

Reynir Sigurðsson: Kosningabarátta í boði Reykjanesbæjar
Á erfiðum tímum þegar kennurum er gert að fara sparlega með pappír og strangar reglur gilda um ljósritun efnis fyrir börnin okkar fáum við um lúguna glansbækling frá eignarhaldsfélaginu Fasteign með mynd af bæjarstjóranum. Þetta er meðal þess sem Reykjanesbær stendur undir í formi leigu á skólum og öðrum innviðum samfélagsins sem sólundað var í einkavæðingunni.
Við fáum kort af nýja göngustígnum, með mynd af bæjarstjóranum. Okkur er boðið í rútuferðir um bæjarfélagið þar sem bæjarstjórinn er leiðsögumaður og hvert sem maður lítur sér maður myndir af bæjarstjóranum til að auglýsa „íbúafundi“. Hvað er þetta annað en kosningaráróður borgaður af bæjarfélaginu.
Er virkilega þannig komið fyrir sjálfstæðisflokknum í Reykjanesbæ að hann skyrrist ekki við að nota almannafé sér til framdráttar í kosningabaráttu? Er siðferðið algjörlega komið á núllpunkt? Svarið er því miður JÁ. Það er nöturlegt í ljósi alls sem á undan er gengið í þjóðfélaginu að sjálfstæðismenn hér í Reykjanesbæ séu enn með höfuðið í sandinum. Neita að opna augun fyrir því að hér átti sér stað hrun sem ekki á sér hliðstæðu á byggðu bóli, jafnvel á heimsvísu. Þrátt fyrir það svífast menn einskis og fara í vasa allra bæjarbúa til að kosta kosningabaráttu sína.
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ neitar að taka þátt í að læra af hruninu, læra af skýrslunni. Bankarnir voru rændir innanfrá og það sama hefur gerst í sveitarfélaginu okkar og er enn að gerast. Fyrst voru það skólarnir og íþróttahúsin, svo var það Hitaveitan. Og hverjir fengu stór kúlulán hjá Sparisjóði Keflavíkur áður en hann fór á hausinn? Dómgreindarleysi, siðleysi og vanmáttur Sjálfstæðisflokksins er augljóst. Þurfum við frekari vitna við?
Skoðun

Traustur vinur getur gert voðaverk!
Arnrún María Magnúsdóttir skrifar

Hrós getur skipt sköpum
Ingrid Kuhlman skrifar

Leiðrétting vegna rangfærslna framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda
Elín Margrét Stefánsdóttir skrifar

Þrautreynd baráttukona fyrir auknum fjárveitingum til Háskóla Íslands
Ragný Þóra Guðjohnsen skrifar

Vönduð vinnubrögð í umhverfismálum
Edda Sif Pind Aradóttir,Sævar Freyr Þráinsson skrifar

Jón og félagar eru farnir
Árni Guðmundsson skrifar

Gervigreind, uppfinningar og einkaleyfi
Einar Karl Friðriksson skrifar

Fyrirmynd í kennslu og fræðastarfi – af hverju við styðjum Silju Báru
Valgerður Björk Pálsdóttir,Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir skrifar

Við lifum í skjóli hvers annars
Dagný Hængsdóttir Köhler skrifar

Halldór 01.03.2025
skrifar

COVID-19: 5 ár frá fyrsta smiti
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Meira um íslenskan her
skrifar

Sannanir í dómsmáli? Huldufyrirtæki og huldusögur
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

Guðrún Hafsteinsdóttir til forystu
Hópur Sjálfstæðismanna skrifar

Háskóladagurinn og föðurlausir drengir
Margrét Valdimarsdóttir skrifar

Björn Þorsteinsson er gefandi og gagnrýninn stjórnandi fyrir öflugan Háskóla Íslands
Nanna Hlín Halldórsdóttir,Katrín Pálmad. Þorgerðardóttir skrifar

En hvað með mig kórinn: Eiga kennarar að vera lægsti samnefnari launaþróunar
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Vandi Háskóla Íslands og lausnir – III – Fjármögnun háskóla
Pétur Henry Petersen skrifar

Loðnukreppan: Fleiri hvalir þýða meiri fiskur
Micah Garen skrifar

Tölum um það sem skiptir máli
Flosi Eiríksson skrifar

Hvernig borg verður til
Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar

Vill ríkisstjórnin vernda vatnið okkar?
Snæbjörn Guðmundsson skrifar

Tækifærin felast í hjúkrunarfræðingum
Helga Rósa Másdóttir skrifar

Ert þú ung kona á leiðinni á landsfund?
Hópur ungra Sjálfstæðiskvenna skrifar

Dagur sjaldgæfra sjúkdóma 2025
Alice Viktoría Kent skrifar

Sjálfstæðisflokkurinn – Breiðfylking framtíðar
Sigvaldi H. Ragnarsson skrifar

Guðrún Hafsteins nýr leiðtogi - Sameinandi afl
Jóna Lárusdóttir skrifar

Látum verkin tala
Sigríður María Björnsdóttir Fortescue skrifar

Guðrún Hafsteinsdóttir, leiðtogi með sterka framtíðarsýn
Jón Ólafur Halldórsson skrifar

Sannanir í dómsmáli? Rithandarrannsóknir, seinni grein
Jörgen Ingimar Hansson skrifar