Lin ævintýrið heldur áfram | nýliðinn tryggði Knicks sigur 15. febrúar 2012 09:53
Sigurganga New York Knicks heldur áfram í NBA deildinni og ævintýrið heldur áfram hjá leikstjórnandum Jeremy Lin sem tryggði sigurinn gegn Toronto með þriggja stiga skoti 0,9 sekúndum fyrir leikslok. Lokatölur 90-87 og er þetta sjötti sigurleikur Knicks í röð. Liðið hefur nú unnið 14 leiki en tapað 15. Lin var stigahæstur í liði Knicks með 27 stig og hann gaf að auki 11 stoðsendingar. Amar'e Stoudemire skoraði 21 stig og tók 8 fráköst en hann lék í fyrsta sinn eftir fráfall bróður síns. Toronto náði um tíma 17 stiga forskoti. Lin jafnaði metin í 87-87 með tveggja stiga körfu og hann fékk vítaskot að auki. Knicks skoraði 13 stig gegn 1 á lokakafla leiksins. Helstu atriðin úr fjórða leikhluta leiksins má sjá hér, þar sem Lin fer á kostum. Miami átti ekki í vandræðum með Indiana á útivelli, lokatölur 105-90, og stórstjörnur Miami fengu að hvíla sig eftir þörfum enda leikur liðið þrjá leiki á jafnmörgum dögum. LeBron James skoraði 23 stig fyrir Miami, hann tók 9 fráköst, gaf 7 stoðsendingar og stal boltanum 4 sinnum. Kobe Bryant átti alls ekki sinn besta leik þegar LA Lakers lagði Atlanta 86-78 á heimavelli. Bryant hitti aðeins úr 5 af alls 18 skotum sínum í leiknum en hann skoraði 10 stig. Sem telst til tíðinda. Spánverjinn Pau Gasol skoraði 7 af alls 20 stigum sínum á síðustu 5 mínútum leiksins. Hann tók að auki 13 fráköst. Úrslit: Toronto - New York Knicks 87-90 Indiana – Miami 90-105 Detroit – San Antonio 95-99 Chicago – Sacramento 121-115 Memphis – Houston 93-83 Oklahoma – Utah 111-85 Denver – Phoenix 109-92 Portland – Washington 109-124 LA Lakers – Atlanta 86-78
NBA Mest lesið Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Fótbolti Dauðaslys í maraþonhlaupi Sport Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Fótbolti Man United ósátt við Marokkó og FIFA Enski boltinn Öðruvísi lið en áður hafa sóst í Frey: „Vita hvar ég stend“ Fótbolti KSÍ missti af meira en milljarði króna Fótbolti Hefur aldrei séð svona ofbeldi: „Þetta var allt of mikið“ Sport Enginn blóðugur en einn brjálaður á HM í kvöld Sport Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Enski boltinn Kona vann Ísmaraþonið á Suðurskautslandinu í fyrsta sinn Sport Fleiri fréttir Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Kjartan Atli lætur af störfum Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness: „Bara kjánalegt að horfa á þetta“ Curry sneri aftur með miklum látum Uppgjörið:Njarðvík - Þór Þorlákshöfn 92-93| Stigin til Þorlákshafnar eftir háspennu Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna Sjá meira