Fótbolti

Tap hjá Gylfa og félögum - stórsigur hjá Bayern

Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í þýska liðinu Hoffenheim máttu sætta sig við tap á útivelli gegn Stuttgart í dag. Þeir Shinji Koazaki og Pavel Pogrebnyak skoruðu mörk Stuttgart í 2-0 sigri.

Gylfi Þór var í byrjunarliði Hoffenheim í dag og lék allan leikinn.

Hoffenheim siglir lygnan sjó í deildinni í áttunda sæti. Bayern Munchen er á toppnum. Bayern skellti Hertha Berlin í dag, 4-0.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×