
Veður

Rigning á föstudag en síðan hæglætisveður
Senn líður að mestu ferðahelgi ársins, Verslunarmannahelginni, og eflaust fjöldi fólks sem hefur hug á því að elta veðrið, sem hefur verið misgott við fólk eftir landshlutum það sem af er sumri.

Leifar af fellibyl orsaka óvissu með veðrið um verslunarmannahelgina
Veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að óvissa sé með það hvernig veðrið verður á Íslandi um verslunarmannahelgina. Leifar af fellibyl orsaka óvissuna en að sögn veðurfræðings koma leifarnar þó ekki til Íslands.

Hlýtt og bjart á Vesturlandi en skýjað annars staðar
Norðaustlæg eða breytileg átt í dag, víða gola eða kaldi en strekkingur við suðausturströndina. Skýjað að mestu og sums staðar dálítil væta, en bjartara veður á Vesturlandi. Hiti á bilinu átta til sautján stig.

Áfram sumar og sól í dag
Það verður áfram bjart og hlýtt í suðvesturfjórðungi landsins, en norðan- og austanlands verður áfram skýjað og lítilsháttar væta. Það verður norðaustlæg átt og strekkingur á norðvestanverðu landinu og með suðausturströndinni.

Bjart og hlýtt sumarveður víða í dag
Norðaustlægar áttir verða ríkjandi á landinu í dag, skýjað að mestu en víða bjartviðri sunnan- og vestanlands. Það verður gott útivistarveður um helgina og fram í næstu viku, úrkomulítið og líkur á sólarglennum í flestum landshlutum.

Lægð veldur allhvössum austanvindi
Lægð suður í hafi veldur allhvössum austanvindi allra syðst á landinu en það verður hægari vindur annars staðar. Skýjað að mestu en þokuloft við norður- og austurströndina, skúrir inn til landsins og rigning með köflum suðaustanlands.

Skýjað í dag og súld norðaustanlands
Það verður austan- og suðaustanátt með suðurströndinni í kvöld en norðaustlægari átt á norðvestanverðu landinu. Skýjað að mestu, súld úti við norður- og austurströndina og skúrir inn til landsins. Rigning með köflum sunnanlands í nótt og á morgun.

Hæglætisveður og dálítil væta í dag
Hæglætisveður á landinu í dag, skýjað og sums staðar dálítil væta en skúrir á hálendinu og í innsveitum norðanlands síðdegis. Hiti er tíu til sautján stig en það verður heldur svalara á Austurlandi.

„Sumarveður“ í kortunum
Norðlægar áttir verða ríkjandi á næstu dögum en í vikunni er útlit fyrir að landið skiptist í tvenn hvað hita varðar. Hlýrra verður á sunnanverðu landinu en svalt á því norðanverðu.

Norðvestanátt á landinu og gasmengun gæti borist til Grindavíkur
Það verður áfram norðan- og norðvestanátt á landinu í dag. Á norðanverðu landinu verður væta og svalt í veðri, en annars skýjað með köflum, stöku skúrir og hlýtt. Á Austfjörðum hvessir seinnipartinn. Gasmengun við gosstöðvarnar berst til suðurs yfir gönguleiðir, Suðurstrandarveg og mögulega til Grindavíkur.

Norðanátt á landinu en lægir og hlýnar eftir helgi
Norðan- og norðvestanátt ríkir enn á landinu með vætusömu og svölu veðri norðanlands. Það er heldur hlýrra og þurrara fyrir sunnan en þó skúrir á stöku stað. Eftir helgi lægir og hlýnar, einkum nyrðra.

Kuldi í kortunum en Íslendingar uppteknir af eigin nafla
Kuldakast er fram undan á landinu og víða spáð köldu veðri. Sérstaklega verður kalt á föstudag og í mikilli hæð er sums staðar útlit fyrir slyddu og snjókomu. Þrátt fyrir þetta segir veðurfræðingur að sumrinu sé hvergi nærri lokið og Íslendingar geti í raun verið þakklátir fyrir að glíma ekki við þann ofsahita sem mælist nú víða um heim.

Búist við kuldahreti
Veðrið hefur leikið við landsmenn síðustu daga en allt sem er gott tekur enda, eða pásu öllu heldur. Búist er við kuldahreti á næstu dögum en veðurfræðingur segir þó að það eigi eftir að hlýna aftur í næstu viku.

Kaldara loft færist yfir landið á næstu dögum
Eftir hlýja daga um liðna helgi verður norðlæg átt ríkjandi og smám saman mun kaldara loft færast yfir landið. Um og uppúr miðri vikunni verður orðið kalt í veðri á norðanverðu landinu og nokkuð vætusamt einnig á þeim slóðum.

„Hitinn að fara yfir tuttugu stig og jafnvel rúmlega það“
Það verður hægur vindur, sólríkt og hlýtt á landinu um helgina að sögn veðurfræðings. Best verður veðrið á Suður- og Vesturlandi þar sem hitinn gæti farið upp í og yfir tuttugu stig.

Sannkallað sumarveður um helgina
Allmikill hæðarhryggur er nú yfir Grænlandshafi og stjórnar veðurlagi helgarinnar sem verður sannkallað sumarveður. Fremur hægir norðaustanvindar munu leika um landið í dag, en strekkingur eða allhvasst og dálítil rigning við suðausturströninda í kvöld og fram á nótt.

Hiti að átján stigum sunnan heiða
Lægð vestur af Skotlandi veldur því að norðaustlægir vindar verða ríkjandiá landinu í dag, en heldur austlægari á morgun.

Ákveðin norðanátt með rigningu norðan- og austanlands
Veðurstofan gerir ráð fyrir ákveðinni norðanátt í dag með rigningu eða súld norðan- og austanlands, en að það dragi úr vætu síðdegis. Bjart verður með köflum og þurrt að mestu um landið suðvestanvert.

Hollenskir túristar gapandi hissa á snjókomu í júlí
Túristar á Norðurlandi voru heldur betur hissa þegar það byrjaði að snjóa á þau í dag. Leiðsögumaður sem er í hringferð með túristana segir að þeir hafi verið kátir þrátt fyrir að þeir hafi þurft að klæða sig í öll fötin sín.

Fínasta veður sunnan- og vestanlands en snjókoma norðaustantil á morgun
Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlægum áttum næstu daga þar sem verður væta með köflum og svalt í veðri norðan- og austanlands, en þurrt og bjart að mestu sunnan- og vestanlands og fremur hlýtt.

Sólin færir sig suður
Í dag og næstu daga verður viðsnúningur í veðrinu frá því sem verið hefur. Nú verður yfirleitt þurrt og bjart á köflum á Suður- og Suðvesturlandi og einnig hlýjast á meðan blautt verður á köflum, lágskýjað og svalara í öðrum landshlutum.

Bjart framan af en von á kröftugum skúrum
Lægðin sem legið hefur yfir landinu að undanförnu er nú að þokast til suðausturs. hún dregur norðlæga átt eftir sér inn á landið. Það mun gefa vætu á köflum fyrir norðan og austan og fremur svalt veður. Sunnan heiða verður bjart fyrripart dags en svo má búast við nokkuð kröftugum skúrum sem enst geta fram á kvöld.

Lægðin úr sögunni og besti sumardagurinn handan við hornið suðvestanlands
Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, segir að lægðin sem hefur hringsólað yfir landinu sé úr sögunni. Yfir helgina má suðvesturhornið eiga von á sólarglætu og mikilli hlýju. Mánudagurinn gæti síðan orðið einn besti dagur sumarsins.

Lægðin yfir miðju landinu en vindurinn mun ekki ná sér á strik
Miðja lægðarinnar, sem stýrt hefur veðrinu á landinu síðustu daga, er nú yfir miðju landinu. Lægðin er hins vegar orðin gömul og þrýstiflatneskja er í miðju hennar sem þýðir að vindur mun ekki ná sér á strik í dag. Það verða þó skúrir víða um land.

Víða má búast við áframhaldandi vætu
Lægðin sem olli austan stormi við suðurströndina á þriðjudag er enn að stýra veðrinu á landinu og nú í morgunsárið er lægðin stödd við norðurströndina.

Fremur stíf vestlæg átt og vætusamt
Alldjúp lægð mun stjórna veðrinu á landinu næstu daga, en hún mun hringsóla yfir landinu og grynnast smám saman fram að helgi.

Ört vaxandi lægð nálgast og mun hringsóla yfir landinu fram að helgi
Ört vaxandi lægð nálgast nú landið úr suðri og verður hún skammt suðaustur af landinu í nótt og þá um 977 millibara sem er óvenju lágur þrýstingur miðað við árstíma.

Skúraveður sunnan- og vestantil
Veðurstofan gerir ráð fyrir suðaustanátt á landinu í dag þar sem víðast hvar verður vindur á bilinu þrír til tíu metrar á sekúndu og hvassast á Suðausturlandi.

„Stundum vildi ég að ég gæti komið með betri fréttir“
Útlit er fyrir áframhaldandi blautt veður næstu daga og líkur á því að fersk lægð verði komin yfir landið næstu helgi.

Allt að 26 gráðu hiti
Rjómablíðan heldur áfram á Norð-Austurlandi í dag. Allt að 26 gráðu hita er spáð.