Körfubolti

Garnett með þrennu gegn Cleveland

Garnett sækir hér að LeBron James í leiknum í nótt
Garnett sækir hér að LeBron James í leiknum í nótt NordicPhotos/GettyImages

Boston Celtics vann í nótt lokaleik sinn á undirbúningstímabilinu í NBA þegar liðið skellti Austurdeildarmeisturum Cleveland 114-89 á heimavelli. Kevin Garnett var með þrennu í leiknum.

Garnett skoraði 21 stig, hirti 13 fráköst og gaf 10 stoðsendingar fyrir Boston og Ray Allen bætti við 20 stigum. Boston vann fjóra leiki í undirbúningnum en tapaði þremur. Cleveland vann aðeins einn af sjö leikjum sínum og var Larry Hughes þeirra stigahæstur með 18 stig í nótt og LeBron James setti 17 stig.

Úrslitin í nótt:

Toronto 98 - Washington 64

New Orleans 111 - Charlotte 100

New York 86 - New Jersey 102

Minnesota 106 - Milwaukee 85

Memphis 113 - Indiana 140

San Antonio 99 - Houston 9

LA Lakers 101 - Sacramento 97

Portland 125 - Denver 133

Seattle 121 - Phoenix 108

LA Clippers 103 - Golden State 109

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×