Töluvert hvassvirði er norðvestan til á landinu og víða skafrenningur samkvæmt ábendingu frá veðurfræðingi.
Víða skafrenningur á fjallvegum og sums staðar einnig él eða snjókoma. Í byggð norðan- og austanlands helst hiti yfir frostmarki, en það lægir mikið á þeim slóðum í bili. Hvessir aftur í
kvöld þegar nýtt úrkomusvæði nálgast úr austri með úrkomu, en fremur mildu lofti.
Færð
Hálkublettir eru er á Hellisheiði og í Þrengslum en annars er hálka eða hálkublettir víðast hvar á Suðurlandi.
Flughálka er þó á Lyngdalsheiði, á Krýsuvíkurvegi og nokkrum vegum í kringum Hvolsvöll.
Á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir á flestum vegum. Óveður er við Hafursfell, í Staðasveit, og á Fróðárheiði. Hálka er svo á Holtavörðuheiði en flughálka er í vestanverðum Hrútafirði og óveður.
Á Vestfjörðum er þæfingsfærð á Kleifaheiði en snjóþekja og skafrenningur á Hálfdán og Mikladal. Ófært er á Steingrímsfjarðarheiði og Klettsháls og beðið er með mokstur vegna veðurs. Þungfært er svo á Þröskuldum og óveður. Ófært er frá Bjarnarfirði og norður í Djúpavík á Ströndum.
Ófært er yfir Þverárfjall og beðið með mokstur vegna veðurs en annars er hálka eða snjóþekja víðast hvar á Norðurlandi. Hálka og óveður er í Húnavatnssýslum, þungfært er svo á Öxnadalsheiði og einungis fært stærri jeppum.
Norðaustan til er ófært er á Mývatnsöræfum en unnið er að mokstri. Á Austurlandi er ófært á Vopnafjarðarheiði og Möðrudalsöræfum en unnið er að opnun.
Snjóþekja er svo á Fagradal en hálka á Fjarðarheiði og Oddskarði. Hálka eða hálkublettir eru svo á öðrum leiðum en þó er þungfært yfir Vatnsskarð eystra. Autt er svo alveg með suðausturströndinni frá Djúpavog.
Ófært víða um land og mikil hálka
Stefán Árni Pálsson skrifar
