NBA: Denver-liðið óstöðvandi í þunna loftinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. mars 2013 09:00 Mynd/Nordic Photos/Getty
Oklahoma City Thunder og Denver Nuggets unnu leiki sína í NBA-deildinni í körfubolta í nótt en þá fóru aðeins tveir leikir fram í deildinni.Denver Nuggets liðið er gríðarlega öflugt á heimavelli sínum í fjöllunum og fagnaði sínum tólfta heimasigri í röð með því að vinna Los Angeles Clippers 107-92 í nótt. Denver er búið að vinna 27 af 30 heimaleikjum sínum í vetur en þetta var auk þess sjöundi sigurleikur liðsins í röð. Ty Lawson var með 21 stig og 11 stoðsendingar fyrir Denver og Danilo Gallinari skoraði 20 stig og gaf 6 stoðsendingaer. Alls brutu sjö leikmenn liðsins tíu stiga múrinn en gríðarlega breidd hjálpar liðinu mikið þegar hin liðin eru að reyna að ná andanum í þunna loftinu. Matt Barnes var stigahæstur hjá Clippers með 19 stig og Blake Griffin skoraði 17 stig. Chris Paul var með 16 stig og 10 stoðsendingar. Clippers-liðið var búið að vinna fimm útileiki í röð fyrir þennan leik í nótt.Kevin Durant tryggði Oklahoma City Thunder 95-94 útisigur á New York Knicks í Madison Square Garden en sigurstigið kom á vítalínunni þegar enn voru 1 mínútu o 38 sekúndur eftir af leiknum. Hvorugt liðanna náði að bæta við stigum. Durant skoraði 34 stig í leiknum auk þess að taka 8 fráköst og gefa 6 stoðsendingar og Russell Westbrook var með 21 stig. 6 fráköst og 5 stoðsendingar í þessum þriðja sigri Thunder-liðsins í röð. J.R. Smith skoraði 36 stig fyrir New York en liðið lék án Carmelo Anthony sem missti af sínum öðrum leik í röð vegna meiðsla.Úrslit allra leikja í NBA-deildinni í nótt: New York Knicks - Oklahoma City Thunder 94-95 Denver Nuggets - Los Angeles Clippers 107-92
NBA Mest lesið Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Fótbolti Eigandi Nott.Forest ákærður fyrir tengsl við glæpagengi Sport Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? Fótbolti Endurkoma ársins: Á Norðurlandamót aðeins ellefu mánuðum eftir hálsbrot Sport „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Fótbolti Fylgist spenntur með Viktori: „Þetta er með ólíkindum“ Fótbolti Víðir vann „diplómatískan sigur“ á þýska handknattleikssambandinu Handbolti Lamine Yamal sakaði menn um lygar eftir leik Fótbolti Sjáðu atvikið: Hágrátandi Hakimi frá í nokkrar vikur Fótbolti Segir að Man United sé ekki að búa til Harlem Globetrotters-lið Enski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: KR - Grindavík 68-85 | Gestirnir á toppinn Valskonur niðurlægðu Íslandsmeistarana Tryggvi með flest fráköst í Evrópusigri Sjaldgæf 30-20-10 þrenna í Síkinu í gær Sömu félög að spila í tveimur íþróttum í sama húsinu á sama tíma Kristófer Acox kallar sig glæpamann Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Stjarnan með þægilegan sigur á nýliðunum Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Íslandsmeistararnir mæta bikarmeisturunum Skagamenn senda Kanann heim Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Ólíkar niðurstöður hjá landsliðsmönnunum Er Tóti Túrbó ofmetinn? „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Góður lokaleikhluti tryggði Njarðvík sigurinn Styrmir með þrettán í öruggum sigri Zamora Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Blikar áfram með fullt hús stiga ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum „Bara feginn að við fundum þó leið“ Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum Sjá meira