Vírusar leggist á síma og bílvélar 9. febrúar 2005 00:01
Vírusar verða ekki bundnir við tölvur í framtíðinni, heldur gætu þeir einnig átt eftir að leggjast á síma og bílvélar svo fátt eitt sé nefnt. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar skýrslu, sem öryggisdeild IBM framkvæmdi og verður birt í dag. Gögnin sem skýrslan byggist á koma meðal annars frá stórum viðskiptavinum fyrirtækisins, stjórnvöldum í Bandaríkjunum og athugunum tvö þúsund öryggisráðgjafa IBM. Í skýrslunni kemur fram að með aukinni netvæðingu símafyrirtækja um allan heim aukist verulega líkurnar á því að farsímanotendur verði fyrir barðinu á óprúttnum tölvuþrjótum. Þá er einnig bent á að verulegar líkur séu á að vírusar muni finnast í bílum innan skamms enda innihaldi nýir bílar að jafnaði um sextíu megabæt af hugbúnaði. Nærri 30 þúsund nýir vírusar bættust í flóru þeirra sem fyrir voru á árinu 2004. Til samanburðar var fjöldi nýrra vírusa meira en sexfalt minni árið 2002. Þá kemur einnig fram í skýrslunni að nærri sex prósent allra þeirra 147 milljarða tölvupósta sem IBM skoðaði á árinu 2004 voru sýkt af tölvuvírus. Þetta er tólf sinnum hærra hlutfall en árið 2002 þegar aðeins ein af hverjum tvö hundruð tölvupóstsendingum innihélt vírus.
Erlent Fréttir Tækni Mest lesið Halldór Blöndal er látinn Innlent „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent Kröfu um að gera Margréti arflausa vísað frá Innlent Tvö og hálft ár fyrir að nauðga dóttur nágranna síns Innlent Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Innlent Kraftaverk að Gunnari hafi verið bjargað þegar hann lenti í sjónum Innlent Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Erlent Gaf lungnadeildinni sex ferðasúrefnistæki til að þakka fyrir sig Innlent Segja frekari úrbóta þörf og vísa meðal annars til PPP Innlent Tuttugu þúsund fiskar drápust á Tálknafirði Innlent Fleiri fréttir Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Bondi morðinginn formlega ákærður í 59 liðum Trump setur hafnbann á olíuskip á leið til og frá Venesúela Nick Reiner ákærður fyrir að myrða foreldra sína Segir Trump hafa persónuleika alkóhólista Brestir í MAGA-múrnum Lögðu lengi á ráðin um herlög Tólf ára drengur grunaður um morð í Malmö Heimta enn héruð Úkraínu sem þeir halda ekki Ósátt við lögreglu sem leitar enn morðingjans Segjast hafa myrt átta sæfarendur til viðbótar FDA samþykkir tvö ný lyf gegn ónæmum lekandabakteríum Vill fimm milljarða Bandaríkjadala frá BBC Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Sjá meira