Stjörnumenn enduðu sigurgöngu Stólanna í Síkinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. febrúar 2011 20:57 Justin Shouse var öflugur í kvöld.
Stjörnumenn komust upp í fimmta sæti Iceland Express deild karla eftir tólf stiga sigur á Tindastól í Síkinu í kvöld, 90-78, en þetta var fyrsta tap Stólanna á heimavelli síðan í lok október eða í sjö leikjum. Justin Shouse skoraði 27 stig fyrir Stjörnuliðið sem fór aðeins með átta leikmenn norður. Renato Lindmets var með 14 stig og Marvin Valdimarsson skoraði 12 stig. Friðrik Hreinsson skoraði 20 stig fyrir Tindastól og Sean Cunningham var með 17 stig, 8 fráköst og 6 stoðsendingar. Eftir jafna byrjun tók Tindastóll frumkvæðið með því að skora sjö stig í röð og komast í 13-7 eftir fimm mínútna leik. Tindastóll komst í framhaldinu í 21-11 en Stjarnan náði að minnka muninn í 21-15 með því að skora fjögur síðustu stig fyrsta leikhlutans. Tindastóll komst í 24-15 í upphafi annars leikhluta en þá komu átta stiga Stjörnumanna í röð og það munaði síðan ekki miklu á liðunum síðustu sex mínútur hálfleiks. Tindastóll skoraði að lokum síðustu körfu fyrri hálfleiks og var einu stigi yfir í hálfleik, 32-31. Liðin skiptust á um forustuna í upphafi þriðja leikhlutans en Stjörnumenn tóku síðan frumkvæðið og voru átta stigum yfir eftir hann, 61-53. Renato Lindmets fór á kostum í leikhlutanum og skoraði 11 stig í honum. Stjörnumenn náðu ellefu stiga forskoti í upphafi fjórða leikhluta og eftir það var á brattann að sækja hjá Stólunum sem urðu að lokum að sætta sig við fyrsta heimatapið í langan tíma. Stjörnuliðið vann þarna flottan útisigur og fór með því upp fyrir Hauka í töflunni. Tindastóll-Stjarnan 78-90 (21-15, 11-16, 21-30, 25-29)Tindastóll: Friðrik Hreinsson 20, Sean Kingsley Cunningham 17/8 fráköst/6 stoðsendingar, Hayward Fain 11/10 fráköst/5 stoðsendingar/3 varin skot, Dragoljub Kitanovic 10/6 fráköst, Svavar Atli Birgisson 9/4 fráköst, Helgi Rafn Viggósson 9/17 fráköst, Helgi Freyr Margeirsson 2.Stjarnan: Justin Shouse 27, Renato Lindmets 14, Jovan Zdravevski 13/6 fráköst, Marvin Valdimarsson 12/8 fráköst, Daníel G. Guðmundsson 9, Fannar Freyr Helgason 6/7 fráköst, Guðjón Lárusson 5/6 fráköst, Ólafur Aron Ingvason 4/6 fráköst.
Dominos-deild karla Mest lesið Sex leikmenn Íslands í lyfjapróf Fótbolti Fimm ástæður þess að Ísland falli strax út á EM Fótbolti EM í dag: Hitabylgja og hrakfarir við komuna til Thun Fótbolti Bandaríkin áfram en Kanada úr leik eftir vítaspyrnukeppni Fótbolti Sjáðu tvennur Eiðs og Nikolaj, aukaspyrnu Kjartans og öll hin mörkin Íslenski boltinn Æfir í Dublin en fer fyrr til New Orleans „að venjast hitanum og rakanum“ Sport „Ég hef aldrei séð aðrar eins tölur“ Fótbolti Tekur Martinez við hönskunum hjá United? Fótbolti Ber engan kala til Antonelli eftir áreksturinn Formúla 1 Kane afgreiddi Brassana Fótbolti Fleiri fréttir Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum Sjá meira