Ég er ekkert hættur að þjálfa 18. mars 2009 17:26 Einar Árni Jóhannsson
Einar Árni Jóhannsson þjálfari Breiðabliks í Iceland Express deildinni tilkynnti í gærkvöld að hann væri hættur störfum hjá félaginu. Það var karfan.is sem greindi frá þessu. Einar skilaði Blikum í úrslitakeppnina þrátt fyrir að liðinu hefði verið spáð falli í haust, en liðið var auk þess nokkuð óheppið með meiðsli í vetur. Hann segist ekki hafa tíma til að vera jafnmikið á ferðinni næsta vetur og undanfarin tvö keppnistímabil, en hann er búsettur í Njarðvík. "Ég tilkynnti stjórninni þetta fyrir nokkrum vikum síðan. Ég var búinn að reyna að láta það ganga upp að vera svona mikið á ferðinni en þetta púsluspil gengur einfaldlega ekki upp," sagði Einar Árni, sem skilur vel við Blikana. "Ég hef átt gott samstarf við stjórnarmenn hjá Breiðablik á þessum tveimur árum og hef ekkert nema gott um það að segja. Ég hefði viljað halda áfram en fjölskyldunnar vegna varð ég að taka þessa ákvörðun," sagði Einar Árni, sem valinn var besti þjálfarinn í fyrri umferðunum í deildinni í vetur. Hann er þó ekki hættur í körfubolta þó hann sé hættur að þjálfa í úrvalsdeild, enda hefur hann um árabil verið á fullu í þjálfun. "Ég er búinn að þjálfa í sextán ár svo það er klárt að ég er ekki hættur. Ég varð bara að vera nærri heimahögunum. Ég ætla bara að taka mér smá tíma til að slaka á núna og svo sér maður til," sagði Einar.
Dominos-deild karla Mest lesið Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Fótbolti Níu ár síðan að strákarnir okkar „slökktu á“ Steve McClaren í beinni á Sky Sports Fótbolti Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik Handbolti Hetja Blika í kvöld lá í viku inn á spítala í janúar með blóðsýkingu Íslenski boltinn David Beckham lagður inn á sjúkrahús Fótbolti Svarar ekki Óskari Hrafni: „Ég tala bara úti á velli, ekki eftir á“ Íslenski boltinn Hetja Blika með þrennu af bekknum: „Allir jafn mikilvægir“ Sport Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits Enski boltinn ÍR-ingar gefa ekkert eftir og tóku toppsætið aftur af Njarðvík Íslenski boltinn Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 1-4 | Kristófer með þrennu á móti uppeldisfélaginu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Fór frá bróður og Keflavík: „Þarf ekkert litla bróður sinn með sér í liði“ Buss fjölskyldan selur Los Angeles Lakers fyrir metupphæð Hæsta kona heims lék sinn fyrsta landsleik Rúnar Birgir á EuroBasket Sjá meira