Motta: Ég tapaði sjálfstraustinu 14. mars 2007 14:28 NordicPhotos/GettyImages
Brasilíumaðurinn Thiago Motta hjá Barcelona hefur nú beðist afsökunar á því að hafa ekki mætt á æfingu hjá liðinu í síðustu viku og ber því við að hann hafi tapað sjálfstraustinu eftir slakan fyrri leik gegn Liverpool í Meistaradeildinni. Hinn 24 ára gamli miðjumaður var gagnrýndur harðlega eftir 2-1 tap Barcelona á heimavelli gegn Liverpool og mætti ekki á æfingu þegar liðið var að undirbúa sig undir leikinn stóra gegn Real Madrid í deildinni nokkrum dögum síðar. Frank Rijkaard þjálfari Barcelona ákvað að gefa leikmanninum smá frí til að rétta úr kútnum. "Ég brást fjölda fólks með framkomu minni, en málið er það að ég var í molum vegna þess að ég var búinn að spila mikið. Ég var ekki þunglyndur, en ég vissi bara ekki hvað ég átti að gera og fékk mig ekki til að mæta á æfingu. Þetta var ekki góður leikur af minni hálfu og ég biðst afsökunar á framkomu minni. Ég tek gagnrýni eins og hver annar, en mér fannst ég fá meiri gagnrýni en aðrir og það skil ég ekki. Ég vil hinsvegar snúa við blaðinu og spila betur, því ég vil umfram allt spila með Barcelona," sagði Brasilíumaðurinn.
Spænski boltinn Mest lesið Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport Fannst látinn í hótelherbergi sínu Sport Hélt áfram að keppa þótt að kærastan lægi meðvitundarlaus í gólfinu Sport EM í dag: Of langt gengið að kalla mig nautheimskan Fótbolti Rekinn sextán mánuðum eftir skandalinn Formúla 1 „Heimskuleg spurning og dónaleg“ Fótbolti Landsliðsþjálfaranum létt og spenna í hópnum Sport „Áður en ég yfirgef þennan heim vil ég stjórna Íslandi” Fótbolti Landsliðskona tryggir sér 993 milljóna skósamning Fótbolti Ein stærsta stjarna NFL fær að heyra það: Þú ert feitur Sport Fleiri fréttir United boðið að skrapa botninn á tunnunni Samþykkja tilboð Tottenham í Kudus Í beinni: Frakkland - Wales | Búnar að jafna sig á rútuslysinu? Ancelotti dæmdur fyrir skattsvik Safna stuðningsfólki í fría rútu með fljótandi veigar Englendingar hrukku heldur betur í gang Lyon heldur sæti sínu í deildinni eftir allt saman EM í dag: Of langt gengið að kalla mig nautheimskan „Vissulega eru það vonbrigði“ „Þetta er það sem að mann dreymdi um“ „Heimskuleg spurning og dónaleg“ Staðfestir eina breytingu á byrjunarliðinu í leiknum á morgun Svona var blaðamannafundurinn fyrir leikinn gegn Noregi Sláandi tölfræði Sveindísar: Eitt skot á markið á 419 mínútum á EM „Að hlusta á ræður hjá henni gefur mér enn gæsahúð“ Landsliðskona tryggir sér 993 milljóna skósamning „Áður en ég yfirgef þennan heim vil ég stjórna Íslandi” Fagnaði ekki mörkunum tveimur gegn uppeldisfélaginu Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Pedro skaut Chelsea í úrslitin Uppgjörið: Egnatia - Breiðablik 1-0 | Grátlegt tap í Albaníu Fyrrum leikmaður United til liðs við Arsenal Óska eftir að að fyrsta leik deildarinnar verði frestað Sögðu Betu að drulla sér frá Belgíu: „Nýtt fyrir mér“ Svíþjóð örugglega áfram í átta liða úrslit Besti ungi leikmaðurinn í Japan í fyrra kominn til Tottenham Shaina boðin hjartanlega velkomin aftur í Hamingjuna EM í dag: Nótt á spítala, hræddir blaðamenn og nammi frá Betu FIFA opnar skrifstofu í Trump turni Þjóðverjar völtuðu yfir Dani í seinni hálfleik Sjá meira