
Leyndarhyggja eða lýðskrum?
Í augnablikinu er hún hins vegar óhjákvæmileg og það vita allir þeir sem sitja í bæjarstjórn og hafa fengið upplýsingar um bæði efni samningsins og forsendur þess og ástæður að viðsemjendur sveitarfélagsins setja fram þá ófrávíkjanlegu kröfu að um einstök atriði hans ríki tímabundinn trúnaður. Fyrir því eru bæði eðlilegar og málefnalegar ástæður. Þrátt fyrir það velja fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði að róa á sín vanalegu mið, sá fræjum tortryggni og kynda undir ófriðarbáli í samfélaginu.
Samningurinn og forsendur hansViðsemjandi Hafnarfjarðarbæjar er FMS Wertmanagement, þýsk skilanefnd, skipuð samkvæmt þýskum lögum. Hún hefur það eina verkefni að innheimta kröfur hins fallna banka og draga þannig sem mest úr því tapi sem að endingu mun lenda á þýskum almenningi að greiða. Stór hluti af þeim kröfum sem skilanefndin hefur til innheimtu er gagnvart opinberum aðilum, meðal annars íslenskum sveitarfélögum. Staða þeirra í dag er mjög misjöfn. Sum hafa litla sem enga möguleika til vaxtar og þróunar, til aukinna tekna af atvinnustarfsemi eða auðlindum. Önnur búa við sterkari stöðu og allt aðrar og jákvæðari framtíðarhorfur. Hafnarfjörður er meðal þeirra sveitarfélaga.
Staðreyndin er sú að í umræddum samningi felst mikilvægur sigur fyrir bæjarbúa í Hafnarfirði, sigur í erfiðu verkefni sem staðið hefur yfir frá því að íslenskt efnahagslíf hrundi. Fulltrúar þeirra flokka sem mynda meirihluta í bæjarstjórn geta jafnframt verið stoltir af því að hafa náð hagstæðri lendingu í þessu stóra máli en það er ekki síst fyrir að þakka góðu og vönduðu starfsfólki sem hefur unnið ötullega að því undanfarið ár að endurskipuleggja rekstur og fjárhag bæjarins.
Þær endalausu upphrópanir og óábyrgu yfirlýsingar sem fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa staðið fyrir á tímabilinu hafa svo sannarlega ekki auðveldað þá vinnu eða skapað sveitarfélaginu hagstæð skilyrði til samninga. Þvert á móti hafa þær fyrst og fremst verið til þess fallnar að draga úr trausti gagnvart sveitarfélaginu.
Eru skuldir ekki bara skuldir?Uppruni og eðli þeirra skulda sem sveitarfélögin standa frammi fyrir að greiða skiptir höfuðmáli þegar rætt er um mismunandi stöðu þeirra og framtíðarhorfur. Ólíkt sumum þeirra sveitarfélaga sem lent hafa í þröngri stöðu að undanförnu voru þau lán sem Hafnarfjarðarbær tók á undanförnum árum ekki tekin til þess að standa undir daglegum rekstri heldur til fjárfestinga í innviðum, til byggingar nýrra skóla, til gatnaframkvæmda, til nauðsynlegra veituframkvæmda og til uppbyggingar í íþrótta- og tómstundamálum barna og unglinga.
Skuldir sveitarfélagsins eru því ekki tilkomnar vegna viðvarandi rekstrarvanda eins og fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn hafa lagt sig mikið fram um að reyna að sannfæra bæjarbúa um. Síðasta áratuginn hefur rekstur bæjarins að jafnaði skilað töluverðri framlegð og þar af leiðandi hefur skapast svigrúm til að greiða niður stóran hluta þeirra skulda sem stofnað var til í síðustu stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins í bænum, á tímabili sem helst verður minnst fyrir glórulausa einkaframkvæmdasamninga. Samninga sem fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn vilja helst ekki að minnst sé á en Hafnfirðingar eru enn að súpa seyðið af.
Þær óháðu úttektir sem gerðar hafa verið á rekstri og fjárhagsstöðu Hafnarfjarðarbæjar að undanförnu staðfesta þetta og afhjúpa um leið þann óábyrga málflutning sem sjálfstæðismenn í Hafnarfirði hafa staðið fyrir á síðustu misserum og hefur lítinn tilgang annan en að strá ryki í augu bæjarbúa og rjúfa þá mikilvægu samstöðu og samkennd sem einkennt hefur hafnfirskt samfélag.
Á þeim grunni eygja sjálfstæðismenn í Hafnarfirði greinilega von sína um að komast til valda.
Viðspyrnu náðÞrátt fyrir að skuldir sveitarfélagsins hafi nær tvöfaldast vegna hrunsins stendur Hafnarfjörður sterkum fótum og framtíðin er björt. Vegna mikillar uppbyggingar í innviðum á undanförnum árum er fjárfestingarþörf bæjarins metin mjög lítil næstu ár og eignastaða að sama skapi sterk. Það þýðir að þegar hjól efnahagslífsins fara að snúast hraðar mun efnahagur sveitarfélagsins eflast mjög hratt.
Í stað þess að fagna nú þeim mikilvæga áfanga sem nú hefur náðst í að endurheimta sterka stöðu sveitarfélagsins, samningum sem undirstrika bjarta framtíð þess og þann árangur sem náðst hefur í að aðlaga rekstur þess að breyttum aðstæðum, halda sjálfstæðismenn í bæjarstjórn áfram að stunda sitt makalausa lýðskrum og ýta undir óraunhæfar væntingar.
Þeir eru líka fyrir löngu búnir að gleyma hruninu, hafa strikað það út úr sögubókum sínum. Það hafa flokksbræður þeirra á Alþingi líka gert, en vert er að minnast síðustu allsherjarsamkomu Flokksins, þar sem fyrrverandi stjórnarherrar landsins fluttu fimmaurabrandara um pólitíska andstæðinga sína og voru hylltir fyrir með lófaklappi og fótastappi. Á því plani er pólitík þeirra sem ekki kunna að skammast sín.
Skoðun

Heiðmörk: Gaddavír og girðingar
Auður Kjartansdóttir skrifar

Tuttugu ár af röddum sem áður voru þaggaðar, og framtíðin er okkar
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

#blessmeta - önnur grein
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar

Hvers virði er lambakjöt?
Hafliði Halldórsson skrifar

Lífið er eins og konfektkassi, þú veist aldrei hvernig mola þú færð
Elín Íris Fanndal skrifar

Þjóðareign, trú og skattar
Svanur Guðmundsson skrifar

Hamas og átökin við Ísrael – hvað er ekki sagt upphátt?
Einar G Harðarson skrifar

Gjaldfrjálsar máltíðir fyrir leikskólabörn
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Næstu sólarhringar á Gaza skipta sköpum
Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar

Hvernig gengur nýjum kennurum í grunnskólakennslu?
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson,Aðalheiður Anna Erlingsdóttir,Andri Rafn Ottesen,Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir,Valgerður S. Bjarnadóttir skrifar

Huglæg réttlætiskennd og skattar á verðmætasköpun
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Loksins fær þyrlan heimili fyrir norðan
Njáll Trausti Friðbertsson skrifar

Opið bréf til stjórnvalda
Elín Ýr Arnar Hafdísardóttir skrifar

Við skuldum þeim að hlusta
Ólafur Adolfsson skrifar

„Litla stúlkan og ruddarnir“ - Hugleiðing um stöðu Íslands á alþj.vettv.
Flosi Þorgeirsson skrifar

Mikilvæg gagnrýni eða tilraun til valdayfirtöku í Sósíalistaflokknum?
Ása Lind Finnbogadóttir skrifar

Matvælaverð hefur nær þrefaldast frá stofnun Viðskiptaráðs!
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifar

Alvarleg staða í umhverfi fréttamiðla
Rósa Guðbjartsdóttir skrifar

Stéttarkerfi
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Stöðvum Hamas. Einungis þannig getum við stöðvað hryllinginn á Gaza
BIrgir Finnsson skrifar

Dagur líffræðilegrar fjölbreytni 2025
Rannveig Magnúsdóttir,Ole Sandberg,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Rebecca Thompson,Skúli Skúlason,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir skrifar

Æfingin skapar meistarann!
Sigurjón Már Fox Gunnarsson skrifar

140 sinnum líklegra að verða fyrir eldingu
Sigurður G. Guðjónsson skrifar

Konum í afplánun fjölgar: Með flókin áföll á bakinu
Tinna Eyberg Örlygsdóttir,Sigríður Ella Jónsdóttir skrifar

Traust í húfi
Eyjólfur Ármannsson skrifar

Verðmætasköpun án virðingar
Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar

Daði Már týnir sjálfum sér
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Samhljómur við náttúruna og sjálfbæra þróun
Anna María Ágústsdóttir skrifar

Aðgerðir gegn mansali í forgangi
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar

Enginn á verðinum – um ábyrgð, framtíðarsýn og mikilvægi forvirkrar stjórnsýslu
Guðjón Heiðar Pálsson skrifar