Fótbolti

FCK vann slaginn í Köben

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
FC Kaupmannahöfn hafði betur gegn erkifjendunum í Bröndby í dönsku úrvalsdeildinni í dag, 1-0. Kris Stadsgaard skoraði eina mark leiksins á tólftu mínútu.

Ragnar Sigurðsson var í byrjunarliði FCK en þeir Sölvi Geir Ottesen og Rúrik Gíslason á bekknum. Rúrik kom inn á sem varamaður á 86. mínútu.

FCK er á toppi deildarinnar, enn ósigrað, með 29 stig eftir þrettán leiki. Bröndby er hins vegar á botninum með átta stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×