Þjálfari 21 árs landsliðs Dana: Skil vel ákvörðun Íslendinga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. október 2010 13:30 Íslenska 21 árs liðið fagnar sigri. Mynd/Anton
Keld Bordinggaard, þjálfari danska 21 árs landsliðsins, skilur vel þá ákvörðun stjórnar Knattspyrnusambands Íslands að setja 21 árs landsliðið í forgang. Sjö leikmenn A-landsliðsins munu spila með 21 árs landsliði Íslands í umspilsleikjunum á móti Skotum í stað þess að spila með A-landsliðinu á móti Portúgal í undankeppni EM. „Ísland á nú mjög hæfileikaríkan árgang og það væri frábær reynsla fyrir þá að komast á úrslitakeppni EM áður en þeir hefja næstu undankeppni með A-landsliðinu. Þetta er beinskeytt taktísk ákvörðun hjá íslenska knattspyrnusambandinu og ég skil hana vel," sagði Keld Bordinggaard í viðtalið við danska Tipsblaðið. „Þarna fara leikmennirnir sem eiga að koma Íslandi á næstu stórmót A-landsliða og þeir munu njóta góðs af því að hafa náð svo langt með 21 árs liðinu," sagði Bordinggaard. Bordinggaard segir að Ísland geti engu að síður stillt upp sterku byrjunarliði á móti Portúgal en Danir og Norðmenn hafa litið svo á að Ísland sé að afhenda Portúgölum þrjú stig á silfurfati með þessari ákvörðun sinni. „Ísland veit að þeir munu ekki komast á EM og þess vegna er enn mikilvægara fyrir íslenska knattspyrnu að 21 árs landsliðið komist í úrslitakeppnina, sagði Bordinggaard.
Íslenski boltinn Mest lesið Furðar sig á fjarveru Lárusar Orra: „Finnst þetta skrítið“ Íslenski boltinn Ná samkomulagi um kaup á Alberti Fótbolti Fóru yfir lætin í Kópavogi: „Höskuldur tryllist strax frá byrjun“ Íslenski boltinn John Andrews og Björn reknir Íslenski boltinn Staðfesta kaupin á Alberti Guðmunds Fótbolti Sjáðu slagsmálin eftir jöfnunarmark Blika Íslenski boltinn Barðist fyrir Viggó við erfiðar aðstæður: „Ég vildi þetta ekki“ Handbolti Höskuldur fékk tveggja leikja bann eftir ofsalega framkomu Íslenski boltinn Bestu mörkin: Völdu draumalið Íslands á EM og engin þeirra eru eins Fótbolti Enginn Íslendingur á heimsleikunum í fyrsta sinn í sautján ár Sport Fleiri fréttir KR-ingar í Melabúðinni um stöðu liðsins: „Verða að gyrða sig í brók“ Höskuldur fékk tveggja leikja bann eftir ofsalega framkomu Furðar sig á fjarveru Lárusar Orra: „Finnst þetta skrítið“ John Andrews og Björn reknir Óskar láti gagnrýnisraddir úr Vesturbæ sem vind um eyru þjóta Fóru yfir lætin í Kópavogi: „Höskuldur tryllist strax frá byrjun“ Sjáðu mörkin úr Bestu: Valur rústaði KR og tvö rauð fóru á loft í Kópavogi Sjáðu slagsmálin eftir jöfnunarmark Blika Uppgjörið: Valur-KR 6-1 | Valsmenn rassskelltu KR-inga Uppgjörið: ÍBV-Afturelding 1-2 | Tvö mörk á tveimur mínútum tryggðu sögulegan sigur Uppgjörið: Breiðablik - Fram 1-1 | Dramatík í Kópavogi Aldrei séð föður sinn jafn glaðan og sáttan í einu og sama verkefninu Sjáðu mörkin úr Bestu þar sem Gylfi Þór fór mikinn og glæsimark var skorað „Gæðin í liðinu munu alltaf skora mörk“ Uppgjör: ÍA-Stjarnan 0-3 | Stjarnan upp í þriðja sætið eftir sigur á botnliðinu Uppgjör: KA-Víkingur 0-2 | Gylfi maðurinn á bak við sigur Víkinga Taplausir ÍR-ingar juku forskot sitt á toppnum Tíu Þórsarar lönduðu fyrsta sigri sínum í þessum mánuði Sigurður Bjartur: Ég fór beint í klippuna Félagarnir í sjokki: Sjáðu stórkostlegt mark Sigurðar Bjarts Fékk símtal á fimmtudaginn og komst að samkomulagi sólarhring síðar Uppgjörið: FH - Vestri 2-0 | Upp um fjögur eftir magnað mark og skalla Uppgjörið: Þór/KA - Víkingur 4-1 | Öruggur sigur Þórs/KA gegn lánlausi liði Víkings Uppgjörið: FH - Valur 1-2 | Valur nældi sér í ofboðslega langþráðan sigur Lárus sagði leikmenn ÍA hætta og stjórnendur sofa á verðinum Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 0-3 | Blikar á toppnum næsta mánuðinn Reif Sæunni niður á hárinu Lárus Orri stýrir ÍA út tímabilið Gæti gerst hratt hjá ÍA en varaplanið er klárt Íhugaði að koma ekki heim: „Þarf að berjast fyrir mínu sæti í liðinu“ Sjá meira