Handbolti

Með 27 mörk í síðustu tveimur leikjum: Besta frammistaðan síðan í Hjartasteini
Sennilega hefur enginn leikmaður Olís-deildar karla komið betur undan hléinu sem gert var vegna kórónuveirufaraldursins og Blær Hinriksson. Hann hefur skorað samtals 27 mörk í síðustu tveimur leikjum Aftureldingar.

„Á tímabili fannst mér ég vera rosalega langt frá þessum draumi“
Hákon Daði Styrmisson hlakkar til að læra við fótskör Guðjóns Vals Sigurðssonar hjá Gummersbach. Í morgun var greint frá því að hann hefði skrifað undir tveggja ára samning við þýska B-deildarliðið. Þar hittir Hákon fyrir annan Eyjamann, Elliða Snæ Viðarsson.

Seinni bylgjan: Sérstakt að hann hafi verið settur á bekkinn eftir síðasta leik
Af hverju byrjaði Martin Nagy á bekknum eftir hafa verið stórkostlegur á móti Fram? Seinni bylgjan velti fyrir sér markmannstöðunni hjá Val í Olís deild karla í handbolta.

Guðjón Valur krækir í Hákon Daða
Hornamaðurinn Hákon Daði Styrmisson gengur í raðir þýska B-deildarliðsins Gummersbach í sumar. Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari Gummersbach.

Fara beint út á völl eftir tvær vikur í sóttkví
Arnór Þór Gunnarsson, leikmaður Bergischer í þýsku úrvalsdeildinni og íslenska handboltalandsliðsins, losnaði úr tveggja vikna sóttkví á miðnætti. Hann fær ekki langan tíma til að koma sér af stað en Bergischer mætir Essen síðar í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - Valur 26-31 | Valsarar að komast í úrslitakeppnisgírinn
Selfoss og Valur mættust í Hleðsluhöllinni á Selfossi í kvöld í mikilvægum leik í baráttunni um heimaleikjarétt. Selfyssingar byrjuðu af miklum krafti, en Valsmenn tóku öll völd eftir um tíu mínútna leik og lönduðu að lokum góðum fimm marka sigri, 31-26.

Allt of margir í mínu liði í dag sem eru ekki nógu góðir
Halldór Jóhann Sigfússon var eðlilega ósáttur við leik sinna manna í kvöld, en Selfyssingar fengu Valsmenn í heimsókn í Hleðsluhöllina. Lokatölur 31-26, Valsmönnum í vil, og Halldór segir að liðinu hafi skort einbeitingu.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Afturelding 33 - 25 | Haukar völtuðu yfir Mosfellinga
Haukar voru í engum vandræðum með Aftureldingu og völtuðu yfir þá, leikurinn endaði með 8 marka sigri Hauka 33-25 sem hefði vel getað verið stærri.

Hrannar Guðmundsson: Þetta er munurinn á liðunum í dag
Afturelding tapaði á móti toppliði Hauka í kvöld. Slæmur kafli gestana undir lok fyrri hálfleiks setti Hauka í kjörstöðu sem endaði með átta marka sigri heimamanna 33-25.

Arnór og Ómar Ingi tilnefndir sem leikmaður mánaðarins
Tveir íslenskir landsliðsmenn eru tilnefndir sem besti leikmaður apríl-mánaðar í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Segja það skammarlegt hvað FH-ingar gerðu lítið fyrir kvennaliðið sitt
Sérfræðingar Seinni bylgjunnar létu forráðamenn FH heyra það fyrir það hvað félagið gerði lítið fyrir kvennaliðið sitt í Olís deild kvenna í vetur.

Lena á leið í Stjörnuna: „Er að skipta því það er búið að frysta hana“
Lena Margrét Valdimarsdóttir er að ganga í raðir Stjörnunnar í Olís-deild kvenna en hún kemur frá uppeldisfélaginu Fram. Greint var frá skiptunum í Seinni bylgjunni sem var á dagskránni á mánudagskvöldið.

Umfjöllun og viðtöl: Fram - Þór 31-19 | Afleitir Þórsarar guldu afhroð í Safamýrinni
Eftir þrjú töp í röð vann Fram stórsigur á Þór, 31-19, í Safamýrinni í Olís-deild karla í kvöld. Með sigrinum komst Fram upp í 8. sæti deildarinnar. Þór er hins vegar í ellefta og næstsíðasta sætinu og staða liðsins í botnbaráttunni verður alltaf erfiðari og erfiðari.

Halldór: Veit ekki hvort við vorum að spara okkur fyrir heimferðina
Þórsarar sóttu ekki gull í greipar Frammara í kvöld og töpuðu með tólf marka mun, 31-19. Halldór Örn Tryggvason, þjálfari Þórs, var afar ósáttur við frammistöðu sinna manna í leiknum.

Umfjöllun: Stjarnan - ÍR 33-23 | Auðvelt hjá Stjörnunni
Stjarnan vann stóran sigur á fallliði ÍR 33-22 á heimavelli en með sigrinum komust þeir upp í 4. sæti deildarinnar með 21 stig. ÍR féll endanlega úr deildinni á föstudaginn og tekur því grill-66 deildin við á næsta tímabili.

Umfjöllun og viðtöl: Grótta - ÍBV 28-32 | Eyjamenn aftur á sigurbraut
ÍBV kom sér aftur á sigurbraut eftir að hafa unnið Gróttu með fjórum mörkum.

Arnar Daði: Létum dóma fara í taugarnar á okkur
Grótta náði ekki að fylgja eftir sigrinum á ÍR og töpuðu á móti ÍBV. Leikurinn var jafn framan af en góður kafli ÍBV í seinni hálfleik fór með leikinn fyrir Gróttu.

Ísland einn fimm fastagesta en er í þriðja styrkleikaflokki
Íslenska karlalandsliðið í handbolta verður á meðal þeirra 24 liða sem spila á EM í janúar á næsta ári, sem fram fer í Slóvakíu og Ungverjalandi. Ísland verður í næstneðsta styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla.

Átta FH-ingar inn á áður en þeir skoruðu jöfnunarmarkið gegn Stjörnumönnum
Of margir leikmenn FH voru inni á vellinum fyrir lokasóknina gegn Stjörnunni í Olís-deild karla á föstudaginn. Einar Örn Sindrason tryggði FH-ingum jafntefli, 30-30, með flautumarki.

Heimasíða HSÍ ekki sammála sjálfri sér um hvaða lið sé á toppnum
Spennan er svo mikil í Olís deild kvenna í handbolta fyrir lokaumferðina að bæði lið Fram og KA/Þór sitja á toppnum á heimasíðu HSÍ. Það fer bara eftir því hvar þú smellir hvort liðið er í toppsætinu.

FH-ingar fá einn efnilegasta markmann landsins
Svavar Ingi Sigmundsson, ungur og efnilegur markmaður frá KA, hefur skrifað undir þriggja ára samning við Handknattleiksdeild FH og mun ganga til liðs við félagið í sumar.

Ásdís Þóra: Sjúkraþjálfarinn minn hérna heima og sjúkraþjálfarinn úti hafa verið í sambandi
Ásdís Þóra Ágústsdóttir, leikamður Vals í handbolta, sleit krossband í leik með 3.flokk á dögunum. Ásdís var nýbúin að skrifa undir tveggja ára samning við sænska liðið Lugi.

Sigvaldi: Var og er enn ógeðslega svekktur með frammistöðuna gegn Litáen
Sigvaldi Guðjónsson var markahæstur í íslenska liðinu í sigrinum á Ísrael, 39-29, í undankeppni EM 2022 í dag. Hann skoraði sjö mörk úr hægra horninu.

Umfjöllun: Ísland - Ísrael 39-29 | Annar tíu marka sigur á Ísraelum
Ísland vann stórsigur á Ísrael, 39-29, í lokaleik sínum í riðli 4 í undankeppni EM 2022 á Ásvöllum í dag.

Tandri Már inn fyrir Ými Örn
Ein breyting hefur verið gerð íslenska landsliðinu sem mætir Ísrael síðar í dag. Tandri Már Konráðsson kemur inn í hópinn fyrir Ými Örn Gíslason.

Þetta var skemmtilegur leikur og erfiður leikur
„Ég er stolt og glöð. Frábær sigur og ég er ótrúlega ánægð að hafa klárað þennan leik. Þetta var skemmtilegur leikur og erfiður leikur en rosalega sterkt að klára með sigri,“ sagði Rakel Dögg Bragadóttir, þjálfari Stjörnunnar eftir sigur á ÍBV í dag.

Hreinn úrslitaleikur í lokaumferð Olís-deildar kvenna
Eftir úrslit dagsins er ljóst að Fram og KA/Þór mætast í hreinum úrslitaleik um deildarmeistaratitil Olís-deildar kvenna í lokaumferð deildarinnar.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - ÍBV 28-26 | Hörkuleikur í Mýrinni
Stjarnan vann góðan tveggja marka sigur á ÍBV í Mýrinni í dag og kom þar með í veg fyrir að Eyjastúlkur kæmust í 3. sæti Olís-deildarinnar. Lokatölur 28-26.

Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Grótta 26-32 | ÍR endanlega fallið úr efstu deild
ÍR féll í kvöld úr efstu deild þegar liðið tapaði á móti Gróttu í kvöld sem er í 10. sæti deildarinnar. Góður seinni hálfleikur Gróttu var það sem skildi liðin af og leikurinn endaði með sex marka sigri Gróttu 26 - 32.

Leikmenn ÍR eru ekki nógu góðir til að spila í efstu deild
ÍR féll endanlega úr Olís deildinni í kvöld eftir 26 - 32 tap á móti Gróttu. Kristinn Björgúlfsson þjálfari ÍR var afar svekktur með liðið sitt eftir tap kvöldsins.