NBA í nótt: Utah vann Dallas Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. mars 2008 09:09 Kyle Korver fagnar hér einni körfu sinni í leiknum í nótt. Nordic Photos / Getty Images
Þrír leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt þar sem Utah vann góðan sigur á Dallas en New York tapaði enn einum leiknum. Leikur Utah og Dallas var í járnum þegar sjö mínútur voru til leiksloka en þá skoraði Jason Kidd körfu og kom Dallas í 92-89 forystu. Þá tók hins vegar Utah til sinna mála og komst á 16-0 sprett sem dugði til að innbyrða sigurinn, 116-110. Deron Williams var með sautján stig og 20 stoðsendingar en stigahæstur var Carlos Boozer með 28 stig. Hjá Dallas var Josh Howard stigahæstur með 25 stig og Dirk Nowitzky bætti við 23. Utah er með bestan árangur allra liða í deildinni á heimavelli í vetur en liðið hefur unnið 26 leiki og tapað aðeins þremur. New Orleans vann New York, 100-88, þar sem Chris Paul skoraði 27 stig og skoraði þrjár lykilkörfur undir lok leiksins sem tryggði New Orleans sigurinn í leiknum. Tyson Chandler bætti við fimmtán stigum auk þess sem hann tók átján fráköst. Hjá New York var Jamal Crawford stigahæstur með 20 stig og Eddy Curry bætti við nítján stigum. Zach Randolph lék ekki með liðinu í nótt vegna meiðsla. Philadelphia vann LA Clippers, 106-80. Andre Iguodala skoraði átján stig fyrir Philadelphia en fimm aðrir leikmenn liðsins skoruðu tíu stig eða meira í leiknum. Þetta var tíundi sigur Philadelphia í síðustu þrettán leikjum liðsins sem á í harðri baráttu við New Jersey og Atlanta um sæti í úrslitakeppninni. Al Thornton var með 20 stig fyrir Clippers sem hafa tapað sex leikjum í röð.
NBA Mest lesið Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport EM í dag: Of langt gengið að kalla mig nautheimskan Fótbolti United boðið að skrapa botninn á tunnunni Fótbolti Brottreksturinn kom Horner í opna skjöldu Formúla 1 Hélt fótboltabúðir fyrir hinsegin ungmenni Sport Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Körfubolti Sengun í fantaformi í sumarfríinu Körfubolti Djokovic í undanúrslit í fjórtánda sinn Sport Algjörir yfirburðir PSG gegn Real Madrid Fótbolti Fannst látinn í hótelherbergi sínu Sport Fleiri fréttir Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Sjá meira