
Skoðun

Taktík. - Fyrir fegurðina og lýðræðið
Í núverandi stjórnarskrá er ekki gert ráð fyrir að kjörinn forseti þurfi meirihluta stuðning kjósenda. Hinsvegar í nýrri stjórnarskrá er gert ráð fyrir því að nái engin frambjóðenda meirihluta þá verði seinni umferð kosninga þar sem kosið er á milli tveggja efstu frambjóðenda úr fyrri umferð.

Kjósum Baldur fyrir öryggi okkar allra
Baldur Þórhallsson leggur áherslu á að við sem þjóð þurfum efla viðbrögð okkar og viðnámsþrótt til að takast á við þær áskoranir sem íslensk náttúra og aðrar ógnir skapa.

Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni
Samkvæmt skoðanakönnunum tilheyri ég lang stærsta hópi kjósenda í komandi forsetakosningum; þeim sem vilja ekki að Katrín Jakobsdóttir verði forseti Íslands.

Þess vegna er Halla Hrund efst
Þegar Halla Hrund tilkynnti framboð sitt, skaust hún upp í skoðanakönnunum og situr enn hæst. Hún er því besti kostur okkar til að fá forseta sem kemur úr röðum almennings. Hún er góður kostur fyrir margar sakir og framboð hennar á sér svipaða upprunarsögu og framboð tveggja frábærra forseta, Vigdísar og Guðna.

Forsetakosning, auðlindir í þágu almennings
Í baráttu um forsetakjör hefur Halla Hrund Logadóttir lagt sérstaka áherslu á mikilvægi auðlinda. Út frá sinni sérþekkingu á því sviði segir hún auðlindir skipta hvað mestu máli fyrir afkomu þjóðar og framtíð landsins. Góðu heilli hefur umræða nú tendrast um þau mikilvægu málefni.

Halla Tómasdóttir lætur verkin tala
Á lokaspretti kosningabaráttunnar, sem virðist ætla að verða ein sú mest spennandi í manna minnum, þá vil ég vekja athygli á þeim frábæru kostum sem vinkona mín, Halla Tómasdóttir, hefur til að bera.

Forsetakosningar: Menningarlegt forræði fjórða valdsins
Með orðræðugreiningu leitast menn við að greina undirliggjandi merkingu texta og myndmáls. Edward W. Said beitti henni til dæmis við að varpa ljósi á svokallað menningarlegt forræði og hvernig aldagömul menning Austurlanda var túlkuð út frá vestrænum viðmiðum. Í gegnum menningarlegt forræði nýtir sá er valdið hefur (rétttrúnaðarelítan) stöðu sína til að laga hlutina að eigin normum og gildum.

Hver á að vera minn forseti?
Það er margt sem að við unga fólkið þurfum að hugsa um þegar viðkemur framtíðinni. Hvað langar mig að vinna við? hvaða banki er með bestu sparnaðarleiðina? Hvenær kemur lakkrís skólajógúrtið aftur? Allt þetta og meira þurfum við að pæla í og kynna okkur vel og vandlega en samt pælum við ekki jafn mikið og aðrar kynslóðir um hver á að vera næsti forseti Íslands. Já hver á að verða næsti forseti? Hver endurspeglar okkar gildi og tengir við þau málefni sem við brennum fyrir? Jón Gnarr er augljósi kosturinn fyrir unga fólkið og sá frambjóðandi sem að við þekkjum allra best.

Halla Hrund – með víðtæka þekkingu á áskorunum samtímans
Af öllum frambjóðendum til embættis forseta Íslands hefur Halla Hrund bestu menntunina, þekkinguna og reynsluna til að takast á við og vekja máls á áskorunum samtímans. Hvort sem um er að ræða alþjóðasamskipti eða málefni sem tengjast náttúruvernd, sjálfbærri nýtingu auðlinda, loftslagsvandanum, orkuskiptum eða forgangsröðun auðlinda og orku til almennings þá hefur Halla Hrund bestu undirstöðuna til að geta sinnt embættinu með sóma fyrir alla landsmenn. Þess vegna er Halla Hrund minn forsetaframbjóðandi.

Einstakt tækifæri til listnáms í Myndlistaskólanum í Reykjavík fyrir einstaklinga með þroskaskerðingu
Myndlistaskólinn í Reykjavík býður fjölbreytt listnám á framhaldsskólastigi og nám á fjórða hæfnisstigi sem brúar bil milli framhaldsskóla- og háskólastigs. Einnig hefur skólinn í allmörg ár boðið einstaklingum með þroskaskerðingu eins árs diplómanám. Í listsköpun birtast oft hæfieikar einstaklinga sem hið hefðbundnda skólakerfi hefur ekki náð að draga fram.

Vélakaup valdaelítunnar skal að vettugi hafa
Í forsetaframboði er sennilega óvinsælasti atvinnupólitíkus síðari ára. Ákvörðun hennar um framboð, þá sem sitjandi forsætisráðherra var tekin af ásettu ráði. KJ er nefnilega enginn bjáni, heldur tækifærissinni.

Báðar eru þær góður kostur, Katrín og Halla Hrund.
Margir góðir frambjóðendur eru nú í raun út úr spilinu. Baldur og Jón Gnarr hafa ekki fylgi sem nægjir og sem betur fer, úr mínu sjónarhorni, hefur fulltrúi Nýfjálshyggjunar Halla Tómasdóttir ekki þann breiða stuðning sem þarf.

Orkan hjá Höllu Hrund
Frá alda öðli hefur íslenska þjóðin nýtt sér þá sérstöðu að búa á háhitasvæðum og virkjað jarðhitann þjóðinni allri til framdráttar. Saga hitaveitunnar á Íslandi er stórmerkileg og tilvist hennar þekkt á heimsvísu. Fólk lagðist á eitt við að byggja hana upp á sínum tíma og hefur hún þjónað okkur sem grunninnviðir síðan.

Kjósum Baldur fyrir unga fólkið
Fyrir ári missti ég son minn í sjálfsvígi, hann var 17 ára gamall. Hann var skemmtilegur, opinn og snerti mörg hjörtu með sínu frjálslega fasi en glímdi við ákveðnar áskoranir. Mörg voru hjálpleg, gripu hann á hinum ýmsu stöðum og gerðu meira en þau þurftu. Þrátt fyrir það var skrefið úr grunnskóla yfir í framhaldsskóla mjög stórt.

Náttúrubarnið Katrín Jakobsdóttir
Það þarf enginn að efast um mikilvægi náttúru- og umhverfisverndar fyrir Katrínu Jakobsdóttur. Löngu áður en slík mál komust í hámæli hjá almenningi eða náðu útbreiðslu í allri stjórnmálaflórunni voru þetta hennar hjartans mál og í raun ein ástæða þess hún hóf stjórnmálaþátttöku. Íslensk náttúra og umhverfismál skipta þjóðina afar miklu máli og því er mikilvægt að forseti Íslands sé manneskja sem hefur sýnt það í orðum og gjörðum að hún beri hag náttúrunnar fyrir brjósti.

Mér finnst á mig hlustað
Það eru breyttir tímar og í ólgusjó vil ég geta litið til forseta sem ég treysti. Leiðtoga sem ég veit að er meira en hæfur til að gegna embættinu.

Vopnið gegn hatri
Margt hefur verið skrifað um fræðimanninn Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðinginn og frumkvöðul. En ég þekki hann ekki. Baldur sem ég þekki er fjölskyldumaður, góðhjartaður, barngóður og samkynhneigður.

Þjóðhöfðinginn Katrín
Ég er svokallaður yfirlýstur kjósandi Katrínar Jakobsdóttur til embættis forseta Íslands. Ég geng um með barmmerki, merki mig á samfélagsmiðlum, smala í kosningakaffi, hengi upp veggspjöld, set meira að segja upp derhatt og reyni að svara fyrir þessa skoðun mína á internetinu.

Ég vil óumdeildan forseta
Forsetakosningar eru allt öðru vísi en flokkspólitískar kosningar. Embættinu fylgja ekki formleg völd og við höfum oftast borið gæfu til þess að velja óumdeildar manneskjur sem við höfum getað sameinast um að virða og treysta.

Kvenskörung á Bessastaði
Katrínu Jakobsdóttur þekki ég ekkert persónulega en ég þekki þó systkini hennar og af góðu einu. Katrínu þekki ég eingöngu af framgöngu hennar á opinberum vettvangi. Ég tók fyrst eftir henni, þegar hún var stigavörður í Gettu betur. Þar birtist hún sem glettin, glaðleg og vel gerð ung manneskja. Þarna kynntist þjóðin henni fyrst. Seinna settist hún á þing fyrir Vinstri græna, það var árið 2007, þegar gríðarleg sveifla var í íslensku þjóðlífi.

Traustir skulu hornsteinar
Forsetakosningar eru um næstkomandi helgi. Til er ágætur málsháttur á íslensku sem segir: „Þangað leitar klárinn sem hann er kvaldastur fyrir“ Því miður geymir þessi málsháttur mikið sannleikskorn.

Ég treysti Katrínu
Ég hef þekkt Katrínu Jakobsdóttur í yfir 20 ár og unnið með henni í stjórnmálastarfi allan þann tíma. Ég tel mig því þekkja hana býsna vel, bæði sem samstarfskonu og vinkonu.

ALDIN kallar eftir loftslagsaðgerðum
Nær daglega fáum við upplýsingar um válegar breytingar á loftslagi af mannavöldum. Ástandið er grafalvarlegt og ógnvekjandi. En viðbrögðin í engu samræmi við vandann sem blasir við okkur og ekki síst afkomendum okkar.

Gallar frambjóðandans - hjálparhönd til óákveðinna
Komiði sæl. Mig langar að rétta fram hjálparhönd. Nú þegar forsetakosningarnar nálgast eru mjög margir ennþá óákveðnir. Mér datt því í hug að benda á nokkrar staðreyndir varðandi einn frambjóðandann, hann Baldur Þórhallson.

Opið bréf til stjórnarformanns Gildis
Gildi lífeyrissjóður hefur sett sér samskipta- og siðareglur. Þarsegir „Virðing er borin fyrir markmiðum og tilgangi laga og í starfsemi sjóðsins er ekki reynt að þræða markalínur þess sem er löglegt.“og„Jafnan skal svara spurningum í samræmi við bestu vitneskju og án nokkurrar tilraunar til þess að villa um fyrirspyrjandaeða afvegaleiða viðkomandi.“

Rjúfum þögnina: andlegt ofbeldi
Við skulum byrja á að segja hið augljósa – allt ofbeldi er óafsakanlegt. Það eru engar ýkjur þegar það er sagt að andlegt ofbeldi er ein versta tegund tilfinningalegs rússíbana sem fólk lendir í. Andlegt ofbeldi getur verið í formi orðaskipta eða í formi líkamstjáningar. Samskiptin einkennast oft af niðurlægingu og er yfirleitt leið annars aðilans að ná stjórn á þolandanum.

Hvers vegna kýs ég „nörd“ í smáríkjafræðum sem forseta?
Það styttist í 1. júní þegar Íslendingar kjósa nýjan forseta. Kjósendur geta valið úr stórum hópi frambjóðenda með ólíka sýn á forsetaembættið og stefnumálin eru af fjölbreyttum toga. Baldur Þórhallsson er með stefnumálin á hreinu og hann veit hvert á að stefna verði hann kosinn forseti. Allt frá því að Baldur steig fram sem frambjóðandi hefur hann skilmerkilega talað fyrir mannréttindum og að forsetinn eigi að tala fyrir málum sem sameina fremur en sundra.

Kjósum húmanista – Konu hugsjóna og framkvæmdargleði
Síðan ég byrjaði í félagsfræði og hagfræði í menntaskóla, fyrir hátt í hálfri öld síðan, hefur mig dreymt um að hagvöxtur gangi ekki aðeins út á efnahagslegan vöxt heldur sé tekið með í reikninginn hvernig samfélagið kemur fram við alla þegna sína. Viðskipti og hagfræðin hafi líka réttlæti og jafnrétti að leiðarljósi og nú sjálfbærni að auki. Þegar ég heyrði um B Team kynnti ég mér forsetaframboð Höllu Tómasdóttur. Ég hef nánast legið yfir kynningarefni og viðtölum við alla forsetaframbjóðendurna og gert upp hug minn.

Óhollustan í að sópa gærdeginum undir teppi
Af því að þá tapast mikilvæg tækifæri til tilfinningalegrar þróunar og þroska.