Fimmti sigur Keflvíkinga í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. febrúar 2013 21:08 Valur Orri Valsson. Mynd/Daníel
Keflvíkingar fögnuðu sínum fimmta sigri í röð og stöðvuðu þriggja leikja sigurgöngu Ísfirðinga með því að vinna níu stiga sigur á KFÍ, 111-102, í leik liðanna í Domnos-deild karla í Toyota-höllinni í Keflavík í kvöld. Keflavíkuliðið er nú búið að vinna alla fimm deildarleiki sína með Billy Baptist innanborðs en hann var einn af þremur leikmönnum liðsins sem brutu 20 stiga múrinn í kvöld. Michael Craion var með 32 stig og 15 fráköst fyrir Keflavík í þessum leik og Valur Orri Valsson gældi við þrennuna með 26 stigum, 8 fráköstum og 8 stoðsendingum. Billy Baptist skoraði 20 stig. KFÍ byrjaði þó vel og var fimm stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann, 29-24. Keflavíkingar tóku hinsvegar öll völd í öðrum leikhlutanum sem þeir unnu 31-14 og voru þar með komnir með tólf stiga forskot í hálfleik, 55-43. Keflavíkurliðið var síðan með örugg tök á leiknum í seinni hálfleiknum. Damier Erik Pitts (37 stig og 8 stoðsendingar) braut 30 stiga múrinn í áttunda leiknum í röð en það dugði ekki fyrir Ísafjarðarliðið. Tyrone Bradshaw var með 22 stig en Kristján Pétur Andrésson skoraði 15 stig og tók 15 fráköst.
Dominos-deild karla Mest lesið Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Fótboltamaður skotinn til bana Fótbolti Úr Bestu deild yfir í að slá í gegn í Meistaradeild: „Ég elska pressuna“ Fótbolti Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Handbolti Bíður eftir kallinu frá Arnari: „Myndi segja að ég væri klár“ Fótbolti Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Enski boltinn Alcaraz sjokkerar tennisheiminn Sport Fleiri fréttir „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ KR á toppinn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Sjá meira