Skoðun

Sigríðarólánið

Jóhann Hauksson skrifar
Sigríður Andersen, sem situr nú á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn, ýjar að því í grein í Fréttablaðinu í gær að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hafi narrað fjölda fólks til íbúðarkaupa síðustu mánuðina fyrir hrun. Sigríður segir að í lok árs 2007 hafi viðskiptabankarnir verið nær hættir að lána til íbúðakaupa vegna aðsteðjandi þrenginga. „Þá beitti Jóhanna Sigurðardóttir húsnæðismálaráðherra sér hins vegar fyrir auknum útlánaheimildum Íbúðalánasjóðs (ÍLS). Hámarkslán ÍLS voru hækkuð og slakað á kröfum um hámarksveðsetningarhlutfall. Útlán sjóðsins tóku kipp við þessar aðgerðir,“ segir greinarhöfundur.

Ég vil kurteislega benda Sigríði á að Landsdómur sakfelldi þáverandi forsætisráðherra, Geir H. Haarde, á þessu ári fyrir að halda ekki fundi með ríkisstjórninni til að ræða alvarlega stöðu sem við blasti þegar í febrúar árið 2008. Hann ræddi málin áreiðanlega ekki við Jóhönnu sem tók við af honum á stóli forsætisráðherra og hefur haft forystu æ síðan um að endurreisa efnahagslífið. Hún hefur einnig haft forgöngu um bætt verklag á vettvangi ríkisstjórnarinnar til þess að tryggja að mikilvæg málefni ríkisins hafni ekki í höndum innvígðra og innmúraðra.

Áður en Sigríður reynir aftur að koma höggi á Jóhönnu ætti hún að lesa fréttatilkynningu forsætisráðuneytis Geirs H. Haarde dagsetta í júní 2008: „Mjög hefur hægt á veltu á fasteignamarkaði á yfirstandandi ári. Fasteignamarkaðurinn er mikilvægur hluti af hagkerfinu og veruleg kólnun hans myndi magna efnahagssamdrátt almennt og koma niður á íbúðarkaupendum og íbúðareigendum,“ segir þar.

Aðgerðirnar á miðju árinu 2008 voru eins konar neyðarráðstöfun. Þær voru ræddar í ríkisstjórn að frumkvæði þáverandi forsætisráðherra og Seðlabankinn lagði blessun sína yfir þær. Þær fólust m.a. í nýjum lánaflokkum Íbúðalánasjóðs til að koma í veg fyrir að fasteignamarkaðurinn botnfrysi. Hámarkslán Íbúðalánasjóðs hækkuðu úr 18 í 20 milljónir króna. Áður hafði Jóhanna beitt sér fyrir því að lækka 90% lánshlutfall frá stjórnartíð Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks niður í 80%.

Ógöngurnar nú má frekar rekja til þess að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur afnámu félagslega íbúðakerfið og húsbréfakerfið og settu íbúðalán á frjálsan markað.

Það er ólán Sigríðar að hafa ekki kynnt sér málið betur áður en hún reiddi til höggs.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×