Viðskipti erlent
204 205 206 207 208 209 210 211 212 … 334 ›
Apple gefur út uppfærslu fyrir iOS 5 Tölvurisinn Apple hefur gefið út uppfærslu fyrir iOS 5. Stýrikerfið er það nýjasta sem Apple framleiddi fyrir iPhone 4S og iPad spjaldtölvuna. Viðskipti erlent 10.11.2011 20:00
Papademos nýr forsætisráðherra Grikklands Grikkinn Lucas Papademos, fyrrverandi varabankastjóri Seðlabanka Evrópu, var í dag skipaður forsætisráðherra Grikkja, samkvæmt frétt BBC. Mynduð hefur verið ný samsteypustjórn þriggja flokka í Grikklandi til að fást við þá skelfilegu stöðu sem komin er upp í efnahagslífi landsins. Viðskipti erlent 10.11.2011 13:30
Tóku skortstöðu gegn viðskiptavinunum Carl Levin, öldungardeildarþingmaður bandaríkjaþings, spurði Llyod Blankfein, stjórnarformann og forstjóra Goldman Sachs spjörunum úr í bandaríska þinginu um afleiður og tryggingar, fyrr á þessu ári. "Þið voruð að taka skortstöðu gegn viðskiptavinum ykkar,“ sagði Levin og gekk á Blankfein. Þessi starfsemi Goldman Sachs er nú til rannsóknar hjá yfirvöldum í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 10.11.2011 09:01
Mikil niðursveifla á mörkuðum Stjórnmálaóvissan í Grikklandi og á Ítalíu olli því að markaðir í Bandaríkjunum fóru í mikla niðursveiflu í gærkvöldi. Viðskipti erlent 10.11.2011 07:21
Hætta á að olíuverðið fari í 150 dollara á tunnuna Alþjóða orkumálastofnunin gerir ráð fyrir stighækkandi olíuverði í heiminum fram til ársins 2035. Hætta er á að olíuverðið í 150 dollara á tunnuna í náinni framtíð. Viðskipti erlent 10.11.2011 07:19
Hvað sagði Jobs við Zuckerberg? Mark Zuckerberg stofnandi Facebook segir að hann hafi oft leitað ráða hjá Steve Jobs stofnanda Apple áður en hann lést en þeir urðu ágætis félagar síðustu árin. Hann segist hafa spurt Jobs hvernig ætti að byggja upp gott starfslið og hvernig eigi að framleiða frábærar vörur. Hann neitar því hinsvegar að þeir hafi nokkurn tíma rætt um að Apple myndi kaupa Facebook. Þetta kemur fram í ítarlegu viðtali Charlie Rose á PBS við Zuckerberg þar sem farið er yfir víðan völl. Þar kemur meðal annars fram að Facebook muni aldrei fara út í framleiðslu á tölvuleikjum. Viðskipti erlent 9.11.2011 23:00
Hrun á hlutabréfamörkuðum Mikil lækkun varð á hlutabréfamörkuðum í Bandaríkjunum í dag. Þannig lækkaði Nasdaq vísitalan um tæplega fjögur prósent og S&P 500 vísitalan um 3,8% prósent. Erlendir fjölmiðlar tala margir hverjir um hrun fremur en lækkun. Viðskipti erlent 9.11.2011 22:27
Adobe segir skilið við Flash Bandaríski hugbúnaðarrisinn Adobe Systems tilkynnti í dag að fyrirtækið muni hætta þróun á Flash margmiðlunarhugbúnaðinum fyrir snjallsíma. Flash er þungamiðja fjölmiðlunar í stýrikerfum margra snjallsíma, þar á meðal í Android og BlackBerry. Viðskipti erlent 9.11.2011 21:00
Áhyggjur vegna vanda Ítalíu magnast Áhyggjur fjárfesta af fjárhagsvanda Ítalíu hafa magnast í dag, þvert á það sem margir höfðu spáð fyrir um fyrir sólarhring síðan. Á vefsíðu Wall Street Journal í gær kom meðal annars fram að fjárfestar horfðu til þess með tilhlökkun að Silvio Berlusconi væri að hætta störfum. Viðskipti erlent 9.11.2011 20:30
Lækkanir á mörkuðum Miklar lækkanir hafa verið í dag á hlutabréfamörkuðum í Evrópu og Bandaríkjunum. Flestar vísitölur hafa lækkað um á bilinu 1,5% til 2,5%. Hlutabréfamarkaðurinn í Bandaríkjunum lokar ekki fyrr en í kvöld og því ekki hægt að útiloka að hann rétti úr kútnum. Viðskipti erlent 9.11.2011 16:19
Papandreou á fund forseta Svo virðist sem ný ríkisstjórn verði kynnt í Grikklandi síðar í dag en George Papandreou, forsætisráðherra, mun ganga á fund forseta landsins, Carolos Papoulias, klukkan 15, samkvæmt frásögnum erlendra fjölmiðla. Papandreou mun á fundinum afhenda afsagnarbréf sitt, samkvæmt fréttum erlendra miðla. Viðskipti erlent 9.11.2011 14:06
Facebook getur komið þér í steininn - nokkrir örlagaríkir statusar Facebook statusar geta verið varhugaverðir. Stundum virðist fólk ekki átta sig á því að það sem sett er sem status á Facebook síðunni getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir viðkomandi. Vefsíðan Mental Floss hefur tekið saman nokkrar stöðuuppfærslur sem eiga það sameiginlegt að hafa haft alvarlegar afleiðingar fyrir viðkomandi. Viðskipti erlent 9.11.2011 13:13
Hefja miðasölu á morgun easyJet ætlar að hefja sölu á ferðum til Lundúna strax á morgun en fyrr í dag var sagt frá því í tilkynningu að flugfélagið myndi hefja sölu í dag.. Viðskipti erlent 9.11.2011 11:01
Enn hækkar álagið á ítölsk ríkisskuldabréf Ekkert lát er á hækkunum á áhættuálaginu á ítölsk ríkisskuldabréf. Bréf til 10 ára fóru í tæplega 6,9% í morgun en ástæðan er óvissan í efnahagsmálum landsins og gífurleg skuldabyrði þess. Viðskipti erlent 9.11.2011 09:57
Góðar líkur á að vinnanleg olía hafi fundist við Grænland Góðar líkur eru á því að skoska olíufélagið Cairn Energy hafi loksins fundið vinnanlega olíu við Grænland. Viðskipti erlent 9.11.2011 08:01
Lagarde varar við glötuðum áratug Christine Lagarde forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segir að hætta sé á að efnahagskerfi heimsins lendi í glötuðum áratug. Viðskipti erlent 9.11.2011 07:56
Markaðir tóku kipp við afsögn Berlusconi Hlutabréfavísititölur í Bandaríkjunum tóku kipp upp á við í gærkvöldi þegar fréttist að Silvio Berlusconi hefði tilkynnt um fyrirhugaða afsögn sína sem forsætisráðherra Ítalíu. Viðskipti erlent 9.11.2011 07:25
Obama valdamestur - Gates valdmestur í einkageiranum Á uppfærðum lista viðskiptatímaritsins Forbes yfir valdamesta fólk heims eru fyrst og fremst þekkt andlit af sviði alþjóðlegra stjórn- og efnahagsmála. Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, er valdamestur í stjórnmálum og Bill Gates, forstjóri Microsoft, í einkageiranum en aðeins tveir úr einkageiranum komast inn á topp tíu listann. Ásamt Gates er það Mark Zuckerberg, forstjóri og stærsti eigandi Facebook. Viðskipti erlent 8.11.2011 22:00
Markaðir lokuðu grænir Markaðir í Evrópu og Bandaríkjunum lokuðu með grænum tölum, hækkunum upp á 1 til 1,5 prósent. Hér á Íslandi lækkaði gengi bréfa í Icelandair um 1,09% og stendur gengið nú í 5,42% en bréf í Marel hækkuðu um 0,41% og stendur gengi bréfanna nú í 121,5. Viðskipti erlent 8.11.2011 21:17
Credit Suisse undir eftirliti bandarískra yfirvalda Bandarísk yfirvöld eru enn að berjast gegn því að svissneskir bankar aðstoði ríka Bandaríkjamenn við að skjóta peningum undan skatti. Nú síðast hefur svissneski risabankinn Credit Suisse sent viðskiptavinum sínum bréf og tilkynnt um að bankinn þurfi að gefa yfirvöldum nákvæmar upplýsingar um reikningsupphæðir og fleira. Viðskipti erlent 8.11.2011 20:30
Berlusconi hefur staðið af sér 50 vantrausttillögur Silvio Berlusconi er ekki óvanur vantrausttillögum. Fimmtíu sinnum hafa verið bornar upp slíkar tillögur í þinginu sem hann hefur staðið af sér. Viðskipti erlent 8.11.2011 15:02
Berlusconi berst fyrir pólitísku lífi sínu Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, berst nú fyrir pólitísku lífi sínu en aðgerðir ríkisstjórnar hans í ríkisfjármálum verða bornar undir þingið í landinu seinna í dag. Fulltrúar ríkisstjórnar Berlusconis funduðu með stjórnarandstöðunni í ellefu tíma í gær, með það fyrir augum að afla trausts hennar fyrir atkvæðagreiðsluna í þinginu. Viðskipti erlent 8.11.2011 11:18
Höndin var ekki "ósýnileg" - hún var ekki þarna Joseph Stiglitz, nóbelsverðlaunahafi í hagfræði, hefur marg sinnis mótmælt kenningu hagfræðinginsins Adam Smith, um hina "ósýnilegu hönd" markaðarins, og sagt hana vera gallað og einfeldningslega. Viðskipti erlent 8.11.2011 08:47
Grikkir kynna nýjan forsætisráðherra í dag Tilkynnt verður um nýjan forsætisráðherra Grikklands í dag. Samkvæmt grískum fjölmiðlum komust Georg Papandreú, fráfarandi forsætisráðherra og leiðtogi vinstri flokksins Pasok, og Antonis Samaras, leiðtogi hægri flokksins Nýtt lýðræði, að samkomulagi um forsætisráðherra í samsteypustjórn flokkanna í gærkvöldi. Viðskipti erlent 8.11.2011 01:00
Lítilleg hækkun á mörkuðum í Bandaríkjunum Helstu vísitölur hlutabréfamarkaða í Bandaríkjunum hækkuðu lítillega í dag eftir að hafa sýnt lækkanir fyrri part dags. Nasdaq vísitalan hækkaði um 0,34% á meðan S&P hækkaði um 0,6%. Markaðir í Evrópu lækkuðu hins vegar flestir, á bilinu 0 til 2%. Óvissa um stöðu efnahagsmála í Evrópu heldur áfram að vera drifkraftur sveiflna á markaði, að því er segir á vef Wall Street Journal. Viðskipti erlent 7.11.2011 21:21
Ryanair hagnast á krepputímum Rekstur Ryanair gengur vel og jókst hagnaður félagsins um 23% á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Fór úr 398 milljónum evra í 463 milljónir evra eftir skatt, að því er fram kemur á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC. Viðskipti erlent 7.11.2011 20:45
Lánamarkaðir svo gott sem lokaðir fyrir Ítalíu Álag á tíu ára ríkisskuldabréf Ítalíu náði nú skömmu fyrir hádegi hæsta gildi sem það hefur mælst í á þessu ári. Álagið er nú 6,64%. Þetta þýðir að fjármagnskostnaður landsins er það hár að nær ómögulegt er fyrir landið að endurfjármagna skuldir sínar en áhyggjur af fjárhagsvanda Ítalíu hafa farið vaxandi undanfarna daga. Viðskipti erlent 7.11.2011 13:03
Markaðir ekki bjartsýnir á nýja þjóðstjórn Grikklands Fjárfestar virðast ekki ýkja bjartsýnir á að ný þjóðstjórn sem tilkynnt verður í Grikklandi síðar í dag muni ráða við skuldavanda landsins. Viðskipti erlent 7.11.2011 10:04
Asda og Farmfoods með sameiginlegt tilboð í Iceland Breska verslunarkeðjan Asda og skoska stórmarkaðakeðjan Farmfoods hafa lagt fram sameignlegt tilboð í Iceland Foods verslunarkeðjuna. Tilboðið hljóðar upp á 1,4 milljarða punda eða tæplega 260 milljarða króna. Viðskipti erlent 7.11.2011 09:43
Áhyggjur vegna Ítalíu magnast Fulltrúar Seðlabanka Evrópu (ECB) og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafa varað stjórnvöld á Ítalíu við því að ef ekki verður gripið til róttækra aðgerða í ríkisfjármálum þá gæti landið "endanlega misst trúverðugleika“. Viðskipti erlent 7.11.2011 08:48