Skoðun

Verðugir verðlaunahafar
Í liðinni viku var tilkynnt að friðarverðlaun Nóbels fyrir árið 2024 færu til Nioh Hidankyo, samtaka eftirlifenda kjarnorkuárásanna á Hírósíma og Nagasakí. Samtök þessi voru stofnuð árið 1956 í tvíþættum tilgangi.

Atvinnurógur Kristófers um skemmtiferðaskipageirann
Í ár hefur íslensk ferðaþjónusta glímt við áskoranir vegna eldsumbrota, harðnandi samkeppni og verðlags en við þær aðstæður hefur geirinn venjulega þétt raðirnar og staðið vörð um orðspor Íslands sem áhugaverðs áfangastaðar.

Áform um einkavæðingu á vatnsveitu Sandgerðis
Í nútímasamfélagi er eitt mikilvægasta verkefni okkar að tryggja jafnan aðgang að grunninnviðum eins og vatni og rafmagni. Nú liggja fyrir áform um einkavæðingu á vatnsveitu Sandgerðis í Suðurnesjabæ, áform sem geta haft víðtækar og ófyrirséðar afleiðingar fyrir íbúa.

Þetta er búið. Kjósum!
Það er stundum sagt að vika sé langur tími í pólitík. Þessa pólitíska mælieining hefur samt eiginlega öðlast nýja merkingu í þeim feigðardansi sem stigin er í stjórnarráðinu dag og nótt, viku eftir viku. Við takmarkaða hrifningu landsmanna.

Sjálfsmark Framsóknarflokksins í Grafarvogi
Kosningar eru áhugavert fyrirbæri. Ljúf loforð fljúga úr munni pólitíkusa sem vilja allt gera, bæta og breyta. Í síðustu borgarstjórnarkosningum var Framsókn boðberi breytinga með það markmið að brjóta upp meirihlutann í borginni.

Ef heimurinn virkaði eins og hljómsveit
Hvað gerir samfélag sem er komið að þrotum vegna tengslaleysis, glæpa og ofbeldis sem nær hápunkti þegar grunnskóli hverfisins brennur til grunna vegna íkveikju? Þegar þessi staða kom upp í bænum Södertälje í Svíþjóð var ákveðið að byggja upp samfélagsmiðstöð á grunni skólans sem brann, samfélagsmiðstöð með áherslu á tengslamyndun í gegnum listir.

Við eigum að þakka Eflingu fyrir baráttu sína gegn launaþjófnaði
Undanfarið hafa fjölmiðlar fjallað um gjaldþrot veitingastaðarins Ítalíu og þá sök sem eigandi hans hefur reynt að bera á Eflingu stéttarfélag. Á meðan sumir gætu fallið fyrir slíkri sögu, er nauðsynlegt að skoða málavexti af raunsæi og á grunni réttlætis og sanngirni. Að varpa ábyrgðinni á stéttarfélag sem stendur vörð um hagsmuni vinnandi fólks er auðvitað fjarstæðukennt og í rauninni óréttlát árás á þá sem reyna að verja réttindi launafólks.

Ríkisstjórn sem situr áfram fyrir sig, ekki þig
Til núverandi stjórnarsamstarfs var stofnað á grundvelli pólitískrar inneignar Katrínar Jakobsdóttur, þáverandi formanns Vinstri grænna. Um það efast sennilega enginn sem leyfir sér að horfa á stöðu mála af sanngirni og raunsæi.

Sjö tíma bið við dauðans dyr á Bráðamóttöku!
Liðlega þrítugur vinur minn og skjólstæðingur hefur glímt við erfið veikindi og vanlíðan að undanförnu. Helstu birtingarmyndir vandans hafa birst í bólgnum eitlum, miklum höfuðþrautum og verulegu orkuleysi. Þessi lýsing hljómar ekki vel.

Óásættanlegt ástand í þjónustu við aldraða
Síðustu árin hefur einstaklingum sem bíða eftir plássum á hjúkrunarheimilum fjölgað umtalsvert. Samkvæmt opinberum tölum voru þeir um 300 í upphafi árs 2017 en eru nú um 500.

Að draga línu í sjóinn – segjum nei við sjókvíaeldi
Í fjögur ár hefur verið ljóst að meirihluti íbúa Seyðisfjarðar er andvígur sjókvíaeldi í firðinum. Árið 2023 mældist sú andstaða 75 prósent í skoðanakönnun Múlaþings. Þessi andstaða hefur verið virt að vettugi, að mati Seyðfirðinga.

Halldór 12.10.2024
Skopmynd dagsins eftir Halldór Baldursson.

Berum brjóstin
Í þessum mánuði er bleikur október, árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameini hjá konum. Því er viðeigandi að ræða brjóstakrabbamein og mikilvægi forvarna gegn því.

Hvers vegna ekki að kjósa strax?
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins sagði fyrir síðustu kosningar að öllu máli skipti hvort eftir kosningar tæki við sundurlaus samtíningur margra flokka eða öflug ríkisstjórn sem gæti tekist á við stór verkefni og hefði burði til að leysa áskoranir til framtíðar.

Sigmundur í villu og svima
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins var í viðtali á Vísi í gær þar sem hann agnúaðist út í útlendinga á Íslandi. Fyrir utan hvað það er smátt til orðs og æðis að ráðast gegn fólkinu sem stendur undir velferðinni og hagvextinum á Ísland, þá er það líka óheppilegt að aðfinnslur Sigmundar byggjast á misskilningi, vanþekkingu og leti.

Takk fyrir að hjálpa Yazan!
Vinir Yazan þakka öllum sem lögðu baráttunni lið. Við vissum að það sem væri Yazan fyrir bestu ætti ávallt að hafa forgang eins og segir í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Við vissum að það væri bæði satt og rétt að liðsinna Yazan hér á landi. Við höfnuðum kuldalegri afstöðu og niðurstöðu yfirvalda sem studdu sig við túlkun á reglugerð.

Haltu Lífi! - Öll börn eru okkar börn!
Ef við viljum breytingar þá er það okkar allra fyrsta skref í átt að breytingu, að horfast í augu við vandan.

Að meðhöndla eðlilegar tilfinningar með lyfjum
Í umfjöllun undanfarna daga hefur komið fram að um 15-20% lyfjanotkunar hér á landi sé óþörf. Óljóst er hversu stór hluti þessara lyfja eru geð- eða róandi lyf en ljóst að það hlutfall er líklega töluvert.

Klemmdar rasskinnar Brynjars Níelssonar
Ég skrifaði greinilega sannleikann um Áslaugu Örnu og Sjálfstæðisflokkinn um daginn því það leið ekki á löngu fyrr en sjálfur Brynjar Níelsson var ræstur úr Valhöll og gerður út á stúfana til að vinna skítverk drottnara sinna. Líkt og önnur gömul Sjálfstæðisvélmenni hefur hann ekki hugarflug í annað en að sletta rauðri málningu og skapa sér algjörlega ímyndaðan óvin: einhverskonar misheppnaðan marxískan listamann með Berlínarmúrsblæti.

Lygar sem kosta mannslíf
Stjórnmálamenn án stjórnmála snúa sér að útlendingahatri. Það hefur gerst á Íslandi og kostnaðurinn er mannslíf saklaus fólks sem hefur komið til Íslands og er vísað frá Íslandi án þess að rök séu fyrir slíku.

Hundalógík ríkisstjórnarinnar
í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar er áformað að skerða framlag ríkisins til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóðanna á næsta ári og fella það síðan alveg niður.

Staðreyndir og mýtur um kynferðisofbeldi
Kynferðisofbeldi er alvarlegt vandamál í íslensku samfélagi. Þessi grein skoðar nýjustu tölfræði, algengar mýtur og aðgerðir til úrbóta.

Raunveruleg pólítísk ábyrgð íslenskra stjórnmálamanna
Undanfarin ár hefur mikil gagnrýni beinst að því hvernig íslenskir stjórnmálamenn velja að axla sína pólitísku ábyrgð, sérstaklega í umdeildum málum eins og Íslandsbankamálinu, Hvalveiðimálinu og Lindarhvolsmálinu. Í stað þess að segja af sér embætti virðist vera að skapast hefð fyrir þvi að það sé nægjanlegt að færa sig á milli ráðuneyta.

Á sama tíma, á sama stað
Fyrir ári síðan kom fram frumvarp til fjárlaga. Þar kom fram líkt og lengi hafði verið vitað að gistináttaskattur kæmi til framkvæmda á ný en hann hafði aðeins verið felldur niður tímabundið vegna heimsfaraldurs. Það kom því engum á óvart að hann tæki aftur gildi en það sem fylgdi einnig með í pakkanum – og kom á óvart – voru breytingar á skattinum til hækkunar. Þær breytingar voru endanlega lagðar fram mánuði fyrir gildistöku og skatturinn tvöfaldaðist! Þannig hækkaði þessi sértæki skattur á gististaði með nær engum fyrirvara.

Mikið væri það ljúft
Mikið væri það ljúft ef trú Valdimars Víðissonar á að allir foreldar þekki börn sín það vel væri reynsla allra barna

Er framtíðin í okkar höndum?
Eiga framtíðarkynslóðir á Íslandi að búa í landi sem ræður sínum eigin lögum og reglum? Eiga þær að stýra eigin framtíð frekar en að leyfa erlendum ríkjum og stofnunum að taka ákvarðanir fyrir sig? Nú er verið að leggja fram frumvarp á Alþingi um innleiðingu reglu sem segir að lög frá Evrópu verði æðri íslenskum lögum, þessi regla er hin svokallaða „Bókun 35“. Í frumvarpinu felst hugmyndafræðileg uppgjöf gagnvart sjálfstæði og fullveldi landsins.

Einn af hverjum fimm
Allir geta fengið gigt. Þann 12. október er alþjóðlegur dagur gigtarsjúkdóma (World Arthritis Day) en talið er að um 20% af landsmönnum séu með einhvers konar gigtarsjúkdóm. Til eru yfir 100 mismunandi gigtarsjúkdómar en þeir algengustu eru slitgigt, þvagsýrugigt og iktsýki.

Arðsemi vetrarþjónustu
Fyrsti vetrardagur er að nálgast, þótt haustið hafi verið milt þá eru veðurspárnar farnar að boða breytta tíma.

Endursala stórnotenda er engin töfralausn
Full ástæða er til að hafa áhyggjur af raforkuöryggi almennings og nauðsynlegt er að auka virkni heildsölumarkaðar. Hvorugt verður þó tryggt með því að heimila stórnotendum að endurselja raforku inn á kerfið, orku sem þeir ella myndu nota í eigin rekstur.

Fyrir hvað erum við að borga?
Í bæjarstjórn Seltjarnarness sitja 7 bæjarfulltrúar og þar af er bæjarstjóri í 100% starfi. Auk bæjarstjórnar starfar bæjarráð og 6 fagnefndir. Launakostnaður þessara kjörnu fulltrúa er í fjárhagsáætlun ársins 2024 56,5 milljónir króna eða rúmlega 200 milljónir á kjörtímabili.