Viðskipti
55 56 57 58 59 60 61 62 63 … 334 ›
Sögurnar í fyrra: Því lífið er svo miklu meira en bara vinnan Við upplifum mörg mikla ástríðu fyrir vinnunni okkar. En vitum að lífið er svo miklu meira en vinnan. Viðtölin í Atvinnulífinu taka mið af þessu og þar er mannlega hliðin því alltaf í fyrirrúmi. Enda eru þessi viðtöl vel lesin. Atvinnulíf 14.1.2024 08:00
Samskip þurfa ekki að greiða sektina meðan málsmeðferð fer fram Útflutningsfyrirtækið Samskip þarf ekki að greiða sekt upp á 4,2 milljarða fyrir ólöglegt samráð með fyrirtækinu Eimskipi meðan málið er til meðferðar hjá áfrýjunarnefnd samkeppnismála. Viðskipti innlent 13.1.2024 19:31
„Nú skal það takast að setjast yfir bækurnar og klára prófið“ Albert Magnússon, umboðsaðili fyrir Lindex og Gina Tricot, segist sjá svolítið af sjálfum sér í elsta syninum, sem vakir fram á nætur yfir háskólanáminu. Sem eitt sinn var venjan hjá honum en nú er öldin önnur og hann orðinn mjög kvöldsvæfur. Albert segist alltaf upplifa áramótin sem ákveðin kaflaskil og áramótaheitið í ár er að klára flugnámið. Atvinnulíf 13.1.2024 10:00
Hækkar vexti verðtryggðra lána Íslandsbanki hefur tilkynnt um breytingar á vöxtum inn-og útlána. Breytingarnar taka gildi þriðjudaginn 16. janúar. Viðskipti innlent 12.1.2024 15:49
Samþykktu endurskipulagningu Viaplay Hluthafar sænska streymisfyrirtækisins Viaplay Group hafa samþykkt endurskipulagningu á félaginu sem leiðir til þess að franski fjölmiðla- og fjarskiptarisinn Canal+ Group og tékkneska fjárfestingafélagið PPF hafa eignast hvor um sig 29,3 prósenta hlut í fyrirtækinu. Viðskipti erlent 12.1.2024 10:56
Segir söluhrun á degi einhleypra eiga sér eðlilegar skýringar Brynja Dan, forsprakki dags einhleypra á Íslandi og bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Garðabæ, segir söluhrun á þessum afsláttadegi á síðasta ári eiga sér eðlilegar skýringar. Sé litið til sölu yfir dagana þrjá í kringum 11. nóvember sé ljóst að salan sé enn gríðarlega mikil. Viðskipti innlent 12.1.2024 07:47
Þrjú snilldarráð fyrir góð samskipti Góð samskipti eru alltaf lykilatriði. Hvort heldur sem er í leik eða starfi. Við viljum öll standa okkur sem best í góðum samskiptum en eigum það mögulega til að gleyma okkur. Atvinnulíf 12.1.2024 07:00
Ölgerðin hættir með Red Bull Vörumerkið Red Bull verður ekki hluti vörumerkja Ölgerðarinnar lengur en fyrirtækið sagði samningi sínum við Ölgerðina upp með sex mánaða fyrirvara. Viðskipti innlent 11.1.2024 19:18
Sólar og Mánar sameinast Sólar ehf. og Mánar ehf. hafa náð samkomulagi um að sameina félögin undir nafni Sólar. Viðskipti innlent 11.1.2024 13:28
Spá því að ársverðbólga verði 5,9 prósent í apríl Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að verðbólga haldi áfram að hjaðna og verði komin í sex prósent í apríl. En til að það gerist þarf íbúðamarkaður „að vera til friðs“ og krónan að haldast stöðug. Þetta kemur fram í nýjustu spá deildarinnar sem birt var í dag. Viðskipti innlent 11.1.2024 11:16
Sigurborg Ósk til SSNE Sigurborg Ósk Haraldsdóttir hefur hafið störf hjá Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE). Hún mun hafa aðsetur á skrifstofu sambandsins á Stéttinni, Húsavík. Viðskipti innlent 11.1.2024 10:57
Kveður Lilju og færir sig til Advania Sylvía Rut Sigfúsdóttir hefur verið ráðin til að stýra samskipta- og kynningarmálum Advania á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Rúmlega áttatíu manns sóttu um starfið. Viðskipti innlent 11.1.2024 09:45
Ólöf tekur við kynningarmálum hjá Hampiðjunni Hampiðjan hefur ráðið Ólöfu Snæhólm Baldursdóttur í starf samskipta- og kynningarfulltrúa. Ólöf var ein 63 umsækjenda um starfið og hefur hún hafið störf. Viðskipti innlent 11.1.2024 09:35
Fær geymsluna á bílnum og þrifin endurgreidd að fullu Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur komist að því að fyrirtæki sem sér um geymslu og þrif bifreiða á meðan fólk ferðast þarf að endurgreiða manni 38.900 krónur og greiða 35 þúsund krónur í málskostnaðargjald. Neytendur 11.1.2024 08:00
Bein útsending: Skattadagurinn 2024 Skattadagur Deloitte, Viðskiptaráðs og Samtaka atvinnulífsins fer fram í dag klukkan hálf níu í Silfurbergi í Hörpu. Viðskipti innlent 11.1.2024 07:31
Þátttakan skapi gríðarleg tækifæri til fjárfestingar í nýsköpun Þátttaka Íslands í InvestEU áætluninni mun skapa gríðarleg tækifæri til fjárfestingar í nýsköpun með áherslu á stafræna þróun og grænar lausnir. Þetta segir nýsköpunarráðherra sem kynnti verkefnið í morgun. Viðskipti innlent 10.1.2024 14:00
Tekur við forstjórastólnum af eigandanum Um nýliðin áramót tók Brynjar Elefsen Óskarsson við sem forstjóri bílaumboðsins BL ehf.. Hann tekur við af Ernu Gísladóttur, eiganda BL, sem hefur verið forstjóri félagsins síðastliðin 11 ár. Viðskipti innlent 10.1.2024 12:11
Ráðinn framkvæmdarstjóri markaðssviðs Coca-Cola á Íslandi Gestur Steinþórsson hefur verið ráðinn framkvæmdarstjóri markaðssviðs hjá Coca-Cola Europacific Partners á Íslandi (Coca-Cola á Íslandi). Viðskipti innlent 10.1.2024 11:21
Leigubílstjórar fá ekki árskort og kostnaður gæti margfaldast Isavia hefur gert breytingar á gjaldheimtu á leigubílastæðinu við Leifsstöð. Stakt gjald fyrir innakstur á stæðið helst óbreytt en árskort standa ekki lengur til boða. Ljóst er að kostnaður leigubílstjóra sem vinna mikið við að aka fólki til og frá Keflavíkurflugvelli gæti margfaldast. Viðskipti innlent 10.1.2024 11:02
Tónninn gjörbreyttist þegar „eiginkonan“ hafði samband Smiður sem tók að sér að smíða fallegan skáp fyrir um hálfa milljón króna tilkynnti kaupanda að vegna heilsufarsbrests gæti hann ekki lokið við verkið eins og samið var um. Þegar kaupandi hafði samband í nafni eiginkonu sinnar og ætlaði að kaupa annað verk tók smiðurinn vel í það erindi. Neytendur 10.1.2024 10:31
Innkalla ÅSKSTORM-hleðslutæki vegna hættu á rafstuði og bruna IKEA hefur innkallað ÅSKSTORM 40 W USB-hleðslutæki vegna hættu á rafstuði og bruna. Viðskipti innlent 10.1.2024 10:25
„Skattayfirvöld eru að mjólka okkur til blóðs“ Halldór Halldórsson, forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins sem staðsett er á Bíldudal, segir skattayfirvöld mjólka fyrirtækið til blóðs. Skatturinn fari fram á hærri skatt en sem nemur hagnaði fyrirtækisins og segir Halldór írska fjárfesta þess steinhissa. Málið verður rekið fyrir dómstólum. Viðskipti innlent 10.1.2024 09:44
Bein útsending: Þátttaka Íslands í InvestEU-áætluninni Kynningarfundur um þátttöku Íslands í InvestEU-áætluninni og framkvæmd hennar fer fram klukkan 9:30 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi. Viðskipti innlent 10.1.2024 09:00
Útrás í Reykjavík eftir sautján ára rekstur á Akureyri Indverski veitingastaðurinn Indian curry house sem rekinn hefur verið í göngugötunni á Akureyri við góðan orðstí um árabil hefur opnað útibú í höfuðborginni. Viðskipti innlent 10.1.2024 08:31
Bréfpokar undir matarleifar ekki lengur í verslunum Frá og með morgundeginum mun Sorpa hætta dreifingu bréfpoka undir matarleifar í verslunum. Áfram geta íbúar sótt bréfpokana endurgjaldslaust á endurvinnslustöðvum Sorpu og í verslun Góða hirðisins. Neytendur 9.1.2024 16:24
Sala á Degi einhleypra hrynur Neytendur horfðu lítið sem ekkert til Dags einhleypra (e. Singles Day) þegar þeir versluðu jólagjafir þetta árið. Viðskipti innlent 9.1.2024 15:54
Unity segir upp 1800 manns Hugbúnaðarfyrirtækið Unity Software hefur sagt upp 1800 starfsmönnum eða sem nemur um fjórðungi starfsfólks. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til verðbréfaeftirlits Bandaríkjanna. Viðskipti innlent 9.1.2024 10:33
Binda enda á 27 ára samstarf sitt Bandaríski íþróttavörurisinn Nike og bandaríski kylfingurinn Tiger Woods hafa bundið enda á samstarf sitt sem staðið hefur síðastliðinn 27 ár. Viðskipti erlent 9.1.2024 07:45
Samstarfsfólk Musk sagt hafa áhyggjur af fíkniefnaneyslu hans Elon Musk, auðugasti maður heims, er sagður neyta fíkniefna á borð við LSD, kókaín og ofskynjunarsveppi. Þetta kemur fram í umfjöllun Wall Street Journal. Viðskipti erlent 8.1.2024 23:33
Brjóta verði upp fákeppnisaðstöðu skipafélaganna tveggja Félag atvinnurekenda, Neytendasamtökin og VR funduðu í dag með borgar- og hafnaryfirvöldum í Reykjavík til að ræða samkeppnisumhverfið í Sundahöfn, í framhaldi af ákvörðun Samkeppniseftirlitsins vegna samráðs stóru skipafélaganna tveggja. Viðskipti innlent 8.1.2024 18:10