Serge Ibaka: LeBron James er ekki góður varnarmaður Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. júní 2012 22:45 Serge Ibaka og LeBron James. Mynd/Nordic Photos/Getty
Serge Ibaka, framherji Oklahoma City Thunder, ákvað að blanda sér í sálfræðistríðið á milli Miami Heat og Oklahoma City Thunder fyrir fjórða leik liðanna sem fer fram í Miami í kvöld. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst klukkan eitt eftir miðnætti að íslenskum tíma. Serge Ibaka notaði tækifærið í blaðaviðtali og skaut á LeBron James en þér félagar voru báðir valdir í varnarlið ársins í NBA-deildinni. Ibaka gefur hinsvegar ekki mikið fyrir varnartilþrif LeBron James. „LeBron James er ekki góður varnarmaður. Hann getur kannski spilað góða vörn í tvær til þrjár mínútur en aldrei í allar 48 mínúturnar. LeBron ræður ekki við Kevin Durant einn á einn en Miami-liðið er hinsvegar að spila góða liðsvörn," sagði Serge Ibaka og LeBron James var í kjölfarið spurður út í ummæli Ibaka. „Mér er nákvæmlega sama um hvað hann segir, hann er vitlaus," sagði LeBron James og bætti við: „Það eru alltaf einhverjir að beina orðum sínum til mín í öllum einvígum og svo reyna fjölmiðlarnir að fá viðbrögð frá mér. Þetta er bara heimskulegt," sagði James. LeBron James hefur spilað vel í fyrstu þremur leikjunum í úrslitaeinvíginu en hann er með 30,3 stig, 10,3 fráköst og 4,0 stoðsendingar að meðaltali í leik í einvíginu á móti Thunder. Ibaka er aftur á móti með 7,3 stig, 5,0 fráköst og 2,3 varin skot að meðaltali.
NBA Mest lesið Bað kærastann sinn afsökunar Sport Konunum fórnað í peningavandræðum karlaliðs Barcelona Fótbolti „Fáránleg staða sem er komin upp“ Enski boltinn Spáir Bröndby sigri í einvíginu á móti Víkingum Fótbolti Gullsending Sveindísar Jane valin sú besta Fótbolti Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Enski boltinn Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Enski boltinn Donnarumma sagður á leið til City í sögulegum skiptum Fótbolti Rashford segir Man. United fast í einskismannslandi Enski boltinn Grealish valdi númerið sitt vegna Rooney og Gascoigne Enski boltinn Fleiri fréttir Jaka skilinn eftir og þrettán leikmenn berjast um hin tólf sætin Með fyrsta þrjátíu tuttugu leikinn í sögu WNBA Ótryggður Giannis tekur ekki þátt í undirbúningi Grikklands Þjóðverjar unnu Doncic lausa Slóvena Pólland missir NBA stjörnu fyrir Eurobasket Stelpurnar töpuðu þrátt fyrir frábæra byrjun Stockton segir að LeBron „hafa notað þyrlu til að komast á toppinn“ Serbi inn í teig hjá Stólunum: „Ég veit að áhorfendurnir elska körfubolta“ Stelpurnar spila um sjöunda sætið á Eurobasket „Þeir eiga allir skilið að fara í lokahópinn“ Stelpurnar Norðurlandameistarar og strákarnir fengu silfur Þýskaland lagði Slóvena í undirbúningi fyrir Eurobasket Celtics festa þjálfarann í sessi NBA stjarna borin út Litáen of stór biti fyrir íslensku stelpurnar Öruggar með besta árangur Íslands á EM frá upphafi Ákærður fyrir að hnupla treyju LeBron sem seldist seinna á nær hálfan milljarð Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Stórskotasýning Sigtryggs dugði ekki til sigurs Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð Sjá meira