NBA-deildin: Gasol sneri aftur með stæl í sigri Lakers Ómar Þorgeirsson skrifar 20. nóvember 2009 09:15 Pau Gasol. Nordic photos/AFP
Þrír leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þar sem hæst bar endurkoma Spánverjans Pau Gasol í sannfærandi 108-93 sigri LA Lakers gegn Chicago Bulls í Staples Center. Gasol var stighæstur hjá Lakers með 24 stig í sínum fyrsta leik á tímabilinu eftir að vera búinn að jafna sig af meiðslum og var eðlilega hæst ánægður í leikslok. „Ég gæti ekki verið ánægðari. Ég get ekki sagt að ég hafi átt von á því að koma svona sterkur til baka og í fyrsta leik eftir meiðslin en ég skemmti mér konunglega og allt gekk upp," sagði Gasol. Kobe Bryant kom næstur hjá Lakers með 21 stig en þau stig duguðu honum til þess að fara fram úr Kareem Abdul-Jabbar sem annar stigahæsti leikmaður í sögu Lakers með 24.182 stig en Jerry West er á toppnum á listanum með 25.192 stig. Peja Stojakovic fór fyrir sínum mönnum í New Orleans Hornets sem vann 110-103 sigur gegn Phoenix Suns en hann skoraði 25 stig og tók 13 fráköst en Amare Stoudemire var stigahæstur hjá Suns með 23 stig. Þá náði Utah Jazz að vinna langþráðan 83-90 sigur gegn San Antonio Spurs en Jazz var ekki búið að vinna Spurs í síðustu tuttugu viðureignum liðanna. Deron Williams var stigahæstur hjá Utah með 21 stig en Tim Duncan skoraði 21 stig fyrir Spurs.Úrslitin í nótt: LA Lakers-Chicago 108-93 New Orleans-Phoenix 110-103 San Antonio-Utah 83-90
NBA Mest lesið Þorsteinn Roy fyrstur í mark annað árið í röð Sport Uppgjörið: Vestri í úrslit í fyrsta skipti Íslenski boltinn Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Íslenski boltinn Sigurvegarinn Þorsteinn: „Það má ekki á Íslandi“ Sport „Síðasti leggurinn var helvíti þungur“ Sport „Þorsteinn er allt of lengi að bregðast við“ Fótbolti Hvaðan koma peningarnir sem Tottenham er að eyða? Fótbolti Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Körfubolti „Nýtti reynsluna úr vindinum heima til að halda þolinmæði“ Golf Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Handbolti Fleiri fréttir Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn Sjá meira