
Hrunið í framhaldssögu
Landsbankinn hafði stofnað til Icesave-innlánsreikninga og Kaupþing til Edge-reikninga sem buðu viðskiptavinum mjög hagstæð vaxtakjör. Edge-reikningarnir voru í breskri lögsögu dótturbanka Kaupþings. Svo gilti ekki um Icesave sem var í útibúum Landsbankans og því í íslenskri lögsögu og ábyrgð. Svo sem rannsóknarskýrslan tekur fram flæddu þessi Icesave-innlán úr útibúum Landsbankans í Bretlandi og Hollandi frá haustinu 2007 til Íslands.
Í aðalbankanum í Reykjavík verður að ætla að það hafi verið til að mæta fjárþörf aðalviðskiptavinanna sem voru víst aðaleigandur bankans. En hollensk og bresk stjórnvöld grípa til þess ráðs að endurgreiða Icesave-innistæðueigundum þar sem íslenski tryggingarsjóðurinn var lítils megnugur. Gerð er krafa, svo sem eðlilegt var, um að íslensk stjórnvöld greiði höfuðstól bótanna að viðbættum vöxtum og krafan er nú í meðferð EFTA-dómstólsins.
Þessir Icesave-reikningar geymdu sparnað einstaklinga og svokölluð heildsöluinnlán frá sjóðum bæja- og sveitarfélaga og eftirlaunaþega. Nú er sá sem þetta skrifar ekki sérfróður um bankalöggjöf, en sem eftirlaunaþegi hefur hann sterkar skoðanir á því hvernig varðveita og ávaxta beri það fé, sem hann hefur á langri starfsævi lagt á móti framlagi atvinnurekandans til farborða í ellinni. Það er ekki innan marka þess sem telst siðferðileg meðferð slíks fjár að leggja það í hendur fjárglæframanna.
Eru ekki niðurstöður Fjármálaeftirlitsins og Sérstaks saksóknara síðan 2008 að leiða líkum að því að bankarnir, stjórnendur þeirra og eigendur, eigi að svara fyrir þá sök? Það þurfti að sjálfsögðu að hreinsa til og enginn átti von á öðru en hörðum dómum og upptöku eigna. En var eða er ekki einhver leið önnur en áralangar rannsóknir, ákærur og málsvarnir hundraða lögfræðinga til að ljúka þessu, þannig að fjölmiðlar velti ekki þjóðfélaginu árum saman upp úr fortíðinni?
Ekki verður sagt nema síður sé, að þær miklu rannsóknir Sérstaks saksóknara og Fjármálaeftirlits sem hófust eftir bankahrunið, séu að skila þeim árangri sem vænst var. Jafnvel hinn sérlegi ráðgjafi Eva Joly hefur lýst vonbrigðum yfir hægaganginum hjá Sérstökum saksóknara. Að því kom sem fyrr hefði mátt vera, að formaður Lögmannafélags Íslands lýsti því yfir að fjölmiðlar sem refsivöndur dómsvaldsins séu ekki gott samspil. Bent er á að vegna fjölmiðlaumfjöllunar um einn sakborninginn hafi hann „ [...] nú þegar orðið fyrir dæmalausum áföllum og ágangi á mannorð sitt og allt persónulegt starf og líf, en þar hefur fjölmiðlaumfjöllun spilað stórt hlutverk. Á ákærða hefur þannig, og frá því að málið fyrst komst í hámæli haustið 2008, verið gefið út hreint veiðileyfi af hálfu fjölmiðla, sem farið hafa hamförum í umfjöllun um hann, persónu hans og störf og ekki síst fyrirfram sakfellingu á meintu broti hans [...]“.
Að sjálfsögðu eiga þeir sem gerst hafa sekir um brot á lögum landsins að fá sinn dóm. En að þeir séu kjöldregnir árum saman í fjölmiðlum er lítt við hæfi í ríki góðs réttarfars og mannréttinda. Hefur lögfræðinámið ekki slagsíðu í fullmikilli áherslu á gamaldags refsirétti í stað lærdóms um hvernig fjármálalífið virkar í nútíma þjóðfélagi? Einhvern tíma var talað um júridíska refsigleði. Ekki er betra ef satt er, að þessi þjónusta kosti allt að 30.000 kr. á klukkustund.
Nú eru víst á þriðja hundrað einstaklingar með réttarstöðu sakbornings og enn aðrir vitni í sambandi við hrunið og svo er að skilja að enn séu margir tugir mála í undirbúningi hjá Sérstökum saksóknara. Þetta ferli hefur þegar tekið þrjú ár en hamingja má þá vita hvað er framundan í tíma og æsifréttum. Má nærri geta að allur þessi fjöldi fólks, þegar með eru talin makar og börn, vinir og venslamenn, eigi sér fáa gleðidaga.
Fyrir utan þann skara lögmanna sem hafa atvinnu af þessum uppgripum hljóta fleiri en sá sem þetta ritar að vera búnir að fá nóg af dómsmálum í fjölmiðlum. Er Kastljós réttur vettvangur fyrir saksóknara? Þjóðin fær þessar fréttir svo stöðugt í sjónvarpi og útvarpi að hún er orðin eins konar stofufangi þessarar réttarfarslegu furðusögu. Og bikarinn var fullur þegar síðasti kaflinn var birtur þreyttum og leiðum áheyrendum á jóladag sem fyrsta fregn RÚV í hádeginu og sjónvarpi um kvöldið. Frásagnir af boðskap biskups, kirkjunnar manna og páfans máttu víkja fyrir gagnkvæmum ásökunum FME og Kauphallarinnar um vanrækslu í starfi árið 2008. Skelfing eru þessar blessaðar fréttastofur annars sérkennilega mannaðar.
Skoðun

Heiðmörk: Gaddavír og girðingar
Auður Kjartansdóttir skrifar

Tuttugu ár af röddum sem áður voru þaggaðar, og framtíðin er okkar
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

#blessmeta - önnur grein
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar

Hvers virði er lambakjöt?
Hafliði Halldórsson skrifar

Lífið er eins og konfektkassi, þú veist aldrei hvernig mola þú færð
Elín Íris Fanndal skrifar

Þjóðareign, trú og skattar
Svanur Guðmundsson skrifar

Hamas og átökin við Ísrael – hvað er ekki sagt upphátt?
Einar G Harðarson skrifar

Gjaldfrjálsar máltíðir fyrir leikskólabörn
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Næstu sólarhringar á Gaza skipta sköpum
Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar

Hvernig gengur nýjum kennurum í grunnskólakennslu?
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson,Aðalheiður Anna Erlingsdóttir,Andri Rafn Ottesen,Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir,Valgerður S. Bjarnadóttir skrifar

Huglæg réttlætiskennd og skattar á verðmætasköpun
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Loksins fær þyrlan heimili fyrir norðan
Njáll Trausti Friðbertsson skrifar

Opið bréf til stjórnvalda
Elín Ýr Arnar Hafdísardóttir skrifar

Við skuldum þeim að hlusta
Ólafur Adolfsson skrifar

„Litla stúlkan og ruddarnir“ - Hugleiðing um stöðu Íslands á alþj.vettv.
Flosi Þorgeirsson skrifar

Mikilvæg gagnrýni eða tilraun til valdayfirtöku í Sósíalistaflokknum?
Ása Lind Finnbogadóttir skrifar

Matvælaverð hefur nær þrefaldast frá stofnun Viðskiptaráðs!
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifar

Alvarleg staða í umhverfi fréttamiðla
Rósa Guðbjartsdóttir skrifar

Stéttarkerfi
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Stöðvum Hamas. Einungis þannig getum við stöðvað hryllinginn á Gaza
BIrgir Finnsson skrifar

Dagur líffræðilegrar fjölbreytni 2025
Rannveig Magnúsdóttir,Ole Sandberg,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Rebecca Thompson,Skúli Skúlason,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir skrifar

Æfingin skapar meistarann!
Sigurjón Már Fox Gunnarsson skrifar

140 sinnum líklegra að verða fyrir eldingu
Sigurður G. Guðjónsson skrifar

Konum í afplánun fjölgar: Með flókin áföll á bakinu
Tinna Eyberg Örlygsdóttir,Sigríður Ella Jónsdóttir skrifar

Traust í húfi
Eyjólfur Ármannsson skrifar

Verðmætasköpun án virðingar
Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar

Daði Már týnir sjálfum sér
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Samhljómur við náttúruna og sjálfbæra þróun
Anna María Ágústsdóttir skrifar

Aðgerðir gegn mansali í forgangi
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar

Enginn á verðinum – um ábyrgð, framtíðarsýn og mikilvægi forvirkrar stjórnsýslu
Guðjón Heiðar Pálsson skrifar