Ekki stefnt að sölu D‘Angleterre 26. nóvember 2008 00:01 Gísli við d‘angleterre Flottasta hótel Norðurlandanna stendur í hjarta Kaupmannahafnar við Nytorv. Markaðurinn/Samsett mynd „
Ég veit ekki hvaðan þessar upplýsingar eru komnar, svo sannarlega ekki frá mér,“ segir Gísli Reynisson, meirihlutaeigandi í eignarhaldsfélaginu Nordic Partners, sem á dönsku hótelin Kong Frederik, Front og D‘Angleterre, eitt þekktasta hótel Norðurlanda. Nordic Partners keypti rekstrarfélag hótelanna í fyrrahaust Kaupverð var ekki gefið upp. Danska dagblaðið Berlingske Tidende sagði í gær verðið hafa verið nálægt einum milljarði danskra króna. Í kjölfar bankahrunsins hafi orðrómur farið á kreik um að Nordic Partners þreifi fyrir sér með sölu. Danskir fjárfestar hafi ekki áhuga á hótelunum og séu fjárfestar frá Þýskalandi, Hollandi og Austurríki helst taldir koma til greina. Þeir horfi til mikillar uppstokkunar. Eins og aðstæður séu í dag hafi fáir áhuga nema á niðursettu verði. Gísli undrast umfjöllun blaðsins, segir hana á svipuðum nótum og í byrjun mánaðar þegar Berlingske sagði hótelin komin í eigu Landsbankans. Hið rétta sé að bankinn hafi komið að fjármögnun kaupanna. „Sem fjárfestingarfélag höfum við ekkert á móti því að selja hlut í hótelunum. En sala á þeim er ekki í myndinni,“ segir Gísli. - jab
Markaðir Mest lesið Finnsson fjölskyldan: „Það var samt eitthvað svo fallegt við þetta“ Atvinnulíf Lagning gjaldþrota Viðskipti innlent Spennandi tími til að opna nýjan fjölmiðill Viðskipti innlent „Fyrir löngu orðin að aðstoðarmanninum sem ég leitaði að í tólf ár“ Atvinnulíf Sannfærð um að hún var Skoti í fyrra lífi Atvinnulíf „Haustið 1937 skrifaði afi Bjarna Ben bæjarstjóra bréf“ Atvinnulíf Slógu lán hjá Útvegsbankanum og bankastjórinn hló Atvinnulíf Fyrrverandi bankastjóri nýr forstjóri Thor landeldis Viðskipti innlent Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Viðskipti innlent Lífsverk og Almenni lífeyrissjóðurinn í eina sæng Viðskipti innlent Fleiri fréttir Spennandi tími til að opna nýjan fjölmiðill Lífsverk og Almenni lífeyrissjóðurinn í eina sæng Lagning gjaldþrota Fyrrverandi bankastjóri nýr forstjóri Thor landeldis Edda María leiðir stafræna markaðsþjónustu Vettvangs Uppsagnir hjá Fjársýslunni Guðný ráðin fræðslustjóri og Kristófer Orri í gjaldeyrismiðlun Kostaði tvo milljarða að selja Íslandsbanka Verðbólgan 4,1% og fer upp á milli mánaða Bein útsending: Framsýn forysta Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Neyslan mikil og sjá ekki að stýrivextir fari hratt lækkandi Sexfölduðu veltuna á einu ári Gjaldeyrisforðinn nálægt billjón króna Rúna nýr innkaupastjóri Banana Úr geimskipaútgerð til Faxaflóahafna Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Selur Alvogen í Bandaríkjunum með samruna sem skapar risa á lyfjamarkaði Óvissa á alþjóðavettvangi undirstrikar mikilvægi ríflegs gjaldeyrisforða SVEIT muni afhenda öll gögn og ekki greiða dagsektir SVEIT sleppi ekki við milljónasektir Bætist í eigendahóp Strategíu Guðrún til Landsbankans Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Vélfag stefnir ríkinu Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Sjá meira