Unnið að framgangi málsins 5. september 2006 07:00 Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Vonast eftir skjótir niðurstöðu. MYND/GVA
Enn hefur ekki verið ákveðið hvenær sala Reykjavíkurborgar á hlut borgarinnar í Landsvirkjun, til íslenska ríkisins, gengur í gegn. Reykjavíkurborg á 45 prósent í Landsvirkjun, íslenska ríkið 50 prósent og Akureyrarbær fimm prósent. Ráðandi meirihluti í borgarstjórn hefur lýst því yfir að hann ætli sér að selja hlutinn, að því gefnu að sanngjarnt verð fáist fyrir hlutinn. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri segir vinnu vegna sölunnar standa yfir. „Það liggur fyrir endurskoðað verðmat sem fulltrúar borgarinnar og ríkisins þurfa að fara yfir. Það er unnið hörðum höndum að framgangi málsins og við vonumst eftir niðurstöðu sem fyrst. Það gengur ekki upp að Reykjavíkurborg sé 45 prósenta eigandi að Landsvirkjun og 95 prósenta eigandi að Orkuveitu Reykjavíkur. Það sjá allir,“ sagði Vilhjálmur. Guðlaugur Þór Þórðarson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, segir það óæskilega stöðu að Reykjavíkurborg eigi stóran hlut í bæði Landsvirkjun og Orkuveitu Reykjavíkur, miðað þá stöðu sem nú er á markaði. „Þetta er óþolandi staða fyrir alla. Það er fráleitt að Reykjavíkurborg eigi ráðandi hlut í báðum þessum félögum, sérstaklega þegar samkeppnin er orðin lífleg á raforkumarkaði,“ sagði Guðlaugur Þór.
Innlent Mest lesið „Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Innlent Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Innlent Gaf fingurinn á Miklubraut Innlent Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent „Þetta hefur verið þungur tími“ Innlent Hundrað og fjörutíu milljarða bótakrafa á Samherja sé súrrealísk Innlent Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Erlent Appelsínugular og gular viðvaranir á aðfangadag Veður Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Erlent Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Innlent Fleiri fréttir Sameina Farice, Öryggisfjarskipti og hluta Neyðarlínunnar Gaf fingurinn á Miklubraut Birtir drög að lögum um lagareldi: Hyggst leggja niður Fiskeldissjóð Hundrað og fjörutíu milljarða bótakrafa á Samherja sé súrrealísk Skemmdir í kirkjugörðum vegna aksturs utan vegar Ólýsanlegur harmur fyrir fjölskylduna og söfnun hleypt af stokkunum „Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Vill leiða lista Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ „Þetta hefur verið þungur tími“ Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Færir nýársboðið fram á þrettándann Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Nú má heita Love, Tóní, Ranimosk og Draumur Kvartar til umboðsmanns og vonar að Vegagerðin sjái að sér Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Gyðingar á Íslandi upplifa aukinn ótta Ferðaþjónusta blómstrar í uppsveitum Árnessýslu „Þetta er bara ljótt“ Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Ætlar að skýra hvenær rjúfa megi þagnarskyldu Þagnarskylda heilbrigðisstarfsfólks og öryggisgæsla við grunnskóla Eyjólfur í orlof og Inga þrefaldur ráðherra Vegagerðin segir flóðin í Vík fyrirséð Fjölmiðlar, bókmenntir og hægrimennska á Sprengisandi „En hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt?“ Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Sjá meira
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent