Bryant frestar aðgerð á fingri 10. september 2008 15:34 Keppnismaðurinn Kobe Bryant ætlar enn að fresta því að fara í aðgerð NordicPhotos/GettyImages
Stjörnuleikmaðurinn Kobe Bryant hjá LA Lakers hefur ákveðið að fresta enn og aftur að fara í aðgerð á litlafingri hægri handar eftir að hafa meiðst á honum í febrúar sl. Bryant hefði helst þurft að fara í aðgerð strax í febrúar, en frestaði því og ætlaði upphaflega að fara í aðgerð í sumar. Hann frestaði því á ný vegna anna með bandaríska landsliðinu á Ólympíuleikunum í Peking. Nú hefur kappinn enn á ný ákveðið að fresta aðgerðinni, því hann segist ekki vera tilbúinn að missa úr þær tólf vikur sem reiknað er með að hann þurfi til að jafna sig eftir aðgerðina. "Þegar læknarnir sögðu mér að endurhæfingin tæki jafnlangan tíma og raun ber vitni, ákvað ég að fresta þessu enn um sinn. Ég vil ekki missa úr tíma í ljósi þess sem við hjá Lakers ætlum okkur næsta vetur," sagði Bryant á heimasíðu sinni. Búist er við því að Bryant og spænski landsliðsmaðurinn Pau Gasol muni þurfa að púla minna en aðrir leikmenn í herbúðum Lakers í haust, þar sem þeir voru báðir á fullu með landsliðum sínum í sumar. Phil Jackson, þjálfari Lakers, var vanur að gefa mönnum eins og Michael Jordan og Scottie Pippen tíma til að hvíla þegar hann var þjálfari Chicago Bulls á sínum tíma og það sama verður væntanlega uppi á teningnum með Bryant og Gasol að þessu sinni. Æfingabúðir Lakers-liðsins hefjast þann 27. september nk og fyrsti leikur liðsins í deildarkeppninni verður gegn Portland Trailblazers þann 28. október í Staples Center.
NBA Mest lesið Þóra grætur í koddann ef Þorsteinn verður áfram með liðið Fótbolti Segir dóttur sína hafa gert mistök með því að velja íslenska landsliðið Fótbolti Mátti ekki kaupa íbúð Babe Ruth Sport Dagskráin í dag: Golf og aftur golf Sport Hneig niður tvisvar á risamóti í golfi Golf Viðurkenndi sök og má ekki keppa í CrossFit í fjögur ár Sport Wenger á allt annarri skoðun en Klopp Fótbolti Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn „Þetta snýst ekki bara um Sveindísi og Karólínu“ Fótbolti Fleiri fréttir Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Sjá meira