Skutu hunda sér til gamans 8. febrúar 2007 15:00 Þessir labrador hundar hefðu líklega þótt tilvalin skotmörk hjá búlgörsku vörðunum illræmdu.
Verðir í búlgörskum almenningsgarði hafa valdið deilum meðal embættismanna eftir að þeir skutu hund rússnesks ræðismanns - af því að þeim leiddist. Rússneski konsúllinn í borginni Russe í Búlgaríu krefst aðgerða eftir að labrador hundurinn hans, Mecho, var skotinn til bana af vörðunum, en þeir notuðu hann sem skotmark í hæfniskeppni. Verðirnir voru ráðnir við gæslu í garðinum nálægt heimili konsúlsins, en hann var vanur að ganga með hundinn í garðinum. Hundurinn slapp út úr sendiráðinu kvöldið örlagaríka og hljóp inn í garðinn. Ræðismaðurinn Yuri Trushin sagði að hann hafi ekki tekið eftir hvarfi hundsins fyrr en næsta morgun. Þá fór hann út að leita og fann sundurskotinn skrokk hundsins í garðinum ásamt skrokkum fleiri hunda. Trushin sagði að vitni hefðu séð verðina í garðinum "skemmta" sér við þá iðju að skjóta að hundunum kvöldið áður. Hann sagðist hafa skrifað yfirvöldum í Russe og látið í ljós reiði sína, en hann hafi einnig hvatt Rússneska utanríkisráðuneytið til að grípa til aðgerða.
Fréttir Mest lesið Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Erlent Eins og að vera fangi í eigin líkama Innlent Þegar Þorvaldur í Síld og fisk varð örlagavaldur Loftleiða Innlent Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Innlent Þrír réðust á ungan mann í Árbænum og flúðu á brott Innlent Ætlar að tala við Pútín um að „binda enda á blóðbaðið“ Erlent Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Innlent Staðan í hagkerfinu og alþjóðamálin Innlent Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Fleiri fréttir Leó orðinn páfi Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Ætlar að tala við Pútín um að „binda enda á blóðbaðið“ Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Níu drepnir í drónaárás á rútu Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Hlýtur 25 ára dóm fyrir banatilræðið við Rushdie Gerðu umfangsmiklar árásir á Jemen Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Diplómatinn sem grunaður var um njósnir er látinn Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum „Rússland vill augljóslega stríð“ Rekja fjöldamorðið í Örebro til gremju byssumannsins vegna lífs síns Íhuga að refsa Pakistönum með stíflum og fráveituskurðum Litlar væntingar til fyrstu beinu friðarviðræðnanna í meira en þrjú ár Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy „Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Hnattræn hlýnun nær í skottið á einni af perlum Patagóníu ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Sjá meira