan sjö marka sigur gegn Kroppskultur í dag, 36-29.

Danska handboltasambandið skiptir allt í einu um nafn
Danska handboltasambandið heitir ekki lengur danska handboltasambandið því frá og með gærdeginum þá tók sambandið upp nýtt nafn.

Arna Valgerður tekur við KA/Þór
Arna Valgerður Erlingsdóttir hefur verið ráðin þjálfari KA/Þórs í Olís-deild kvenna í handbolta. Hún tekur við af Andra Snæ Stefánssyni sem hefur stýrt liðinu undanfarin ár.

Erlingur tekur við Sádi-Arabíu
Handbolta þjálfarinn Erlingur Richardsson er nýr landsliðsþjálfari Sádi-Arabíu. Hann skrifaði undir eins árs samning.

Hita upp fyrir HM á móti með heimsmeisturunum
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta mun hita upp fyrir heimsmeistaramótið sem hefst í lok janúar á æfingamóti með Póllandi, Angóla og ríkjandi heimsmeisturum Noregs.

Óli Stef hefur áhyggjur af stöðu mála: „Vona að HSÍ sé ekki að gera upp á bak“
Íslenska handboltagoðsögnin Ólafur Stefánsson hefur áhyggjur af því hvernig mál standa varðandi sýningarrétt á Olís deildum karla og kvenna í handbolta. Hann vill ekki að þessum málum „sé klúðrað með einhverju kæruleysi“ en nú, þremur vikum fyrir upphaf komandi tímabils er ekki víst hvar deildirnar munu “eiga heima.“

Óli Stef óvænt á krossgötum: „Þeirra ákvörðun, þeirra missir“
Óvænt tíðindi bárust af handboltagoðsögninni Ólafi Stefánssyni í dag en hann hefur samið um starfslok við þýska úrvalsdeildarfélagið Erlangen. Ólafur hefur enduruppgötvað ást sína á handboltanum upp á síðkastið og vill núna á þessu stigi síns ferils stefna á starf sem aðalþjálfari.

Óli Stef óvænt farinn frá Erlangen
Ólafur Stefánsson hefur samið um starfslok við þýska félagið Erlangen sem spilar í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Frá þessu greinir Ólafur í samtali við Vísi.

Tíu leikmenn horfnir sporlaust
Tíu handboltastrákar frá Búrúndí gufuðu hreinlega upp á miðju heimsmeistaramóti í handbolta fyrir leikmenn nítján ára og yngri.

Öruggur sigur strákanna en stelpurnar töpuðu í lokin
Strákarnir í U19-landsliði karla í handbolta mæta Svíþjóð á fimmtudag og spila um sæti 17-20, á heimsmeistaramótinu sem nú stendur yfir í Króatíu. Stelpurnar í U17-landsliði Íslands spila væntanlega um 13.-16. sæti á EM í Svartfjallalandi.

U19 fór létt með Suður-Kóreu
Íslenska landsliðið í handbolta, skipað drengjum 19 ára og yngri fór létt með Suður-Kóreu á heimsmeistaramóti U19 sem fram fer í Króatíu þessa dagana.

Mikil vonbrigði hjá íslenska liðinu
Íslenska U19 ára landsliðið í handknattleik verður ekki á meðal sextán efstu á HM. Það varð ljóst í dag.

Verða með japanskan leikmann fjórða tímabilið í röð
Grótta heldur áfram að safna liði fyrir næsta tímabil í Olís-deild karla og hefur samið við japanska markvörðinn Shuhei Narayama.

Ungverji tekur við á Ísafirði og kemur með kærustu og hund
Handknattleiksdeild Harðar hefur fundið nýjan þjálfara í stað Spánverjans Carlos Martin Santos sem yfirgaf félagið á dögunum. Sá er Ungverji og heitir Endre Koi.

Myndband: Flautumark og trylltur dans þegar Ísland lagði Noreg á Ólympíuleikum æskunnar
U17 ára landslið Íslands tryggði sér 5. sætið á Ólympíuleikum æskunnar sem fram fara í Maribor í Slóveníu á dramatískan hátt í gær en Dagur Árni Heimisson skoraði flautumark sem tryggði Íslandi eins marks sigur.

Carlos hættur hjá Herði
Carlos Martin Santos hefur ákveðið að hætta sem þjálfari handboltaliðs Harðar.

Sádarnir bjóða Mikkel Hansen risasamning
Sádi-arabískt félag hefur boðið dönsku handboltastjörnunni Mikkel Hansen sannkallaðan risasamning.

Grótta fær tvo leikmenn frá Haukum
Grótta hefur sótt tvo leikmenn frá Ásvöllum fyrir komandi tímabil í Olís-deild karla í handbolta. Um er að ræða hinn 19 ára gamla Andra Fannar Elísson og hinn 22 ára gamla Ágúst Inga Óskarsson.

Sveimhuginn Kim Ekdahl tekur við Hong Kong
Hinn 33 ára gamli Kim Ekdahl du Rietz er nýr landsliðsþjálfari Hong Kong í handbolta. Segja má að hann hafi dottið inn í starfið en hann var staddur í landinu til að læra alþjóðasamskipti.

Sigvaldi og norsku stjörnurnar samþykkja launalækkun
Sigvaldi Guðjónsson er meðal leikmanna Kolstad sem hafa samþykkt að taka á sig lækkun launa vegna fjárhagsvandræða liðsins.

Síðustu dagar verið skrýtnir: „Þetta er náttúrulega þokkalega alvarlegt“
Janus Daði Smárason, landsliðsmaður Íslands í handbolta, samdi í dag við Meistaradeildarmeistara Madgeburg í Þýskalandi. Hann kveðst spenntur fyrir nýju verkefni eftir furðulega undanfarna daga.

47 sentímetra hæðarmunur á nýjum liðsfélögum Elvars og Arnars
Íslendingaliðið MT Melsungen er að styrkja sig fyrir átökin í Bundesligu handboltans á næstu leiktíð. Það má segja að liðið sé að bæta við sig leikmönnum af ýmsum stærðum og gerðum.

Janus Daði til Magdeburg
Janus Daði Smárason, landsliðsmaður í handbolta, er genginn í raðir Evrópumeistara Magdeburg frá Kolstad í Noregi. Hann skrifaði undir eins árs samning við þýska félagið.

Dregið í Evrópukeppnir í handbolta: Valskonur stefna á riðlakeppnina
Dregið var í Evrópudeild kvenna í handbolta og Evrópubikarkeppni karla og kvenna. ÍBV er á leið Lúxemborg og Portúgals, Valur fer til Litáen og Rúmeníu. Þá fer Afturelding til Noregs.

Aftur í atvinnumennsku
Handknattleiksmaðurinn Andri Már Rúnarsson er genginn í raðir þýska úrvalsdeildarfélagsins Leipzig frá Haukum. Þar hittir hann fyrir þjálfara sem hann þekkir vel en faðir hans, Rúnar Sigtryggsson, hefur stýrt liðinu síðan í nóvember á síðasta ári.

Hansen snýr aftur
Danski handknattleikskappinn Mikkel Hansen snýr aftur á völlinn þegar lið hans Álaborg hefur nýtt tímabil. Hinn 35 ára gamli Hansen hefur ekki spilað síðan í febrúar á þessu ári vegna álags og stresseinkenna.

Janus Daði mætti ekki á æfingu Kolstad
Samkvæmt upplýsingum TV 2 í Noregi mætti Janus Daði Smárason ekki á fyrstu æfingu undirbúningstímabilsins hjá Kolstad.

„Tækifæri að byggja upp eitthvað nýtt og byrja að skapa“
Aðalsteinn Eyjólfsson tók nú í sumar við þjálfun þýska handknattleiksliðsins Minden. Hann er á sínu fimmtánda ári sem þjálfari erlendis og segist verða meira opinn fyrir því að semja við íslenska leikmenn eftir því sem hann er lengur úti.

EHF sá ekkert að vinskap dómara og þjálfara: „Eins og að tala við tóma tunnu“
Handboltaþjálfarinn Halldór Jóhann Sigfússon var þjálfari FH þegar liðið lenti illa í dómarapari sem er sakað um stórfellda spillingu og hagræðingu úrslita.

„Snorri og Arnór eru handboltahausar“
Alexander Petersson líst vel á Snorra Stein Guðjónsson sem landsliðsþjálfara og hefur fulla trú á því að hann eigi eftir að ná árangri með landsliðið.