Valur Ingimundarson: Við viljum fá pressuna á okkur 14. mars 2007 16:04 Valur Ingimundarson, þjálfari Skallagríms
Úrslitakeppnin í Iceland Express deildinni í körfubolta hefst með látum annað kvöld. Þar mætast meðal annars Skallagrímur og Grindavík í fyrstu umferðinni líkt og á síðustu leiktíð. Valur Ingimundarsson, þjálfari Skallagríms, segir allt annað uppi á teningnum hjá liðinu í ár en í fyrra. "Grindvíkingar hafa verið að stíga vel upp í síðustu deildarleikjum á meðan við höfum verið að slaka aðeins á, en við munum laga það og vera komnir í gírinn þegar úrslitakeppnin hefst," sagði Valur og bætti við að í ár væru áherslurnar aðrar en áður hjá Borgnesingum. "Dæmið er búið að snúast við hjá okkur. Við erum ekki þetta öskubuskulið sem við vorum í fyrra og þannig viljum við hafa það. Við fögnum því að hafa pressuna á okkur og viljum vera dálítið fullorðnir í þessu. Grindavík og Skallagrímur eru svipuð lið, með svipaða hæð og mannsskap og spila ekkert ósvipað. Þetta er bara spurning um baráttu og karakter og það að vera tilbúinn í þetta. Þegar maður kemur í úrslitakeppnina má maður ekki misstíga sig," sagði Valur og viðurkenndi að líklega þýddi ekki að setja stefnuna á minna en titilinn í vetur eftir að hafa komist í úrslitin í fyrra. "Við viljum fá pressu á okkur og viljum fá meira en í fyrra. Þá spiluðum við góðan vetur og góða úrslitakeppni, en við gerum auðvitað þá kröfu á okkur að við verðum klárir í þetta verkefni í úrslitakeppninni núna og svo sjáum við bara hvernig fer," sagði Valur.
Dominos-deild karla Mest lesið Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Fótbolti Vann hundrað kílómetra hlaup og gaf brjóst á leiðinni Sport Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Handbolti Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“ Íslenski boltinn Slógu saman heimsmetið í bakgarðshlaupum Sport Neymar hlustaði á hjartað sitt Fótbolti Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Enski boltinn Dagskráin: Stelpurnar hennar Betu í beinni og Norðurálsmótið Sport Bayern gæti þurft að fara svakalega leið að titlinum Fótbolti Tvö rauð spjöld og slagsmál er Inter komst áfram Fótbolti Fleiri fréttir Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Fór frá bróður og Keflavík: „Þarf ekkert litla bróður sinn með sér í liði“ Buss fjölskyldan selur Los Angeles Lakers fyrir metupphæð Hæsta kona heims lék sinn fyrsta landsleik Rúnar Birgir á EuroBasket Dolezaj til liðs við nýliðana Álftnesingar krækja í lykilmann Keflavíkur Sjá meira