
Lítið til sparað
Helsti eignamaður Framsóknarflokksins er sjálfur forsætisráðherra sem erfði hlut foreldra sinna í Skinney – Þinganes h/f að nafnverði rúmlega 15.000 hluti. Halldór á svo hluti í hinu og þessu batteríinu meðal annars DeCode, en ekki er um stórar upphæðir að ræða. Fjölskylduarfur Halldórs er metinn á ca 80 miljónir á markaðsvirði samkvæmt fréttum Rúv í gær. Reyndar kom þar ekkert fram um hlut Skinneyjar í Hesteyri og hlut Hesteyrar í VÍS. Eitthvað sem þeir eignuðust víst með því að skipta á sínum hlut í Ker þarna á síðustu metrunum áður en Búnaðarbankinn var seldur... Keri ásamt fleirum.
Birkir Jón, yngsti þingmaður þjóðarinnar á heila 25.000 hluta að nafnvirði í Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði enn smákóngur í þeim bransa. Jón Kristjánsson á rúmlega 400 þúsund í Landsbankanum og smotterí í DeCode. Það er kannski ekki óeðlilegt að ráðherra heilbrigðismála veðji á erfðarannsóknir til að auka auð sinn. Áhugvert er að viðskiptaráðherra vor hefur ekki staðið í miklum kaupum á hlutabréfum en hún á þó í þekktum apparötum í bransanum Burðarás, Gjögun og eins og Halldór og Siv á Valgerður í Skúlagarði sem er jú eignarhaldsfélag yfir heimili þeirra framsóknarmanna.
Siv Friðleifs virðist fjárfesta í félagsstörfum frekar en hlutafélögum en hún á 100.000 í Íslandstryggingu og tekur fram í sínu bókhaldi að hún sé í badminton félaginu Lurkarnir auk þess að vera félagi í 18 öðrum félagasamtökum.
Magnús, Hjálmar og Guðni eiga fáa hluti í nokkrum félögum. Landbúnaðarráðherra sannar það í bókhaldi sínu að hann er ekki taktlaus framsóknarmaður enda félagi í bæði Hrútavinafélaginu og Þrastavinafélaginu. Jónína, Dagný, Kristinn og Árni hafa ekki staðið í kaupum á hlutabréfum en eiginkona félagsmálaráðherra á þó 50 prósent í náttúrubúð. Sem sagt engin stórmenni í fjármálalífinu hér á ferð þó forsætisráðherra sé nú meira virði fyrir mörgum en áður, hvort sem hann getur talið sér það til tekna í kosningum eða ekki.
Þingmenn Vinstri grænna flokki alþýðunnar hafa ekki staðið í miklum fjárfestingum og segja má að eini milljónamaður flokksins sé sjálfur formaðurinn. Hann á auðvita sinn smá hlut í Símanum eins og frægt er orðið uppá 10.000 hluti að nafnvirði. Þá á hann tæpa tveggja milljóna króna hlut í Frystihúsi Þórshafnar hf sem var að vísu seldur í upphafi árs, 17.500 í Marel, 10.000 í Íslandsbanka, 202.500 hluti í Efnalaug Suðurlands, 51.800 hluti í Fjallalambi ehf, 150.000 í Seljarlaxi hf. Flestum kemur efalaust mest á óvart að höfuð og herðar vinstri grænna eigi svo mikið af hlutabréfum út um víða völl. Hvort svo fjárfestingar Steingríms séu til marks um góða fjárfestingastefnu verður svo að vera annarra að meta. Sjálfsagt hafa hægri menn þegar farið út í að reikna markaðsvirði Steingríms til að geta viðhaldið kenningunni um óhæfi vinstri manna með fjármuni.Þingmenn Framsóknar og Vinstri Grænna hafa nú berháttað sín fjármáltengsl fyrir kjósendum.
Nú er spurning hvort spjót Gróu á leiti beinist ekki í enn ríkari mæli að þeim flokkum sem ekki hafa opinberað bókhald sitt enn. Hversu lengi Samfylkingin lætur bíða lengi eftir sér og hvort frjálslyndir og sjálfstæðismenn þori svo að standa fjárhagslega alsberir fyrir framan alþjóð verður tíminn að leiða í ljós.
Svanborg Sigmarsdóttir - svanborg@frettabladid.is
Skoðun

Oft er forræðishyggja hjá fjölskyldum og á heimilum fatlaðs fólks
Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar

Um sjónarhorn og sannleika
Líf Magneudóttir skrifar

Lýðræðið er farið – er of seint að snúa við?
Einar G. Harðarson skrifar

Er gagnlegt að kunna að forrita á tímum gervigreindar?
Henning Arnór Úlfarsson skrifar

Málþóf og/eða lýðræði?
Elín Íris Fanndal skrifar

Umdeildasti fríverslunarsamningur sögunnar?
Arnar Þór Ingólfsson skrifar

Ísafjarðarbær í Bestu deild
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir,Gylfi Ólafsson skrifar

Þjóðarmorð í beinni
Arnar Eggert Thoroddsen skrifar

Allt þetta máttu eiga ef þú tilbiður mig
Birgir Dýrfjörð skrifar

Atvinnufrelsi!
Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar

Að mása eða fara í golf
Jón Pétur Zimsen skrifar

Leiðréttum kerfisbundið misrétti
Jónína Brynjólfsdóttir skrifar

Leikjanámskeið fyrir fullorðna við Austurvöll
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Sparnaðarráð fyrir ferðalagið
Svandís Edda Jónudóttir skrifar

Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín
Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar

Kaldar kveðjur frá Íslandi - á meðan Hörmungarnar halda áfram
Hjálmtýr Heiðdal,Yousef Ingi Tamimi,Magnús Magnússon skrifar

Samráðsdagar á Kjalarnesi
Ævar Harðarson skrifar

Skýr og lausnamiðuð afstaða Framsóknar til veiðigjalda
Ingibjörg Isaksen skrifar

Að mása sig hása til að tefja
Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar

Sjónarspil í Istanbul
Gunnar Pálsson skrifar

Að vilja meira og meira, meira í dag en í gær
Harpa Fönn Sigurjónsdóttir skrifar

Sjálfboðaliðinn er hornsteinninn
Hannes S. Jónsson skrifar

Kallað eftir málefnalegri umræðu um kröfur um íslenskukunnáttu
Eiríkur Rögnvaldsson skrifar

Gangast við mistökum
Júlíus Birgir Jóhannsson skrifar

Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu
Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir skrifar

Ríkisstjórnin ræðst gegn ferðaþjónustu bænda
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar

Að apa eða skapa
Rósa Dögg Ægisdóttir skrifar

Að reyna að „tímasetja“ markaðinn - er það góð strategía?
Baldvin Ingi Sigurðsson skrifar

Lífsnauðsynlegt aðgengi
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Hvers vegna var Úlfar rekinn?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar