Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, ávarpaði 8. Umhverfisþing í Hörpu. Þar lagði hann áherslu á hlutverk umhverfismála í rekstri fyrirtækja, sem er sívaxandi. Sagði Þorsteinn að atvinnulífið væri hluti af lausninni.
Sagði hann hagræna hvata ráða þar mestu. „Fyrirtækin taki upp formlega umhverfisstjórn og innleiði umhverfismerki sem leiði til betri nýtingar aðfanga og betri afkomu en ella.“ Sagði hann viðskiptavini fyrirtækja leggja stöðugt meiri áherslu á umhverfisvænar vörur og þjónustu.
Þorsteinn sagði íslenskan sjávarútveg vera gott dæmi um ábyrga og sjálfbæra auðlindanýtingu. Einnig benti hann á að með aukinni notkun áls í bíla og önnur samgöngutæki takist að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda tífalt á við þær gróðurhúsalofttegundir sem skapist við framleiðslu álsins.
Mikilvægt væri við mótun landsskipulagsstefnu að horfa til heildarhagsmuna en ekki hagsmuna einstakra sveitarfélaga. Það ætti við um nauðsynlega samgöngumannvirki, fjarskiptakeri og flutningskerfi raforku. Hann sagði að sama þurfi að gera við mótun stefnu um skipulag hafs og strandsvæða. „Þar verði reglur að vera einfaldar og gegnsæjar. Mikilvægt sé að hafa samráð við atvinnulíf um mótun stefnu á þessum sviðum.“
Umhverfismál vaxandi hluti reksturs
Samúel Karl Ólason skrifar

Mest lesið


Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist
Viðskipti innlent

Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun
Viðskipti innlent

Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka
Viðskipti innlent

Apple skoðar að stýra snjalltækjum með hugsunum
Viðskipti erlent

Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna
Viðskipti innlent

Síðasti dropinn á sögulegri stöð
Viðskipti innlent

Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið
Viðskipti innlent

Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent
Viðskipti innlent

Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi
Viðskipti innlent