Sport

Úrslit fyrstu deildar í gær

Þrír leikir voru í fyrstu deild karla í fótbolta í gær. Víkingur Ólafsvík vann óvæntan útisigur á Þór 4-2. Eyþór Páll Ásgeirsson skoraði tvö mörk, Slavisa Mitic og Hermann Geir Þórsson sitt markið hvor fyrir Ólsara. Lárus Orri Sigurðsson og Arnljótur Ástvaldsson skoruðu fyrir Þórsara. Fjölnir lagði KS að velli 4-1. Atli Guðnason skoraði tvívegis, Pétur Georg Markan og Tómas Leifsson bættu við sitt hvoru markinu en Grétar Sveinsson skoraði fyrir Siglfirðinga. Völsungur og Víkingur Reykjavík skildu jöfn 1-1, Hermann Aðalgeirsson kom Húsvíkingum yfir en Jón Guðbrandsson jafnaði metin. Breiðablik er efst í deildinni með 22 stig, Víkingur Reykjavík er í öðru sæti með 16 stig, Völsungur og KS eru neðst með sex stig. Framganga Víkinga í Ólafsvík vekur athygli en þeir eru í fjórða sæti með 14 stig. Fjölnismenn komust í fimmta sæti með 12 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×